Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Side 36

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Side 36
34 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR unum (UNDP/FAO), var mælt Bi2-bæti- efni í blóði nokkurra lamba úr tilraunum á Hesti og Auðkúluheiði. Var það Olafur Guðmundsson fóðurfræðingur, sem stóð fyrir þessum tilraunum ásamt skozkum sérfræðingi að nafni A.F.J. Russel. I ljós kom, að Bi2-bætiefni var nægjanlegt á báðum þessum stöðum og öllu meira á Hesti. Ólafur reyndi einnig kóboltinn- gjafir í beitartilraunum, en árangur sást ekki (3). Til frekari könnunar á kóbolti í næringu skepna á Islandi var mælt á Keldum kó- bolt í 84 gras- eða heysýnum víðs vegar að af landinu. 41 af sýnunum var úr tilraun ICE/73/003, 32 voru frá Rannsókna- stofnun landbúnaðarins, en ekki úr beitartilraunum, 7 voru frá Rannsókna- stofu Norðurlands og 4 sýni frá öðrum. Aðferðir. Sýni voru þurrkuð og möluð á Rann- sóknastofnun landbúnaðarins og á Rann- sóknastofu Norðurlands. Þurrefni var mælt í þeim og reyndist 93 - 95%. Við kóboltmælinguna var notuð aðferð Gel- mans (2). Þessari aðferð var breytt, svo að hún hentaði þeim útbúnaði sem er til á Keldum. Perkin Elmer-eindalitgleypni- mælir (atomic absorbtion spectrophot- ometer) með grafítofni HGA 72 var not- aður við mælinguna. Aðferðin var á þessa leið: VCíx 1 g af heydufti var vegið á Mettlers- ■ ývog PN 1210, vigtarnákvæmni um 1%. Notaðar voru deiglur úr Vycor- gleri eða postulíni. 2. Duftið var brennt hægt á rafhitara, síðan haft við 460° C í brennsluofni í 17 klukkustundir. 3. Deiglurnar voru teknar úr ofninum og askan vætt með eimuðu vatni. Þá var aukið við 2 ml af fullsterkri (68%) saltpéturssýru og þurrkað á rafhitara. Síðan var þetta látið aftur í ofninn og haft þar 5 klukkustundir í viðbót við 460 °C. 4. Eftir síðari hitun í brennsluofninum var tvisvar þurrkað upp af öskunni 2 ml af 6 N HCl. 5. 8 ml af 0,1 N HCl var látið í öskuna og hitað í 30 mín. Síðan var það skol- að niður í 18 ml skilvinduglas. Deigl- an var skoluð nokkrum sinnum niður í glasið, þangað til það var orðið fullt. Þetta var skilið í 10 mín. í skilvindu og hellt ofan af botnfallinu í 125 ml skiltrekt. Deiglan var síðan skoluð aftur með heitri 0,1 N HCl og hellt ofan af botnfaþinu í skilvinduglasinu. Aftur var skilið og flotinu hellt í sömu skiltrektina. Rúmmál lausnarinnar í skiltrektinni er nú 30 — 35 ml. 6. 1 ml af 2% ATCD (ammonium tet- ramethylene dithiocarbamate) er bætt í lausnina í skiltrektinni og blandað vel. ATDC-lausnin er búin til fyrir hverja mælingu. 7. 4 ml af MIBK (methylisobutylketon eða 4-methylpentan-2-one) látið í skiltrektina og hrist vel í eina mínútu. Fasarnir voru látnir aðskiljast í 15 mínútur og vatnsfasa hent. 8. Efri fasinn (MIBK) mældur í einda- litgleypinum. Fyrst voru mældir staðlar, þá sýni og síðan staðlar aftur. Staðlar. Notuð var kóboltklóríð-staðallausn frá BDH, 1 mg Co í 1 ml (1000 ppm). Þessi lausn var þynnt fyrir notkun í 0,10, 0,20, 0,30, 0,40, 0,60 og 0,80 ppm. Fyrir hverja mælingu voru útbúnir staðlar í MIBK. Þá var 30 ml af 0,1 N HCl
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.