Fréttablaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 58
Allir vita að tónlist er holl og góð, nema rokkið... það kemur frá djöf linum. Að öllu gamni slepptu hefur tónlist marg-
vísleg heilsusamleg áhrif. Núna
þegar það verða líklega engir jóla-
tónleikar er þeim mun mikilvægara
að fara á Spotify eða YouTube og
hlusta á eitthvað skemmtilegt.
Ég persónulega hef bæði smekk
fyrir klassískri tónlist og djassi,
auk ýmiss konar heimstónlistar.
Poppjólalög heyrast úr hverju horni
þegar desember gengur í garð, og
jafnvel fyrr, svo óþarfi er að auglýsa
þau eitthvað frekar. Nei, hér verður
horft til fagurtónlistar, sem er þó
ekkert síður jólaleg en síbyljan.
Magnum Mysterium
með Jan Lundgren
Byrjum á djassinum. Á vissan hátt
er djassinn eins og búddisminn. Sá
síðarnefndi hefur breiðst um heim-
inn og hefur þann einstaka karakt-
er að geta lagað sig að þankagangi
mismunandi landsvæða, hvort
sem það er tíbetsk náttúrutrú eða
evrópsk sálfræði. Djassinn hefur
líka þennan sveigjanleika, þar eru
margar stefnur og nálganir.
Fyrir nokkrum árum kom hingað
til tónleikahalds sænski djasspían-
istinn og tónskáldið Jan Lundgren.
Hann spilaði með Barbörukórnum
og nokkrum öðrum tónlistar-
mönnum. Meginuppistaðan á
efnisskránni var samtíningur laga
eftir Monteverdi, Gabrieli, Gaffurio,
Morales, Byrd og de Victoria. Svipað
samansafn kom út í djassútgáfu
Lundgrens á plötu fyrir rúmum ára-
tug síðan undir nafninu Magnum
Mysterium. Útsetningarnar eru lág-
stemmdar og fallegar, það er aldrei
togstreita á milli þessara ólíku tón-
listarstefna. Þvert á móti skapar
djassinn fallega umgjörð utan um
tímalausa endurreisnartónlistina
og lyftir henni upp í hæstu hæðir.
Útkoman er afar andaktug.
Officium með Jan Garbarek
og Hilliard Ensemble
Árið 1994 kom út merkileg plata
sem sló heldur betur í gegn. Norski
saxófónleikarinn Jan Garbarek
impróvíserar þar við kórsöng Hilli-
ard Ensemble, og syngur hann verk
eftir tónskáld frá 12. – 16. öld. Þetta
er trúarleg tónlist, enda er Officium
nafnið á hinum daglegu tíðabænum
Kirkjunnar.
Söngurinn er afar fallegur, þrung-
inn einhvers konar himneskri ró.
Upptakan var gerð í klaustri, og
endurómunin er ríkuleg. Einhver
kynni að ætla að djass-saxófónn í
slíku samhengi sé ósmekklegur, en
það er öðru nær. Saxófónninn er
tilfinningaþrunginn og hugleiðslu-
kenndur, útkoman er alveg einstök.
Vespers eftir Rahkmanínoff
Annað kórverk er ómissandi um
jólin, Vespers, eða Aftansöngur,
eftir Rakhmanínoff. Það hefur
nokkrum sinnum verið f lutt hér
á landi. Rahkmanínoff tilheyrði
rússnesku Rétttrúnaðarkirkjunni,
en var reyndar ekki kirkjurækinn.
Aftansöngur eru kvöldbænir, tíða-
bænir, venjulega sungnar, eða bara
beðnar, um kvöld. Titill verksins er
ónákvæmur, um er að ræða nætur-
vöku, yfirleitt aðfaranótt sunnu-
dags í Rétttrúnaðarkirkjunni, og
samanstendur af þremur tíðum.
Stemningin í verkinu er forn.
Rakhmanínoff byggði tónlistina á
hefðbundnum söng, og meiri hluti
stefjanna tilheyrir tónlistararfi
kirkjunnar. Hið frumsamda er svo
í sama anda, og Rakhmanínoff
sjálfur kallaði það „meðvitað feik“.
Saman myndar feik og alvara stór-
kostlegt listaverk, og er ein af skær-
ustu perlunum í tónlist rússnesku
Rétttrúnaðarkirkjunnar.
Jól í Hallgrímskirkju
Að lokum verð ég að nefna plötu
sem er alltaf spiluð heima hjá mér
um jólin, Jól í Hallgrímskirkju. Hún
er á Spotify. Þetta er samansafn af
lögum sem tengjast jólunum, beint
eða óbeint. Þar er til dæmis hinn
dásamlegi Pastorale í F-dúr eftir
Bach sem Hörður Áskelsson leikur á
orgelið af listfengi og mikilli tilfinn-
ingu. Einnig má hlýða á sálma, bæði
erlenda og íslenska, til að mynda
Nóttin var sú ágæt ein eftir Sigvalda
Kaldalóns. Mótettukór kirkjunnar
syngur unaðslega vel undir öruggri
stjórn Harðar, og aðrir hljóðfæra-
leikarar eru með sitt á hreinu.
Og aukalagið...
Aukalagið hér er afar lágstemmt,
Sposa son disprezzata. Það hefur
verið eignað Vivaldi, en er í raun
eftir Geminiano Giacomelli. Ég
heyrði lagið fyrst í þáttaröðinni
The Sopranos, en þar er það spilað
á meðan tvær konur eru að dást að
endurreisnarmálverki af Heilagri
guðsmóður. Cecilia Bartoli syngur;
hvílík guðdómleg fegurð. Þetta er
tónlist sem fær hárin til að rísa. Hún
hefur þau áhrif að maður trúir því
auðveldlega að til sé eitthvað æðra
en maðurinn; jólin eru svo sannar-
lega tími til að minnast þess.
Jónas Sen
ÞVERT Á MÓTI
SKAPAR DJASSINN
FALLEGA UMGJÖRÐ UTAN UM
TÍMALAUSA ENDURREISNAR-
TÓNLISTINA OG LYFTIR HENNI
UPP Í HÆSTU HÆÐIR.
ÞAR ER TIL DÆMIS
HINN DÁSAMLEGI
PASTORALE Í F-DÚR EFTIR BACH
SEM HÖRÐUR ÁSKELSSON
LEIKUR Á ORGELIÐ AF LIST-
FENGI OG MIKILLI TILFINN-
INGU.
Smá mótvægi
við síbyljuna
Jónas Sen, tónlistargagnrýnandi Frétta-
blaðsins, skrifar um jólatónlist sem má
orna sér við þegar ekki eru tónleikar.
Vespers eftir Rakhmanínoff er ómissandi um jólin.
Það er guðdómleg fegurð í söng Ceciliu Bartoli. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R40 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð