Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Page 44

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Page 44
42 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR höfum við rannsakað tæplega 50 þúsund mjólkursýni, og kom í ljós, að júgurbólgu- smit fannst í 48.34% rannsakaðra kúa, og í þeim reyndist júgurbólga vera í tæplega tveimur júgurhlutum hverrar kýr. Rann- sóknirnar beinast að kortlagningu júgur- bólgusmits í hverri hjörð, greiningu júg- urbólgugerla og næmisprófi gegn helztu fúkalyíjum á fundna klasagerla, — en gulir klasagerlar valda um 75% júgurból- gu samkv. þessum rannsóknum. Síðan eru hlutaðeigandi mjólkur- framleiðanda og dýralækni hans kynntar niðurstöður rannsóknanna og ráðlögð fullvirk lyf. Þeim er síðan ætlað í samein- ingu að heíja baráttuna gegn júgurbólg- unni. Rannsóknaraðferð. Tekin voru fjórum sinnum á ári, með sem jöfnustu millibili, mjólkursýni úr innveg- inni mjólk hvers mjólkurframleiðanda á svæðinu, og var í þeim rannsakað magn hvítra blóðkorna/ml. mjólkur og leitað júgurbólgugerla, einkum klasagerla (staph. aureus) og keðjugerilsins (str. ag- alaciae). Astæðan til áðurnefndra rannsókna var þessi: 1) Hvít blóðkorn (leucocytar) finnast alltaf í nokkru magni í mjólk, og er yfirleitt gert ráð fyrir, að það geti farið upp undir 500.000/ml. mjólkur, án þess að júgurbólgugerlar finnist í mjólkinni. Þó er þetta magn, miojafnt, og virðist láta nærri, að meðalmagn sé nær 300.000/ml. í geldmjólk og broddmjólk eru efna- hlutföll næringarefna að öðru leyti mjög frábrugðin því, sem er í mjólk. Auk þess er í þeirri mjólk mjög mikið af hvítum blóðkornum. Af þessum ástæðum er óheimilt samkvæmt reglu- gerð um mjólk og mjólkurvörur að blanda geldmjólk og broddmjólk í söl- umjólk. Er því könnun á hvítum blóð- kornum í innveginni mjólk nauðsynleg og veitir hugmynd um, hvort júgur- bólga er í mjólkurkúm framleiðenda. 2) Astæða til þess, að leitað var einkum þessara áðurnefndu júgurbólgugerla, er sú, að gulir klasagerlar (staf. aureus) eru oft mjög algengir í umhverfi kúa, þrífast vel t. d. á spenahúð og valda oft júgurbólgu. Júgurþólga getur verið á ýmsum stigum, og sé hún væg (dulin), fer hún fram hjá mjólkurframleiðanda og jafn- vel dýralækni við skoðun. Slíkt smit verður ekki greint nema á júgurbólgu- rannsóknarstofu og getur valdið út- breiðslu júgurbólgu í fjósi, t. d. með spenahylkjum, júgurklútum eða höndum mjaltafólks. Auk þess er vitað, þar sem penísillín hefur verið notað hömlulaust um langan tíma við júgur- bólgu, að gerillinn öðlast smám saman ónæmi fyrir lyfinu. Ná þá slíkir ónæmir gerlar undirtökum, og júgurbólga af þeirra völdum verður ekki kveðin niður með einhverju fúkalyfi, heldur aðeins með lyfi, sem reynist hafa fulla verkan, og til þess er aðstoð rannsóknarstofu nauðsynleg. Keðjugerillinn (str. agalactiae) er oft nefndur hinn eiginlegi júgurbólgu- gerill, vegna þess að hann þrífst ekki í umhverfi kúa, og sé honum útrýmt úr fjósi, kemst hann ekki þar inn, nema kýr keypt sé.að, smituð af honum. Hér er rétt að benda á, að erlendis er það víða skylda, að seldum kúm fylgi nýtt vottorð um júgurhreysti.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.