Fréttablaðið - 05.12.2020, Page 46

Fréttablaðið - 05.12.2020, Page 46
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Spilaborg tók upp á því á þessu ári að gefa aftur út tvö forn-fræg borðspil, Útvegsspilið og Hættuspil. Bæði spilin nutu gríðarlegra vinsælda á Íslandi á fyrri árum en framleiðslu þeirra hafði verið hætt svo þau voru orðin svo gott sem ófáanleg þrátt fyrir mikla eftirspurn. Nú er loks hægt að fá spilin aftur og sala þeirra er í fullum gangi á vefnum spilaborg.is. Næstum eins og þeir væru að endurskrifa Laxness „Sú hugmynd að gefa Útvegsspilið út aftur kom upp fyrir sjö árum. Þá fór ég að leita að því og komst að því að það var illfáanlegt, en ansi margir væru að leita að því. Ég fann notuð spil á netinu og bauð í þau en ítrekað gafst ég upp þegar verðið á þeim var að nálgast 100 þúsund krónur,“ segir Stefán Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Spilaborgar. „Fyrst ætlaði ég bara að gera eitt spil til persónulegrar notkunar og ég hafði uppi á Hauki Halldórssyni, listamanninum sem hannaði spilið upphaflega árið 1977. Við ákváðum svo bara að gefa spilið út aftur. Núna í lok maí fórum við af stað og ákváðum að opna á forsölu á spilinu 17. júní og viðtökurnar voru rosalegar. Það ruku út 1.500 spil á nokkrum dögum,“ segir Stefán. „Þá var næsta skref að upp- færa skipaflotann á sama tíma og við pössuðum okkur að breyta spilinu ekkert og stytta okkur ekki leið varðandi frágang eða annað. Við fundum að þessu fylgdi mikil ábyrgð, þetta spil hafði mikla þýðingu fyrir sumar kynslóðir, þarna var komin beintenging við góðar stundir í æskunni. Þetta var næstum eins og við værum að endurskrifa Star Wars eða Halldór Laxness! Allir vildu fá þetta gamla og góða spil.“ Handsmíðað á Íslandi „Við ákváðum að gera þetta allt hérna á Íslandi og fundum meira að segja sama pappírinn og var notaður í peningaseðlana í gamla daga því við vildum hafa allt nákvæmlega eins,“ segir Stefán. „Svo réðumst við í að handsmíða og mála hús og skip og setja þau saman af alúð fyrir hvert einasta spil. Ef þau væru öll sett saman í röð gætu þau myndað fjögurra kílómetra lengju, þetta var svo mikið, og engin tvö eru eins. Við fengum líka sjávarút- veginn með okkur í leið og fengum meira að segja þann heiður að sjálfur forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, skrifaði innganginn fyrir spilareglurnar, sem gefur vísbendingu um hversu stóran sess þetta spil skipar í íslenskri menningu,“ segir Stefán. „Svo hélt Landhelgisgæslan athöfn í höfn- inni í Reykjavík þar sem varðskip mættust og flautuðu á hvort annað og komu svo að bryggju þar sem ég beið með syni mínum og sjávar- útvegsráðherra til að afhenda forstjóra gæslunnar fyrsta spilið, alveg eins og var gert árið 1977. Spilið hefur fengið frábærar viðtökur og er að verða uppselt, en það kemur ekki annað upplag á næstunni, þannig að þeir sem vilja eignast það verða að hafa hraðar hendur, því það verður búið löngu fyrir jól,“ segir Stefán. Margir vildu Hættuspilið „Í kjölfar útgáfu Útvegsspilsins fór fólk að hafa samband við okkur og óska eftir hinum og þessum spilum og margir töluðu um Hættuspilið, sem við þekktum og vorum hrifnir af. Þannig að við höfðum samband við CCP sem eiga réttindin, en spilið var upp- hafið að veldi þeirra,“ segir Stefán. „Þau sögðust hafa verið að bíða eftir rétta tækifærinu til að gefa spilið út á ný og því var ákveðið að keyra bara á þetta fyrir þessi jól og framleiða spilið allt á Íslandi, rétt eins og Útvegsspilið. Við tilkynntum forsölu og strax fyrsta daginn seldust um 1.500 spil og síðan hefur það selst jafnt og þétt. Þetta er örugglega í fyrsta sinn sem borðspil rokselst svona í forsölu og það er ljóst að það er mikill spilaáhugi og eftirspurn eftir þessum gömlu góðu,“ segir Stefán. „Svo fengum við Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr líka til að taka aftur þátt, en þeir skipuðu stórt hlutverk í spilinu sem Siggi sýra og Amma.“ Nýir leikstílar og ný spil „Þetta er búið að vera heilmikið fjör og við fengum frábær fyrir- tæki með okkur og uppfærðum þann hluta af spilinu. Svo er líka skemmtileg nýjung sem fylgir því,“ segir Stefán. „Það er hægt að spila það á gamla góða mátann en það er líka hægt að spila án teninga og þá hefur leikmaðurinn meira ákvörðunarvald í stað þess að elta bara teninginn. Við erum spenntir fyrir þessu og teljum að þetta muni virka mjög vel. Við erum á fullu að keppast við klára útgáfuna, spilið er í prentun og íhlutir eru að koma í hús, en við settum aftur meiri alúð í spilið en nauðsynlegt er. Við vinnum svo allan sólarhringinn við að ganga frá og afhenda spilin í þeirri röð sem þau eru keypt, svo fyrstir koma, fyrstir fá, en við ætlum að koma öllum spilunum út fyrir jól,“ útskýrir Stefán. „Við komum svo með nokkur spil á nýja árinu, bæði gömul klassísk spil og ný, meðal annars framhald af Útvegsspilinu þar sem þú siglir um allan heim og upplifir stærra ævintýri en áður.“ Sala á Útvegsspilinu og forsala á Hættuspilinu er í fullum gangi á heimasíðunni spilaborg.is. Því fyrr sem fólk kaupir, því fyrr fær það sitt eintak afhent. Stefán segir að það hafi verið lögð gríðarleg alúð og vinna í endurgerð spilanna svo þau standi undir væntingum fólks og þau séu eins og þau gömlu. Viðtökurnar hafa verið gríðarlega góðar og það er augljóslega bæði mikill spilaáhugi og áhugi á þessum klassísku spilum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Margir hafa leitað til Spila- borgar og óskað eftir að kaupa Hættu- spilið. Stefán segir að það hafi verið ljóst að endurútgáfunni fylgdi mikil ábyrgð, því Útvegsspilið hafði mikla þýðingu fyrir sumar kynslóðir. Allir vildu fá þetta gamla og góða spil. MYND/AÐSEND Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ 5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RSPILAJÓL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.