Fréttablaðið - 05.12.2020, Page 49
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
Verkís leitar að öflugu starfsfólki
Verkís er að bæta við sig starfsfólki vegna aukinna verkefna.
Við viljum jákvæða einstaklinga með góða samskipta- og skipulagshæfni sem sýna metnað,
frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Mikilvægt er að umsækjendur hafi gott vald á íslensku og ensku.
Verkís er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Yfir
300 manns starfa hjá fyrirtækinu að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Unnið er með breiðum hópi
viðskiptavina s.s. opinberum fyrirtækjum, stofnunum, sveitarfélögum og einkaaðilum.
Nánari upplýsingar veita
Elín Greta Stefánsdóttir mannauðsstjóri, egs@verkis.is
Áslaug Ósk Alfreðsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum, aoa@verkis.is
Umsóknarfrestur er til og með 17. desember n.k. Sótt er um á umsokn.verkis.is
Hönnuður á sviði jarðtækni
Starfið felur í sér verkefni tengdum samgöngu mannvirkjum, s.s. vegum, götum, höfnum, flug-
völlum og jarðgöngum en einnig öðrum mannvirkjum s.s. byggingum, virkjunum og ýmsum
varnarmannvirkjum.
Verkefnin fela m.a. í sér vinnu við hönnun, rannsóknir og sýnatökur, skýrslu- og matsgerð, útboðs-
og verklýsingagerð, þverfaglega teymisvinnu, o.fl.
Háskólapróf í jarðtækniverkfræði
• Reynsla á sviði jarðtækniverkfræði er æskileg
• Reynsla í notkun teikniforrita, s.s. AutoCAD og Civil 3D er kostur
• Reynsla í notkun hönnunarforrita, s.s. Geostudio, Holebase eða annað er kostur
• Þekking á Norðurlandatungumáli eða reynsla frá Norðurlöndunum er kostur
Hönnuður á sviði veitna og ofanvatnslausna
Starfið felur í sér verkefni á sviði byggðatækni með áherslu á vatns- og fráveituhönnun, s.s.
lagnahönnun, hönnun veitumannvirkja, sam ræmingarhönnun veitustofnanna, ræsa hönnun og
hönnun blágrænna ofanvatnslausna.
Verkefnin fela m.a. í sér vinnu við hönnun, útboðs- og verklýsingagerð, rannsóknir og skýrslugerð,
samræmingu faga, þverfaglega teymisvinnu, o.fl.
Háskólapróf í umhverfis-, byggingar- eða véla verk fræði eða tæknifræði
• Reynsla á sviði veituhönnunar er æskileg
• Reynsla í notkun teikniforrita, AutoCAD og Civil 3D er æskileg
• Reynsla í notkun hönnunarforrita s.s. Civil 3D, SewerGEMS, WaterCAD, Fluidit, eða annað er kostur
• Þekking á Norðurlandatungumáli eða reynsla frá Norðurlöndunum er kostur
Hönnuður á sviði flugvalla-, vega- og gatna gerðar
Starfið felur í sér verkefni tengdum hönnun samgöngumannvirkja, s.s. flugvalla, flughlaða, vega,
gatna, göngu- og hjólastíga.
Verkefnin fela m.a. í sér vinnu við hönnun, útboðs- og verklýsingagerð, skipulag og kortlagningu
umferðaröryggis, samræmingu faga, þverfaglega teymisvinnu, o.fl.
Háskólapróf í samgöngu- eða byggingarverkfræði/-tæknifræði
• Reynsla á sviði vega- og gatnahönnunar er æskileg
• Reynsla á sviði flugvallahönnunar er kostur
• Reynsla í notkun teikni- og hönnunarforrita, AutoCAD, Civil 3D, Nova Point, AviPLAN, er kostur
• Þekking á íslenskum og norskum reglum, stöðlum og handbókum er kostur
• Þekking á flugvallastöðlum og reglum frá EASA er kostur
• Þekking á Norðurlandatungumáli eða reynsla frá Norðurlöndunum er kostur
Ofanleiti 2 I verkis@verkis.is I 422 8000
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára