Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Page 37

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Page 37
KÓBOLT f ÍSLENZKU GRASI 35 hellt í skiltrekt og 1 ml af þynntum staðli bætt í. 1 ml af staðli hrist í 4 ml MIBK gefur þá sama tölugildi í samanburði við heysýnin, svo að aflestur af staðalkúrfu sýnir þá beint ppm í heyinu. Ut í skil- trektina með staðlinum var bætt 1 ml af 2% ATDC-lausn og 4 ml af MIBK, eða jafnmiklu og notað var við heysýnin. Staðallausnirnar voru svo meðhöndlaðar eins og sýnin. Blönk sýni voru gerð með hverri brennslu með því að láta tóma deiglu fara gegnum öll skref mælingarinnar eins og hvert annað sýni. Þannig var fylgzt með hugsanlegri mengun úr umhverfinu og mæliefnum. Blönk sýni voru alltaf því sem næst laus við kóbolt miðað við þá mæli- nákvæmni, sem viðhöfð var. Endurheimtutilraun var gerð við hverja brennslu. 1 ml af 0,20 ppm staðli var þá sett í 1 g af sýni, þurrkað við 70°C, brennt og mælt á venjulegan hátt. Mynd 1 sýnir staðalferli, sem getur tal- izt einkennandi. I ljós kom, að það breytist dálítið frá degi til dags, sennilega vegna örlítið mismunandi stillingar á grafítofn- inum og vegna þess að grafítrörið smá- hrörnar við notkun, unz það að lokum eyðileggst. Þetta hefur ekki teljandi áhrifá niðurstöðurnar, vegna þess að staðalferli var mælt í hvert sinn, sem mælt var. Ferlið bognar, þegar gildin fara yfir eitthvert mark, nokkuð mismunandi frá degi til dags. Tilraunir voru gerðar með að nota 24 — 48 klukkustunda gamla staðla, sem voru fullbúnir til mælingar í MIBK, og virtust þeir ekki breytast neitt við þessa geymslu. Staðlar þynntir í vatni úr stofnlausn frá BDH voru hins vegar aldrei geymdir lengur en í 24 klst. Bæði er hætta á, að örverur vaxi í lausnum eins og þessum og viðloðun jóna við gler í ílátum breyti styrk þeirra í lausn. Alltaf voru notuð sýru- þvegin ílát við mælingarnar. Meðalendurheimta reyndist vera um 85%, minnst 50% og mest 110%. Tví- prufun bar alltaf ágætlega saman, svo að kóbolt hefur vart tapazt óskipulega úr sýnunum. Endurheimta úr tómri deiglu, þar sem staðall hafði verið þurrkaður og deiglan síðan látin ganga gegnum öskun- ina, leiddi í ljós 84% endurheimtu. Mælt var kóbolt í staðalsýni frá Na- tional Bureau of Standards, Washington D.C., möluð lauf ávaxtatrjáa (orchard leaves). Kóbaltgildi var gefið upp frá framleiðanda 0,2 ppm, en vio mælinguna fannst 0,16 ppm, sem getur talizt eðlilegt, þar eð framleiðandi gefur aðeins upp einn aukastaf og það með fyrirvara.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.