Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Síða 18
16 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
Kostnaður
Til að fá góða vinnuaðstöðu við mjaltir
verður í upphafi að leggja í nokkru meiri
stofnkostnað en ella, sem síðan þarf að
jafna á notkunartímann. Hér á eftir verður
reynt að gera nokkrar áætlanir í þessum
efnum, þó að ljóst sé, að mikill munur
getur verið á þeim forsendum, sem menn
gefa sér við þess háttar útreikninga.
Við slíka útreikninga er venjan að
greina á milli framleiðsluþáttanna bygg-
inga, tækjabúnaðar og vinnuafls. Vand-
inn er síðan fólginn í að ákvarða notkun
þessara þátta að magni til og hins vegar
verðlag þeirra á tiltekinni tímaeiningu.
Kostnaður vegna mjaltabása er tví-
þættur, þ. e. við mjaltabásinn sjálfan og
svo biðsvæði fyrir kýrnar, meðan þær bíða
mjöltunar. I þessum samanburði er valið
að miða við mjaltabása af ólíkum stærðum
og biðsvæði eftir fjölda mjólkandi kúa,
eins og fram kemur í 7. töflu.
Kostnaður vegna biðsvæðis er fundinn
með því að reikna verð á flatareiningu í
álíka stórum byggingareiningum og hér
um ræðir með einangrun og loftræstingu,
en án innréttinga. I mjaltabásnum verður
verð á fermetra nokkru hærra vegna
7. TAFLA.
Aætluð stærð mjaltabáss og biðsvæðis með hliðsjón
af kúafjölda.
TABLE 7.
Estimated size of milking parlour and waiting area accor-
ding to number of milking cows.
Stærð Fjöldi Stærð
mjaltabáss mjólkurkúa biðsvæðis, m2
Size of þarlour nr. of milking cows ^ize °f waiting
area,
2X3 ( 6 básar) (6 bay) 20—29 20
2X4 ( 8 básar) (8 bay) 30—49 25
2X5 (10 básar) (10 bay) 50—70 35
kostnaðar við gryfju og innréttinga án
mjaltakerfis. Þá er gert ráð fyrir heimatil-
búnum innréttingum úr galvaníseruðum
pípum og góðri lýsingu í mjaltabásnum.
Stofnkostnaður af galvanhúðuðum tækj-
abúnaði er áætlaður samkvæmt upplýs-
ingum frá söluaðilum, bæði kaupverð og
vegna uppsetningar á tækjum. í þeim
áætlunum er gert ráð fyrir þvottavél, en
ekki aukabúnaði eins og mjólkurmælum
(kútum) eða sogbreytum (duovac) og ekki
heldur fóðurskömmturum í mjaltabás.
Við bæði kerfin er gert ráð fyrir, að fjós séu
eins, að undanskilinni aukabyggingu
vegna mjaltabáss, og kostnaður vegna
fjóss sé því eins í báðum tilvikum. Sama
gildir um heygeymslur og mjólkurhús, og
eru þessar byggingar því ekki með í sam-
anburðarútreikningum. Við sama kúa-
fjölda er gert ráð fyrir sama fjölda af
mjaltatækjum og enn fremur, að í mjalta-
básunum séu eitt tæki á hverja tvo bása.
I 8. töflu er sýndur áætlaður stofnkostn-
aður við breytilegan kúafjölda. Má í
grófum dráttum segja, að stofnkostnaður
sé um þrefalt meiri við mjaltabása en við
kerfi á fjósbásum.
Við útreikninga á árlegum kostnaði við
hvort kerfi um sig og við breytilegan kúa-
fjölda er gert ráð fyrir eftirfarandi for-
sendum:
• vísitölu og launataxta í september
1981,
• að vextir af fjármagni í vélum og
byggingum séu 6% á ári,
• að byggingar séu afskrifaðar á 30 árum
og vélar á 10 árum (notuð línuleg
afskrift),
• að árlegur viðhaldskostnaður sé 3% af
stofnkostaði véla og 1,5% af stofn-
kostnaði bygginga,