Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Page 57

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1979, Page 57
ÍSL. LANDBÚN. j. agr. res. icel. 1979 11, 1-2: 55-79 Áhrif dráttarvélaumferðar á jarðveg og gróður Óttar Geirsson Búnaðarfélag íslands Bœndahöllinni, Reykjavík. °g Magnús Óskarsson Bmdaskólinn, Hvanneyri. YFIRLIT Skýrt er frá þremur tilraunum, sem gerðar voru á Hvanneyri á árunum 1964—1975, til að meta þau áhrif, sem umferð dráttarvéla hefur á uppskeru og jarðveg. Uppskera mældist minni að vöxtum á þeim tilraunareitum, sem ekið var um, heldur en hinum. Munurinn var minnstur fyrstu árin, en fór vaxandi eftir því sem á leið og varð mestur 30-40% einstök ár. Meðal- uppskerurýrnun vegna umferðar var í öllum tilraununum þremur og öll ár tilraunanna 16%. Uppskerurýrnun varð hlutfallslega meiri á tilraunaliðum, sem ekki var borið á köfnunarefni, en á liðum, sem borin voru á 120 kg af köfnunarefni miðað við ha. Fram kom munur á gróðurfari umferðarreita og umferðarlausra reita. Vallarsveifgras hvarf jafnt úr umferðarreitum og umferðariausum, tunvigull hvarf miklu fremur úr umferðarreitum en umferðarlausum, en hlutdeild vallarfoxgrass jókst í umferðarreitum frá því, er var við sáningu. Votlendisjurtir eðajurtir, sem þrífast vel í raka, s.s. starir, fifu, varpasveifgras, skriðlíngresi, haugarfa og elftingar, var nær eingöngu að finna í umferðarreitum. Þar var mosi einnig meiri. Samhengi var milli uppskerurýrnunar og rakastigs jarðvegs, þegar ekið var um tilraunina að vori. Því rakari sem jarðvegurinn var við umferð, því meiri varð uppskerurýrnunin á umferðarreitunum það sumar. Við rakamælingar á jarðvegi reyndist meira vatn vera í jarðvegssýnum úr umferðarliðum heldur en hinum umferðarlausu. Efnagreiningar sýndu, að styrkleiki flestra næringarefna var svipaður í uppskeru af umferðarreitum og umferðarlausum. Minna var tekið upp afnæringarefnum, talið í kg afha, af umferðarreitum en umferðar- lausum, þar sem uppskera var minni af umferðarreitum, en styrkur næringarefna svipaður. Styrkur köfnunarefnis var meiri á umferðarlausum reitum en umferðarreitum, og var því upptaka á köfnunarefni mun meiri á úmferðarlausu reitunum en hinum. Ekki varð fundið, að kalk- eða sementsblöndun jarðvegs drægi úr skaðsemi umferðarinnar. INNGANGUR Árið 1944 hófst innflutningur hingað til lands á dráttarvélum, sem hentuðu við heyskap og áburðardreiíingu. Þetta voru nefndar heimilisdráttarvélar til aðgrein- ingar frá dráttarvélum, sem fyrst og fremst voru notaðar til jarðvinslu, en innflutn- ingur á þeim hófst árið 1918. Þær voru flestar í eigu búnaðar- eða ræktunarfélaga. Fyrstu heimilisdráttarvélarnar voru til- tölulega léttar, 500-1000 kg (Árni G. Eylands, 1950). Nú er algengt, að drátt- arvélar, sem notaðar eru við heyskap og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.