Fréttablaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 14
Kínverjar vörðu 163
milljörðum króna á árunum
2012 - 2017 í margs konar
veðurbreytingatilraunir.
Auglýsing
Tillaga að nýju deiliskipulagi
við Laugargerðisskóla,
Eyja og Miklaholtshreppi
Hreppsnefnd Eyja og Miklaholtshrepps samþykkti á fundi sínum
3. desember 2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi við Laugargerðis-
skóla skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögu að deiliskipulaginu eru skilgreindar 11 nýjar einbýlis- og
parhúsalóðir fyrir 13 íbúðir, ásamt 7 hesthúsalóðum. Tillagan liggur
frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hofsstöðum, 342 Stykkishólmi
frá 5. desember til 16. janúar 2021 og á heimasíðu Eyja-og Miklaholts-
hrepps, www.eyjaogmikla.is
Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipu-
lagsfulltrúa í síðasta lagi 16. janúar 2021 á heimilisfangið Hjallatangi 34,
340 Stykkishólmi eða á netfangið: bygg@eyjaogmikla.is
Stykkishólmi 4.12.2020
Ragnar Már Ragnarsson
Skipulagsfulltrúi Eyja-og Miklaholtshrepps
Eyja og Miklaholtshrepps
Auglýsing
Tillaga að deiliskipulagi
Miðhrauni 2,
Eyja-og Miklaholtshreppi
Hreppsnefnd Eyja-og Miklaholtshrepps samþykkti á fundi sínum 3.
desember 2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í landi Miðhrauns
2, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan
felur í sér heimild til byggingar á náttúrulegri baðlaug og lóni auk þjón-
ustubyggingu. Tillaga þessi er í samræmi við breytingu á aðalskipulagi
sveitarfélagsins sem er í auglýsingu.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hofsstöðum, 342
Stykkishólmi frá 5. desember til 16. janúar 2021 og á heimasíðu Eyja-og
Miklaholtshrepps www.eyjaogmikla.is
Athugasemdir eða ábendingar skulu berast skipulagsfulltrúa í síðasta
lagi 16.janúar 2021 á heimilisfangið Hjallatanga 34, 340 Stykkishólmi
eða á netfangið: bygg@eyjaogmikla.is
Stykkishólmi 4.12.2020
Ragnar Már Ragnarsson
Skipulagsfulltrúi Eyja-og Miklaholtshrepps
Eyja og Miklaholtshrepps
SKRÁÐU ÞIG Á
PÓSTLISTANN
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Nánar á
kronan.is/
jolahladbord
KÍNA Kínverjar tilkynntu í vikunni
um að aukinn kraftur verði lagður í
tilraunaverkefni stjórnvalda um að
ná að stjórna, eða hafa áhrif á, veð-
urfar á tilteknu svæði. Svæðið sem
verður undir í tilrauninni verður
um 5,5 milljónir ferkílómetra að
stærð sem er um helmingi stærra
landsvæði en Indland. Á hinu víð-
feðma svæði verður reynt að grípa
inn í váleg veður, hvort sem um er
að ræða óveður eða of mikinn hita.
Þetta kemur fram í umfjöllun CNN.
Í tilkynningu frá Ríkisráði Kína
kemur fram að Kínverjar stefni á að
hafa byggt upp þróað veðurbreyt-
ingakerfi fyrir árið 2025. Hinar
metnaðarfullu fyrirætlanir byggjast
á framþróun í vísindastarfi í tengsl-
um við veðurbreytingar.
Kína hefur lengi stefnt að því að
ná tökum á veðurfari til að verja
landbúnaðar f ramleiðslu f y r ir
áföllum og ekki síður tryggja að
vel viðri á stórviðburði. Þannig var
mikið púður lagt í að tryggja sól og
blíðu þegar Sumarólympíuleikarnir
í Peking fóru fram árið 2008 en þá
var skotið með fallbyssum á skýja-
bólstra. Aðferðin, svokallaðri skýja-
sáningu, er beitt þegar kínverski
Kommúnistaf lokkurinn heldur
stóra viðburði í höfuðborginni en þá
er verksmiðjum einnig iðulegt gert
að loka tímabundið til að draga úr
mengun.
Kenningarnar að baki skýja-
sáningar hafa verið þekktar lengi
en vafi hefur verið á því hvort að
þær virki. Aðferðin byggist á því að
silfurjoði er skotið upp í andrúms-
loftið. Silfurjoðið orsakar efnahvörf
þegar það kemst í tæri við vatnsgufu
og afleiðingin verður úrkoma.
Fyrr á árinu birti Bandaríski vís-
indasjóðurinn niðurstöður rann-
sóknar þar sem niðurstaðan var að
skýjasáning gæti aukið tíðni snjó-
komu á stóru svæði ef aðstæður
væru hagstæðar. Um var að ræða
eina fyrstu rannsókn þess efnis að
skýjasáning virkaði í raun og veru.
Þrátt fyrir óvissuna um virkni
aðferðarinnar stöðvaði það ekki
kínversk stjórnvöld í að verja um
163 milljörðum króna á árunum
2012-2017 í margs konar veður-
breytingatilraunir og rannsóknir.
Samkvæmt þarlendum fjölmiðl-
um hafa stjórnvöld haft árangur
sem erfiði en samkvæmt ríkismiðli
Kína, Xinhua, tókst að minnka
skaða vegna haglélja um 70 prósent
í Xinjiang, helsta landbúnaðar-
svæðinu.
Ýmis ríki heims hafa áhyggjur af
að þessar tilraunir geti haft ófyrir-
séðar afleiðingar á veðurfar annarra
landa. bjornth@frettabladid.is
Setja aukinn kraft í að
beisla veðurguðina
Kínversk stjórnvöld hyggjast setja aukinn kraft í tilraunir til að hafa áhrif á
veðurbreytingar. Kínverska ríkið hefur varið miklu fé í rannsóknir og tilraun-
ir. Áhyggjur eru uppi um áhrif þessa á veðurkerfi annars staðar í heiminum.
Liðsmenn kínverska hersins tilbúnir að hefja skýjasáningu á Ólympíuleikunum í Peking 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð