Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Qupperneq 47
JÚGURBÓLGA f ÍSL. KÚM 45
22.99%, tæplega einn júgurhluti í hverri
rannsakaðri kú. Þessar tölur eru háar og
benda til mikils tjóns af völdum júgur-
bólgu. Þó ber þess að gæta, að einkum
komu mjólkursýni til rannsóknar frá
býlum, sem teljast hafa verulegt júgur-
bólguvandamál, en skipulagðar júgur-
bólgurannsóknir ekki nógu umfangsmikl-
ar til þess að vera marktækar.
Gerlar, sem einkum valda júgurbólgu.
Margar gerlategundir, einkum klasa- og
keðjugerlar, geta valdið júgurbólgu.
Flestir þessara gerla lifa í umhverfi kúa,
einkum í óhreinindum utan á húð þeirra
og því einnig á spenahúð. Þessir gerlar lifa
sem sníkjugerlar í umhverfinu. Gulir kl-
asagerlar (staph. aureus) fmnast oft í
sárum, t. d. um hækilliði, eða við væga
legbólgu eftir burð. Þá má sjá grálita slím-
strauma, sem leka frá skeiðaropi niður á
milli júgurhluta, þegar legið dregur sig
saman (um 3 vikur). Því er eðlilegt, að
júgurbólga geri oft vart við sig, einkum í
fjósum, og þar er erfitt að komast fyrir
þessa gerla. Þó skal bent á gagnsemi þess
og vörn í því að nota spenadýfuefni (með
jodofór) á spena eftir mjaltir. Slík efni fást
nú hérlendis, bæði innflutt og einnig
framleidd innan lands (Sjöfn, Akureyri).
Joðhimna á spenum og spenaopi ver
gerlavöxt á spenahúð.
Smit með gulum klasagerlum (staph.
aureus) er langalgengast hér á landi.
Nærri liggur, að þeir valdi um 75% allrar
júgurbólgu hér. Margar tegundir keðju-
gerla eru þar einnig að verki, og er þar str.
agalactiae umsvifamestur, veldur um
helmingi keðjugerlasmitsins. Verður nú
getið hinna helztu, sem fundizt hafa árin
1970-77.
Fundnir júgurbólgugerlar (gerlastofnar)
Ár Gerlastofnar Fjöldi
1970 gulir klasagerlar
(s. aureus) 1004
aðrir klasagerlar 165
keðjugerlar 367 (þarafstr. agal. 161)
1971 gulir klasagerlar 1483
aðrir klasagerlar 85
keðjugerlar 538 (þar afstr. agal. 228)
1972 gulir klasagerlar 1678
aðrir klasagerlar 317
keðjugerlar 442 (þar afstr. agal. 195)
1973 gulir klasagerlar 1541
aðrir klasagerlar 76
keðjugerlar 522 (þar afstr. agal. 290)
1974 gulir klasagerlar 941
aðrir klasagerlar 60
keðjugerlar 212 (þar afstr. agal. 120)
1975 gulir klasagerlar 317
aðrir klasagerlar 24
keðjugerlar 74 (þar af str. agal. 54)
1976 gulir klasagerlar 319
aðrir klasagerlar 69
keðjugerlar 134 (þar af str. agal. 72)
1977 gulir klasagerlar 527
aðrir klasagerlar 13
keðjugerlar 177 (þar af str. agal. 72)
Júgurbólgulyf.
Mikilvægt er að geta upplýst, hvaða lyf
hafa fulla verkan til lækningar júgurbólgu.
Nokkuð er algengt, að t. d. penísillín hafi
enga verkan á smit með gulum klasagerl-
um, sem valda um 75% af júgurbólgu í
íslenzkum kúm. Astæðan er sú, að penís-
illín var fyrsta fúkalyf, sem á markað kom
og lofaði góðu. Hins vegar er það stað-
reynd, að hóflaus notkun þessa lyfs hefur
valdið ónæmi gulu klasagerlanna fyrir því.
Algengt er, að á stórum kúabúum, sem
vafalaust hafa barizt gegn júgurbólgu með
þessu lyfi um árabil, hafa gulu klasagerl-
arnir öðlazt mótstöðu gegn því. Þess
vegna er rannsakaður næmleiki þeirra
fyrir helztu júgurbólgulyfjum, sem skrás-
ett eru hér á landi. Fylgir hér með saman-