Fréttablaðið - 05.12.2020, Page 4
Hvorki er hægt að
skikka dómara í leyfi, né
leysa þá frá embætti nema
með dómi.
Jólaskógurinn undirbúinn
DÓMSMÁL Staða landsréttardómar-
ans Jóns Finnbjörnssonar verður
tekin til skoðunar á næsta fundi
dómstólasýslunnar. Þetta kemur
fram í svari Sigurðar Tómasar
Magnússonar, hæstaréttardómara
og formanns stjórnar dómstóla-
sýslunnar.
Í svarinu segir að mál Jóns verði
tekið fyrir hjá stjórninni að því leyti
sem úrlausn þess snúi að hlutverki
dómstólasýslunnar. „Óþarft er að
taka fram að málið varðar ekki
aðeins starfsemi Landsréttar heldur
einnig viðkvæm persónuleg mál-
efni þess dómara sem í hlut á,“ segir
einnig í svari Sigurðar Tómasar.
Jón er eini dómarinn af þeim
fjórum sem dómur Mannréttinda-
dómstóls Evrópu í Landsréttarmál-
inu tekur til, sem ekki hefur fengið
nýja skipun við réttinn. Ásmundur
Helgason var skipaður að nýju 17.
apríl síðastliðinn, Arnfríður Einars-
dóttir 1. júlí og Ragnheiður Braga-
dóttir 15. september.
Hvorki er hægt að skikka dóm-
ara í leyfi, né leysa þá frá embætti
nema með dómi, vegna ákvæðis
stjórnarskrár um sjálfstæði dóms-
valdsins. Dómararnir fjórir hættu
að taka þátt í meðferð dómsmála
við réttinn þegar fyrri dómur MDE
var kveðinn upp í mars í fyrra og í
nóvember höfðu allir dómararnir
fjórir óskað eftir launuðu leyfi við
réttinn. Þar sem hinir þrír hafa allir
fengið nýja skipun við réttinn er
Jón sá eini sem enn er í leyfi vegna
Landsréttarmálsins.
Jón lenti í 30. sæti af 33 umsækj-
endum í mati dómnefndar í
aðdraganda fyrstu skipunar fimm-
tán dómara við réttinn. Hann fékk
4.325 stig í matinu en fékk samt
stöðu við réttinn og var tekinn fram
yfir fjóra umsækjendur sem höfðu á
bilinu 5,5 til 6,2 stig í matinu.
Með vísan til þess hve neðarlega
hann lenti í mati dómnefndar gæti
reynst torsótt fyrir hann að fá nýja
skipun með því að sækja aftur um
eins og hinir dómararnir þrír hafa
gert með árangursríkum hætti. – aá
Fundað verður
um stöðu Jóns
við Landsrétt
Sigurður Tómas
Magnússon, for-
maður stjórnar
dómstólasýsl-
unnar.
ME NNING Ofurparið Grýla og
Leppalúði hefur heimsótt Þjóð-
minjasafnið á aðventunni undan-
farin ár. Þar sem sóttvarnir og
krakkaskarar eiga litla samleið
verður heimsókn hjónanna í ár því
sýnd í beinni útsendingu á streymi.
Fréttablaðið hafði uppi á hjónun-
um og tók á þeim stöðuna í drunga-
legum heimkynnum þeirra.
„Það er náttúrulega bagalegt að
geta ekki hitt barnaskarann í eigin
persónu í Þjóðminjasafninu og
framkvæmt á þeim hefðbundnar
hegðunarrannsóknir,“ segir Grýla
og kroppar í risavaxna vörtu á kám-
ugu nefinu. „En við erum vön að
laga okkur að breyttum aðstæðum
og fögnum því að fá nú að komast
óáreitt í þessu svokallaða streymi
inn á hvert heimili.“
Sem áður verður megintilgangur
heimsóknarinnar að kanna hvort
börn landsins séu ekki örugglega
að haga sér vel.
„Við þurfum víst að athuga hvort
okkur sé ekki óhætt að senda strák-
ana okkar til byggða,“ frussar Grýla
framan í blaðamann.
Bóndi hennar og verri helmingur,
Leppalúði, tekur andfúll undir.
„Við erum búin að geyma þá í
marga mánuði einangraða í sóttkví
sem ég hlóð lengst uppi á fjöllum.
Við höfum passað rækilega upp á
tveggja kílómetra regluna.“
Grýla segir það hafa verið ómögu-
legt að halda jólasveinunum frá
byggðum en eins og sérhvert jóla-
barn veit þá er það frumburður
hjónanna Stekkjastaur sem mætir
fyrstur 12. desember.
„Strákarnir heimta að fá að fara
til byggða en ég ætla að leggja þá í
sprittbað í nokkra daga áður en þeir
leggja af stað!“ æpir Grýla ákveðin,
en Leppalúði hefur líka lagt sitt af
mörkum og dregur upp stærðarinn-
ar smjörhníf. „Ég er að tálga grímur
fyrir þá!“
Hjónin mælast svo til að allir
sprauti að minnsta kosti einum
lítra af spritti yfir skóinn og glugg-
ann bæði áður og eftir að gefið er í
skóinn, þá sérstaklega 21. desember
þegar röðin er komin að Gluggagægi.
Áður en gassagangur hjúanna
gerir út af við lýðinn mun tónlistar-
konan Ragnheiður Gröndal sjá um
að hita upp. Grýla er þó alls ekki
viss hvort hún sé á lista með þægu
börnunum.
„Það er eitt af því sem ég þarf
að athuga. En hún verður víst með
manninn sinn með sér í spila-
mennskunni og mér líst prýðilega á
hann... kannski hún vilji skipta við
mig á honum og Leppalúða...“ Her-
legheitin hefjast klukkan 14 á morg-
un og hægt er að finna streymið á
Youtube- og Facebook-síðum Þjóð-
minjasafnsins. Grýla minnir öll börn
á að vera stillt á sunnudaginn, það
er að segja, stillt inn á útsendinguna
góðu. arnartomas@frettabladid.is
Tæknivædd tröllahjón
í gassagangi á vefnum
Grýla og Leppalúði verða í beinu streymi frá Þjóðminjasafninu klukkan 14 á
morgun. Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal hitar upp. Grýla hefur áhyggjur
af jólasveinunum. Leppalúði segir þá hafa gætt að tveggja kílómetra reglunni.
Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal kemur fyrst fram en svo taka tröllin
við og munu örugglega leika á als oddi – eða ekki. MYND/ÞJÓÐMINJASAFNIÐ
Strákarnir heimta
að fá að fara til
byggða en ég ætla að leggja
þá í sprittbað í nokkra daga
áður en þeir leggja af stað!
Grýla
Jólaskógur Skógræktarfélags Reykjavíkur verður opnaður í fyrsta sinn fyrir þessi jól í dag klukkan 11 á Hólmsheiði skammt ofan við Rauðavatn. Hefð
er á mörgum heimilum fyrir að ganga til skógar, velja tré og fella eigin hendi og þykir það ómissandi þáttur í undirbúningi jólanna. Þó að um jólaskóg sé
að ræða verður allra sóttvarna gætt og sagirnar sótthreinsaðar á milli gesta. Skógurinn verður opinn þessa helgi og tvær þær næstu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær uppgreiðslugjald
sem Íbúðalánasjóður hafði krafist
og innheimt vegna uppgreiðslu láns
ólögmætt og dæmdi sjóðinn til að
greiða stefnendum tæpar 3,8 millj-
ónir króna og dráttarvexti.
Innheimta uppgreiðslugjalds-
ins, sem byggðist á reglugerð um
gjaldskrá sjóðsins, var ekki talin
hafa næga stoð í lögum og af þeirri
ástæðu ekki nægur grundvöllur
fyrir innheimtunni. Um var að tefla
16 milljóna króna lán sem tekið
var 2008 og greitt upp í desember
í fyrra.
Í fréttum Ríkisútvarpsins í gær-
kvöldi kom fram að dómurinn
væri fordæmisgefandi fyrir fjölda
lántaka sjóðsins og taldi lögmaður
stefnenda að sjóðnum bæri að end-
urgreiða hátt á annan tug milljarða
til þúsunda lántaka. Búast má við að
dóminum verði áfrýjað. – jþ
Ólögmætt gjald
við uppgreiðslu
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð