Fréttablaðið - 05.12.2020, Page 44
VARMA hefur síðastliðin ár unnið að þróun íslensku ull-arinnar í samstarfi við Ístex
og kynnti í haust nýtt íslenskt
lambsullarband. „Við höfum
undanfarin ár unnið að þróun á
nýju bandi úr íslenskri lambsull
í samstarfi við Ístex. Lambsullin
er með þynnri og mýkri hárum
en hefðbundin ærull og stingur
því ekki eins og hún. Við þróun
bandsins var farið í gegnum alla
meðhöndlunarferla frá rúningu
til frágangs á fullunnum vörum og
leitað leiða til að bæta meðferðina
á hráefninu, meðal annars með
því að fara yfir í náttúruleg efni í
meðferð ullarinnar og bandsins
við þvott, þurrkun og ýfingu,“
segir Sigrún Halla Unnarsdóttir,
fatahönnuður.
„Það er lítið kolefnisfótspor
af okkar vörum samanborið við
innfluttar ullarvörur,“ bætir Sig-
rún við. „Undirstaðan í starfsemi
okkar er íslenska ullin sem býr
yfir einstökum eiginleikum eins
og fólk þekkir vel. Hún er létt og
hlý, andar vel og hrindir frá sér
vatni. Eingöngu náttúrulegar
uppsprettur eins og hreint vatn
eru notaðar sem orkugjafar við
framleiðslu íslenska ullarbandsins
en sauðkindin sjálf, sem gefur af
sér ullina, er frjáls á beit í haga á
sumrin og nærist einkum á grasi
sem vex á ósnortnu landi. Nátt-
úruleg hráefni eru alltaf vistvænni
kostur en gerviefni og við teljum
okkur því vera að bjóða upp á afar
vistvæna vöru,“ segir hún.
„Framleiðslufyrirtækið er stað-
sett í Reykjavík, en það er orðið
fáheyrt í dag að slíkur iðnaður sé
starfræktur í Norður-Evrópu. Við
erum að því leyti algjörir geirfuglar
og erum stolt af því. Aðal hráefnið
okkar, íslenska ullin, er unnin og
úr henni framleitt í upprunalandi
sínu. Við trúum á þess konar verð-
mætasköpun. Við sköpum störf á
Íslandi, eflum mannlífið og síðast
en ekki síst berum við virðingu
fyrir náttúrunni.“
Þegar Sigrún er spurð hvaða
hönnuðir verði í pop-up verslun-
inni, svarar hún: „Við erum svo
lánsöm að það eru fjölmargir
hönnuðir sem velja að framleiða
hjá okkur.
Með okkur í búðinni eru vöru-
merkin MAGNEA, Vík Prjónsdótt-
ir, Margrethe Odgaard fyrir Epal,
AD, Hullupullur og UELI. Þessir
hönnuðir eru með kápur, peysur,
trefla, teppi og hugleiðslupúða.
Það sem við heyrum frá
hönnuðum er hvað þeim finnst
mikilvægt að geta unnið úr ull-
inni í upprunalandi hennar og að
þeir viti nákvæmlega hverjir séu á
bak við framleiðsluna. Allar boð-
leiðirnar eru styttri og sveigjan-
leikinn meiri. Svo eru hönnuðir
að sjálfsögðu hæstánægðir með þá
þróunarvinnu sem átt hefur sér
stað með ullina og við stefnum á
að gera enn betur.“
Hvert er framhaldið hjá
VARMA?
„Við hlökkum til að taka á móti
gestum í miðbænum í pop-up
versluninni og svo tekur við
áframhaldandi vöruþróun með
vörur úr lambsullarbandi. Einnig
tökum við glöð á móti hönnuðum
sem vilja vinna með þetta frábæra
hráefni,“ segir hún.
Auk VARMA í pop-up versluninni
verða hönnuðir sem eiga það
sameiginlegt að framleiða vörur
sínar í verksmiðju VARMA í Ármúl-
anum í Reykjavík.
VARMA opnar pop-up búð
Í miðjum heimsfaraldri ákvað VARMA að snúa vörn í sókn, opna pop-up verslun á Skólavörðu-
stíg, leggja sitt af mörkum til að skapa góða stemningu og bjóða vandaðar íslenskar vörur.
Sigrún Halla Unnarsdóttir og Brynhildur Pálsdóttir hönnuðir eru með vöru-
merkin sín AD og Vík Prjónsdóttur til sölu í versluninni en þar fæst fjöldi
fallegra hönnunarvara frá ýmsum hönnuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Pop-up verslun VARMA er á Skóla-
vörðustíg en þar fást fallegar vörur.
Sjálfur jólasveinninn getur ekki ferðast um lofthelgi Bandaríkjanna án þess
að herinn fylgist vel með ferðum hans um himinskautin. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Bandaríski herinn fylgist vel með ferðum bandaríska jólasveinsins á hverju ári og
birtir upplýsingar um þær á vef-
síðunni noradsanta.org þannig að
áhugasamir geti fylgst með.
NORAD er deild innan banda-
ríska hersins sem sér um loft-
varnir Bandaríkjanna og fylgist
stöðugt vandlega með lofthelgi
landsins. Deildin er búin hár-
nákvæmum mælitækjum af
nýjustu og dýrustu gerð og með
þeim getur hún fylgst með ferða-
lagi jólasveinsins sem heim-
sækir Bandaríkin, en hann býr á
Norðurpólnum.
Áður fyrr hvíldi mikil leynd yfir
ferðalögum sveinka og enginn
vissi hvenær hann kæmi til þeirra,
en nú er öldin önnur og það kemst
enginn upp með að svífa um loft-
helgi Bandaríkjanna án þess að
haukfrán augu ameríska hersins
taki eftir. Jólasveinninn heim-
sækir samt börn aldrei á meðan
þau vaka, svo þau geta ekki fylgst
með honum koma til sín.
Vefsíðan fer í fullan gang fyrsta
desember ár hvert.
Herinn vaktar
jólasveininn
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R