Fréttablaðið - 05.12.2020, Page 39
þurfa þau aðstoð við að leita að fjár-
mögnun, gera áætlun, finna mark-
hóp og svo framvegis.“
Í upphafi var Regína eini starfs-
maður sjóðsins ytra en í dag hefur
hún ráðið fimm starfsmenn sér við
hlið. „Fjórir þeirra eru frá Síerra
Leóne og svo ein stelpa frá Hollandi.“
Regína hóf samstarf með íslensk-
um hönnuðum fyrir þremur árum
sem þróuðu vörur með það að leiðar-
ljósi að hægt væri að framleiða þær
í Sierra Leone og þannig gæti hand-
verksfólk þar aflað tekna.
„Ég byrjaði á að kortleggja hvers
lags handverk væri verið að vinna í
Síerra Leóne og fékk aðstoð frá Sig-
ríði Sigurjónsdóttur hönnuði við
það mat. Markmiðið var nefnilega
að vera ekki að flytja inn efni heldur
nýta það sem er á staðnum. Við
fengum íslensku hönnuðina AsWe-
Grow, KronKron og Hugdettu til að
koma með okkur út og skoða hvað
þeir gætu unnið með þar,“ útskýrir
Regína.
„Þetta var mikið bómullarrækt-
unarland en sú framleiðsla stöðvað-
ist í stríðinu. Við höfum aftur á móti
hvatt þá ræktendur sem enn eru
með starfsemi þó lítil sé, til að rækta
meira. Við lofum þeim þá að kaupa
allt sem þeir rækta.“
Mikill leir er í jörð Síerra Leóne
og því var ákveðið að styðja við ker-
amikverkstæði og hefja keramik-
skóla. „Okkur langaði svolítið að
byggja brú milli þess sem við höfum
verið að gera á Íslandi og þess sem
við erum að gera í Síerra Leóne,
tengja saman handverksfólkið þar
og hönnuðina hér. Framleiðslan er
auðvitað enn á miklu frumstigi en
markmiðið er að skapa útflutnings-
tekjur fyrir þau og aðstoða þau við
að framleiða fallegar vörur, eitthvað
annað en bara týpíska minjagripi og
þess háttar.“
Verkefnið gengur undir nafninu
Sweet Salone og hafa vörurnar feng-
ist í verslunum Barr Living, Hönn-
unarsafni Íslands og hjá As We Grow.
Átti svo að að halda glæsilegan jóla-
markað í Mengi nú um helgina en
vegna samkomutakmarkana var
fallið frá því, aðstandendur eru
þó hvergi af baki dottnir og verða
vörurnar til sölu í vefversluninni
aurorawebshop.com og hægt er að
skoða þær í Mengi, enda engar tvær
vörur eins.
„Salan í heimalandinu er svo alltaf
að aukast og hugmyndin er að fara
með vörurnar á sýningar í Evrópu
þegar framleiðslugetan er orðin
næg,“ segir Regína og bætir við að
þau séu alltaf að byggja getuna upp.
Skortur á vatni og rafmagni
Aðspurð um helstu áskoranirnar
sem fylgi því að búa og starfa í van-
þróuðu Afríkuríki segir Regína það
helst vera þessar daglegu áskoranir
eins og að fá rafmagn, internet og
vatn.
„Við erum með rennandi vatn í
íbúðinni okkar en alls ekkert alltaf.
Rafmagn er af rosalega skornum
skammti svo ég er búin að láta setja
Vörur hannaðar af teymi Hugdettu
og framleiddar í Síerra Leóne.
upp sólarrafhlöður á skrifstofunni
svo ég sé ekki spúandi dísilrafstöð
á hverjum degi. Þegar börnin koma
heim úr skólanum er það fyrsta sem
heyrist: „Mamma, er internet? Má ég
sturta niður?“,“ segir Regína og hlær.
Hún segir áskoranirnar einnig oft
birtast í samstarfi við fólk þó sam-
skiptin séu almennt jákvæð.
„Skólaganga heimamanna er svo
lítil og flestir sem eru nú á milli tví-
tugs og þrítugs fóru ekki í barnaskóla
því öll starfsemi lá niðri á stríðsárun-
um. Þannig myndast því mikið bil.
Þrjátíu prósent handverksfólksins
sem við vinnum með eru ólæs, því
getur verið erfitt að afhenda fólki
teikningar með skrifuðum leið-
beiningum og stærðarhlutföllum og
svo framvegis. Þetta hefur því verið
mikill lærdómur, að vinna með fólki
og skilja hvert annað.“
Enn eina áskorunina segir Regína
vera að vinna sér inn traust heima-
manna.
„Aðkomumaðurinn er alltaf að
koma og að lofa að gera eitthvað
sem svo kannski stenst ekki. Fólk
sem starfar fyrir ýmis hjálparsam-
tök er til að mynda oftast aðeins í um
tvö ár í landinu og er fólk því orðið
þreytt á að kynnast sífellt nýjum og
læra að treysta. Einn kannski byrjar
á stóru verkefni og vinnur að því í
tvö ár og svo hefur sá sem tekur við
engan áhuga á einmitt því. Ég upp-
lifði það mikið í byrjun að fólk átti
erfitt með að treysta mér, en nú veit
fólk að ef við segjum að við ætlum
að gera eitthvað á næsta ári, verður
staðið við það.“
Aðeins 21 litur til í landinu
Í upphafi vann Regína heiman frá sér
í Síerra Leóne en þegar starfsmönn-
um fór að fjölga leigðu þau skrif-
stofuhúsnæði undir starfsemina.
„Við ákváðum þá að allt væri
hannað inn í rýmið en tvær í stjórn-
inni eru hönnuðir og tóku það að sér.
Húsgögnin voru svo öll framleidd
af heimamönnum.“ Regína segir
óvanalegt að lagt sé í slíkan kostnað
og fyrirhöfn og því hafi skrifstofan
vakið athygli allra sem hana hafi
heimsótt.
„Fólk spyr sig því: „Ha? Er ég
ennþá í Síerra Leóne?“ Og svarið
er: Allt hér inni er einmitt frá Síerra
Leóne,“ segir Regína og brosir og
segir smiðina hafa fengið önnur
verkefni út á þetta.
„Svo er annað, í Síerra Leóne eru
aðeins 21 litur og ekki er hægt að fá
þá blandaða. Þessi 21 litur er því alls-
ráðandi í landinu og á öllum húsum.
Þegar við létum mála skrifstofuna
blönduðum við litina sjálf og málar-
arnir höfðu aldrei upplifað annað
eins. Þeim fannst þetta geggjað! Við
gáfum þeim því litapallettu svo þeir
gætu séð hvernig þeir geta blandað
liti.
Það er hægt að hafa svo mikil áhrif
með einhverju sem okkur finnst svo
sjálfsagt,“ segir Regína.
Opið alla virka daga frá kl. 8.30 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 16 fram að jólum.
Öll tilboð gilda út desember 2020 eða meðan birgðir endast.
Jól 2020
Jólabæklingur Smith & Norland er kominn út.
Glæsilegar vörur á sérstöku jólaverði.
Espressó-kaffivél,
EQ.6
TE 651319RW
Glæsileg vél sem útbýr tvo kaffibolla
í einu með einum hnappi. Hraðvirk
upphitun. Hljóðlát kaffikvörn úr keramík.
Snertiskjár með myndum. Þrýstingur:
15 bör. Hreinsar mjólkurkerfi með gufu
eftir hverja notkun.
Fullt verð: 219.900 kr.
Jólaverð:
177.900 kr.
Vöfflujárn, mínútu-
og samlokugrill.
SWG 700
700 W. Kjörið til að grilla samlokur,
pinnamat og útbúa bragðgóðar
belgískar vöfflur.
Fullt verð: 16.900 kr.
Jólaverð:
13.500 kr.
Stadler Form
Rakatæki
Eva little
Vatnstankur tekur fjóra lítra. Afköst
mest 320 g/klst. Herbergisstærð: Allt
að 50 m2.
Fullt verð: 21.900 kr.
Jólaverð:
16.900 kr.
Uppþvottavélar,
iQ 300
SN 43HS60CE (stál)
SN 43HW60CE (hvít)
14 manna. Sex kerfi, þar á meðal
hraðkerfi 65° C (klukkustund). Fjögur
sérkerfi, meðal annars tímastytting.
Hnífaparaskúffa. Zeolith®-þurrkun.
Hljóð: 44 dB.
Orkuflokkur
Skaftryksuga,
Serie 2
BCHF 216B
16 V. Ryksuga með skafti og
handryksuga. Hver hleðsla endist í
allt að 40 mín.
Fullt verð: 29.900 kr.
Jólaverð:
23.900 kr.
Artic
Borðlampar
AN68009-01/15
6 W, LED. Fáanlegir í hvítu og svörtu.
Fullt verð: 18.900 kr.
Jólaverð:
14.900 kr.
Fullt verð: 149.900 kr.
Fullt verð: 139.900 kr.
Jólaverð (stál):
Jólaverð (hvít):
119.900 kr.
114.900 kr.
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 37L A U G A R D A G U R 5 . D E S E M B E R 2 0 2 0