Fréttablaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 46
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Spilaborg tók upp á því á þessu ári að gefa aftur út tvö forn-fræg borðspil, Útvegsspilið
og Hættuspil. Bæði spilin nutu
gríðarlegra vinsælda á Íslandi á
fyrri árum en framleiðslu þeirra
hafði verið hætt svo þau voru orðin
svo gott sem ófáanleg þrátt fyrir
mikla eftirspurn. Nú er loks hægt
að fá spilin aftur og sala þeirra er í
fullum gangi á vefnum spilaborg.is.
Næstum eins og þeir væru að
endurskrifa Laxness
„Sú hugmynd að gefa Útvegsspilið
út aftur kom upp fyrir sjö árum. Þá
fór ég að leita að því og komst að
því að það var illfáanlegt, en ansi
margir væru að leita að því. Ég fann
notuð spil á netinu og bauð í þau en
ítrekað gafst ég upp þegar verðið
á þeim var að nálgast 100 þúsund
krónur,“ segir Stefán Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri Spilaborgar.
„Fyrst ætlaði ég bara að gera eitt
spil til persónulegrar notkunar og
ég hafði uppi á Hauki Halldórssyni,
listamanninum sem hannaði spilið
upphaflega árið 1977. Við ákváðum
svo bara að gefa spilið út aftur.
Núna í lok maí fórum við af stað
og ákváðum að opna á forsölu á
spilinu 17. júní og viðtökurnar
voru rosalegar. Það ruku út 1.500
spil á nokkrum dögum,“ segir
Stefán. „Þá var næsta skref að upp-
færa skipaflotann á sama tíma og
við pössuðum okkur að breyta
spilinu ekkert og stytta okkur ekki
leið varðandi frágang eða annað.
Við fundum að þessu fylgdi mikil
ábyrgð, þetta spil hafði mikla
þýðingu fyrir sumar kynslóðir,
þarna var komin beintenging við
góðar stundir í æskunni. Þetta
var næstum eins og við værum að
endurskrifa Star Wars eða Halldór
Laxness! Allir vildu fá þetta gamla
og góða spil.“
Handsmíðað á Íslandi
„Við ákváðum að gera þetta allt
hérna á Íslandi og fundum meira
að segja sama pappírinn og var
notaður í peningaseðlana í gamla
daga því við vildum hafa allt
nákvæmlega eins,“ segir Stefán.
„Svo réðumst við í að handsmíða
og mála hús og skip og setja þau
saman af alúð fyrir hvert einasta
spil. Ef þau væru öll sett saman í
röð gætu þau myndað fjögurra
kílómetra lengju, þetta var svo
mikið, og engin tvö eru eins.
Við fengum líka sjávarút-
veginn með okkur í leið og fengum
meira að segja þann heiður að
sjálfur forseti Íslands, Guðni Th.
Jóhannesson, skrifaði innganginn
fyrir spilareglurnar, sem gefur
vísbendingu um hversu stóran
sess þetta spil skipar í íslenskri
menningu,“ segir Stefán. „Svo hélt
Landhelgisgæslan athöfn í höfn-
inni í Reykjavík þar sem varðskip
mættust og flautuðu á hvort annað
og komu svo að bryggju þar sem ég
beið með syni mínum og sjávar-
útvegsráðherra til að afhenda
forstjóra gæslunnar fyrsta spilið,
alveg eins og var gert árið 1977.
Spilið hefur fengið frábærar
viðtökur og er að verða uppselt,
en það kemur ekki annað upplag á
næstunni, þannig að þeir sem vilja
eignast það verða að hafa hraðar
hendur, því það verður búið löngu
fyrir jól,“ segir Stefán.
Margir vildu Hættuspilið
„Í kjölfar útgáfu Útvegsspilsins fór
fólk að hafa samband við okkur
og óska eftir hinum og þessum
spilum og margir töluðu um
Hættuspilið, sem við þekktum og
vorum hrifnir af. Þannig að við
höfðum samband við CCP sem
eiga réttindin, en spilið var upp-
hafið að veldi þeirra,“ segir Stefán.
„Þau sögðust hafa verið að bíða
eftir rétta tækifærinu til að gefa
spilið út á ný og því var ákveðið að
keyra bara á þetta fyrir þessi jól og
framleiða spilið allt á Íslandi, rétt
eins og Útvegsspilið.
Við tilkynntum forsölu og strax
fyrsta daginn seldust um 1.500
spil og síðan hefur það selst jafnt
og þétt. Þetta er örugglega í fyrsta
sinn sem borðspil rokselst svona
í forsölu og það er ljóst að það er
mikill spilaáhugi og eftirspurn
eftir þessum gömlu góðu,“ segir
Stefán. „Svo fengum við Sigurjón
Kjartansson og Jón Gnarr líka til
að taka aftur þátt, en þeir skipuðu
stórt hlutverk í spilinu sem Siggi
sýra og Amma.“
Nýir leikstílar og ný spil
„Þetta er búið að vera heilmikið
fjör og við fengum frábær fyrir-
tæki með okkur og uppfærðum
þann hluta af spilinu. Svo er líka
skemmtileg nýjung sem fylgir því,“
segir Stefán. „Það er hægt að spila
það á gamla góða mátann en það
er líka hægt að spila án teninga
og þá hefur leikmaðurinn meira
ákvörðunarvald í stað þess að elta
bara teninginn. Við erum spenntir
fyrir þessu og teljum að þetta
muni virka mjög vel.
Við erum á fullu að keppast við
klára útgáfuna, spilið er í prentun
og íhlutir eru að koma í hús, en við
settum aftur meiri alúð í spilið en
nauðsynlegt er. Við vinnum svo
allan sólarhringinn við að ganga
frá og afhenda spilin í þeirri röð
sem þau eru keypt, svo fyrstir
koma, fyrstir fá, en við ætlum að
koma öllum spilunum út fyrir jól,“
útskýrir Stefán. „Við komum svo
með nokkur spil á nýja árinu, bæði
gömul klassísk spil og ný, meðal
annars framhald af Útvegsspilinu
þar sem þú siglir um allan heim og
upplifir stærra ævintýri en áður.“
Sala á Útvegsspilinu og forsala á
Hættuspilinu er í fullum gangi á
heimasíðunni spilaborg.is. Því fyrr
sem fólk kaupir, því fyrr fær það
sitt eintak afhent.
Stefán segir að það hafi verið lögð gríðarleg alúð og vinna í endurgerð
spilanna svo þau standi undir væntingum fólks og þau séu eins og þau
gömlu. Viðtökurnar hafa verið gríðarlega góðar og það er augljóslega bæði
mikill spilaáhugi og áhugi á þessum klassísku spilum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Margir
hafa
leitað til
Spila-
borgar
og óskað
eftir að
kaupa
Hættu-
spilið.
Stefán segir að það hafi verið ljóst að endurútgáfunni fylgdi mikil ábyrgð,
því Útvegsspilið hafði mikla þýðingu fyrir sumar kynslóðir. Allir vildu fá
þetta gamla og góða spil. MYND/AÐSEND
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RSPILAJÓL