Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Blaðsíða 38
36 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
almennt ganga lengur með en mjólkurk-
úakyn. Meðalfrávik meðgöngutíma er
fjórir til sex dagar.
Blendingstilraunir sýna, að líta rná
bæði á meðgöngutímann sem eiginleika
kýrinnar (móðurinnar) og fóstursins (af-
kvæmisins). Flestar tilraunir benda til, að
fóstrið hafi meiri áhrif en móðirin á lengd
meðgöngutíma. Þetta kemur m. a. fram í
því, að arfgengi, metið sem eiginleiki fóst-
ursins, reynist oft meira en arfgengi með-
göngutímans sem eiginleiki móðurinnar.
Talið er, að meðgöngutími fyrsta kálfs
kvígna sé skemmri en fullorðinna kúa.
Kýr ganga til jafnaðar heldur lengur
með nautkálf en kvígukálf. Þá hefur komið
í ljós, að meðgöngutími tvíkelfinga er
styttri en eins fósturs.
Ahrif burðartíma á lengd meðgöngu-
tíma virðast mjög breytileg. Líklegt er, að
slík áhrif séu tengd þáttum í meðferð og
fóðrun gripanna. Helstu áhrif fóðrunar á
lengd meðgöngutíma virðast þau, að mikil
fóðrun síðast á meðgöngutíma lengi hann.
RANNSÓKNAREFNI OG ÚRVINNSLUAÐFERÐIR
Gögnin, sem notuð eru í rannsókninni, eru
fengin úr skýrslum nautgriparæktarfé-
laganna frá árunum 1976—1979.
I skýrslum nautgriparæktarfélaganna
er ekki bundin skráning á fangdegi kúnna.
Þess vegna var byrjað á að fara yfir skýrsl-
urnar og velja úr þau bú, þar sem fang-
dagur var almennt skráður. Síðan voru
1. TAFLA.
Yfirlit yfir gögnin, sem notuð voru í rannsókninni.
TABLE 1.
Summary of the data used in the study.
gögnin könnuð og felldar út allar færslur,
sem féllu ekki á bilið 273—295 daga með-
göngu. Þannig fékkst sú vitneskja, sem
yfirlit er um í 1. töflu.
Síðar kom í ljós, að meðalmeðgöngu-
tími var annar en ætlað var í upphafl, og
var því bætt við meðgöngutíma upp að
300 dögum.
Fjöldi
Landssvæði búa Fjöldi meðgöngutíma
Number Number of geslation periods
County of herds 1977 1978 1979 Alls
Reykjaneskjördæmi ........................ 1 13 15 17 45
Vesturlandskjördæmi ..................... 11 185 182 188 555
Norðurlandskjörd. vestra ................. 8 121 127 120 368
Norðurlandskjörd. eystra ................ 30 657 694 735 2086
Austurlandskjördæmi ...................... 1 18 21 15 54
Suðurlandskjördæmi ...................... 14 305 320 301 926
Fjöldi alls:
Total number: ............................. 65 1299 1359 1376 4034