Fréttablaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 8
Þetta mál byrjaði
ekki í janúar 2019.
Það spannar áratugi.
Gunnar Ingi Jóhannsson,
lögmaður Aldísar
DÓMSMÁL Sérstakt þinghald var í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær um
vitnaleiðslur í meiðyrðamáli Jóns
Baldvins Hannibalssonar gegn
dóttur sinni Aldísi Schram, RÚV og
útvarpsmanninum Sigmari Guð-
mundssyni.
Ágreiningur er um öll f jögur
vitnin sem Aldís vill leiða fram.
Gunnar Ingi Jóhannsson, lög-
maður Aldísar, sagði mikilvægt
að leiða vitnin fjögur fram. Þau
myndu sýna fram á að ummælin
sem hún lét falla í Morgunútvarpi
Rásar 2 í janúar árið 2019 væru ekki
gripin úr lausu lofti. Ummælin fjór-
tán sem Jón Baldvin vill fá ómerkt
lúta meðal annars að ásökunum
um barnagirnd, sifjaspell og ólög-
lega nauðungarvistun.
„Þetta mál byrjaði ekki í janúar
2019. Það spannar áratugi,“ sagði
Gunnar. Væri það vilji Aldísar að
varpa ljósi á málið í heild sinni.
Vitni Aldísar eru Margrét Schram
og Sigríður H. Richards, sem áður
hafa stigið hafa fram í fjölmiðlum
og lýst meintum brotum Jóns Bald-
vins. Hildigunnur Hauksdóttir,
dóttir Margrétar, sem hafði nafn-
laust lýst því í MeToo-hópi að Jón
Baldvin hefði áreitt hana tíu ára.
Loks séra Arndís Ósk Hauksdóttir
sem vann á geðdeild í Reykjavík.
Fallið var frá fimmta vitninu.
„Alveg ljóst er að þessi vitni geta
ekki borið neitt fram um ómerk-
ingu þessara ummæla,“ sagði
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lög-
maður Jóns Baldvins, fyrir dómi í
gær. Meint háttsemi Jóns Baldvins
og MeToo-sögur hefðu ekkert með
sakarefni meiðyrðamálsins að gera.
Þá gagnrýndi Vilhjálmur sér-
staklega að séra Arndís yrði leidd
fram. Hún væri ekki einu sinni
vitni að brotum á geðdeildinni
sjálf, heldur hefði heyrt um þau
frá starfsfólki deildarinnar eða í
slúðursögum.
Von er á úrskurði um vitnin fyrir
jól en aðalmeðferð málsins sjálfs
verður á næsta ári. – khg
Deilt í héraðsdómi um vitni Aldísar í meiðyrðamáli föður hennar
UNDIRBÚÐU JÓLIN Á
HAFNARTORGI
Við tökum vel á móti þér og minnum
á öll bílastæðin í bílakjallaranum.
REYKJAVÍK „Þetta er ekkert leyndar-
mál. Það var farið í þessa tæmingu
án samráðs við skipulagsyfirvöld
í Reykjavík,“ segir Björn Axels-
son, skipulagsfulltrúi í Reykjavík.
Hyggst hann skila stýrihóp um Ell-
iðaárdal minnisblaði um þá ákvörð-
un Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að
tæma Árbæjarlón varanlega.
Stíf lan var byggð fyrir rúmri öld,
Elliðaárvirkjun hefur ekki verið
í notkun síðustu sex ár. Lónið var
tæmt í lok október síðastliðins.
„Samkvæmt gildandi deiliskipu-
lagi frá árinu 1994 og þessu nýja
skipulagi sem bíður samþykktar
borgarstjórnar, þá er gert ráð fyrir
vatnsyfirborði þarna fyrir ofan
lónið. Það hefur afgerandi áhrif
á ásýnd á umhverfið og umgjörð
dalsins. Vatnsyfirborð er yfirleitt
fest í deiliskipulag og varanleg
tæming lónsins er því ekki í sam-
ræmi við þá áætlun,“ segir Björn.
„Það er búið að koma þessum upp-
lýsingum á framfæri og það er verið
að skoða hvað verður gert í fram-
haldi af því.“
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku-
veitunnar, segir sjónarmið skipu-
lagsfulltrúans koma fyrirtækinu
mjög á óvart. Orkuveitan telji sig
enda ekki hafa brotið gegn deili-
skipulagi.
„Ákvörðunin um að tæma Árbæj-
arlón varanlega var unnin í samráði
við fulltrúa umhverfis- og skipu-
lagssviðs og komu engar athuga-
semdir þar fram,“ segir Bjarni. Líkt
og hann hafi sagt telji Orkuveitan
sér óheimilt að reka lón sem ekki
hafi lengur tilgang.
„Heimildir okkar til að stýra
vatnshæðinni eru háðar því að
verið sé að vinna rafmagn. Vinnslu
á rafmagni var hætt árið 2014 en til
stóð að ræsa stöðina að nýju þar til
á síðasta ári. Við munum verða í
samstarfi við Umhverfis- og skipu-
lagssvið um framhald málsins,“
segir Bjarni.
Borgarráð skipaði stýrihóp um
Elliðaárdal í nóvember. Björn
Gíslason, borgar fulltrúi Sjálf-
stæðisf lokksins sem á sæti í stýri-
hópnum, segir vinnubrögð OR
vekja furðu, ekki hafi verið beðið
umsagna skipulagsyfirvalda, Nátt-
úrufræðistofnunar, Minjastofn-
unar eða íbúa. „Orkuveitan verður
að fylla lónið á ný. Það er ekkert
annað í stöðunni,“ segir Björn.
„Ég vil finna lausn á þessu. Þarna
geti verið lón og laxastigi. Eins og
staðan er núna þá er búið að vinna
skemmdarverk.“
Þorkell Heiðarson, formaður
íbúaráðs Árbæjar og formaður
stýrihópsins, segir þetta mikið til-
finningamál fyrir Árbæinga.
„Það má líkja þessu við, ef þú
býrð í miðbænum, að það væri
einn daginn búið að þurrka upp
Reykjavíkurtjörn. Þér yrði ekki
skemmt,“ segir Þorkell. „Fyrir þá
sem hafa alist þarna upp og búa
þarna, þá er lónið snar þáttur af
daglegu umhverfi. Þegar svona er
gert og með svona bráðum hætti,
þá er fólki brugðið. Mér varð það
sjálfum.“
Varðandi framhaldið bíði stýri-
hópurinn minnisblaðs skipulags-
fulltrúa. arib@frettabladid.is
Eins og að Tjörnin yrði tæmd
Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík segir þá ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur að tæma Árbæjarlón varanlega
ekki samræmast deiliskipulagi. Formaður stýrihóps borgarinnar líkir þessu við tæmingu Tjarnarinnar.
Árbæjarlón hefur verið tæmt árlega á vorin en Orkuveitan tæmdi lónið á dögunum til frambúðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eins og staðan er
núna þá er búið að
vinna skemmdarverk.
Björn Gíslason,
borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins
Það var farið í þessa
tæmingu án sam-
ráðs við skipulagsyfirvöld í
Reykjavík.
Björn Axelsson,
skipulagsfulltrúi í
Reykjavík
Ákvörðunin um að
tæma Árbæjarlón
varanlega var unnin í
samráði við fulltrúa um-
hverfis- og
skipulags-
sviðs.
Bjarni Bjarnason,
forstjóri Orku-
veitu Reykjavíkur
MANNVIRKI Vinna stendur enn við
að rífa upp gólfið í keppnissalnum
í Laugardalshöll en leki kom upp í
salnum um miðjan nóvember. Hann
kom upp þegar lögn brast en unnið
var að nýrri snyrtiaðstöðu í tengi-
byggingu.
„Staðan miðað við daginn í dag er
að enn er verið að rífa upp gólfið í
salnum enda er sú vinna umfangs-
mikil og seinleg. Áætlað magn af
timbri, grindarefni og parketi, er
um 50-60 tonn og því mikið magn
um að ræða,“ segir Birgir Bárðarson,
framkvæmdastjóri Laugardalshall-
ar í samtali við Fréttablaðið.
„Núna þremur vikum frá tjóni er
enn nokkur raki að skila sér í park-
etsalnum.“ – hó
Enn vart raka í
Hallarparketinu
BANDARÍKIN Gítarar hins nýlátna
Eddie Van Halen seldust á tugmillj-
ónir á stóru uppboði Juliens í Beverly
Hills sem lauk á miðvikudag. Van
Halen sem lék með samnefndri
hljómsveit er almennt talinn einn
allra færasti rokkgítarleikari sög-
unnar en hann lést úr krabbameini
í byrjun október, 65 ára að aldri.
Sá munur sem seldist fyrir hæstu
fjárhæðina var sérhannaður Kra-
mer-gítar með hinu þekkta mynstri
Van Halen, rauður með hvítum og
svörtum línum. Seldist hann á tæp-
lega 30 milljónir króna. Hvítur Fen-
der Stratocaster gítar með svörtum
línum sem Van Halen notaði í upp-
hafi ferilsins seldist á tæpar 18 millj-
ónir. – khg
Gítarar seldust
á tugmilljónir
Eddie með Kramer-gítar árið 1984.
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð