Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Side 24
22 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
upstungum. Tré voru svo fá á þessum
stöðum, að erfitt er um tölulegan saman-
burð. Þess skal þó getið, að tré þau, sem
skoðuð voru á Hallormsstað, virtust alveg
laus við barksár, en þessi tré voru ung.
2. Prófun á sýkingarhœfni ólíkra ísólata í berki
Lifandi börkur var smitaður með þeim 22
ísólötum, sem safnað hafði verið. Tíu
þeirra sýktu börkinn og uxu vel, en hin
ekki. Auðvelt var að fylgj as t með vextinum,
þar eð börkurinn verður brúnn og innfal-
linn, þar sem sveppurinn fer um.
Þeir sveppir, sem hraðast fóru, uxu um
7,2 mm á dag, en hinir hægustu um 3,0 mm
ádag, eftiraðvöxturinn varkominnafstað.
Aðjafnaði var ekki mikill munur á vaxtar-
hraða, eftir að vöxtur var kominn vel af
stað, en í mörgum tilvikum virtist sveppur-
inn vera lengi að ná fótfestu í berkinum, og
náðu þá aðrir miklu forskoti. ísólötin voru
víðs vegar að af landinu, flest úr kirkjugarð-
inum við Suðurgötu (S), önnur frá Akur-
eyri, (AK) Dalvík (D) Berufirði (SK),
Biskupstungum (H) og görðum í Reykja-
vík (B).
3. Akvörðun sveppísólatanna
Oll ísólöt, sem gátu vaxið í lifandi berki,
reyndust vera mjög lík í ræktun á kartöflu—
dextrósa-agar. Þau mynduðu fíngerða,
hvíta svepploðnu, sem tók á sig gulleitan
blæ eftir nokkurn tíma í ræktun. í enn eldri
ræktun mynduðust svartir hnúðar af
sveppþráðum, en gró mynduðust ekki á
tilbúnu æti. Svartar gróhirzlur með appels-
2. TAFLA
Vaxtarhraði ólíkra ísólata af Cytospora rubescens í berki af reyni (S. aucuparia).
Table 2.
Growth rate of different isolates of Cytospora rubescens in bark of rowan (S. aucuparia).
Vöxtur (mm) eftir Vöxtur (mm) eftir
fs<51at 6 daga (meðaltal af 10 daga (meðaltal af
5 mælingum. 5 mælingum.
Average Average
Isolate growth after growth after
6 days (mm) 10 days (mm)
52 ......................................................... 5,2 10,0
53 ......................................................... 6,8 11,0
55 ......................................................... 7,8 14,8 * *)
56 ......................................................... 3,4 6,2
57 ......................................................... 2,4 3,8
S10........................................................... 5,0 10,2
AK............................................................ 3,8 7,4
D ............................................................ 5,2 9,2
SK ........................................................... 9,0 14,2
B8 ........................................................... 6,8 11,2
H1 ........................................................... 3,8 5,8
*) munur á vaxtarhraða S5 annars vegar og H1 og S6 hins vegar er marktækur miðað við 95%
öryggismörk.
*) there is a significant difference (within 95% confidence limits) between the growth rates of isolate S5 and the slow
growing isolates Hl, S6 and S7.