Fréttablaðið - 05.12.2020, Síða 53
Viðskiptaþróunardeild er ábyrg fyrir sölu og markaðssetningu á vörum og þjónustu við viðskiptavini
félagsins. Viðskiptaþróun leitar að metnaðarfullum starfsmanni til að fylgja eftir nýjum og spennandi
viðskiptatækifærum erlendis.
VIÐSKIPTAÞRÓUNARSTJÓRI
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Sala á lyfjum og lyfjatengdu hugviti til
samheitalyfjafyrirtækja erlendis
• Styrkja núverandi viðskiptasambönd og þróa ný
sambönd
• Afla nýrra viðskiptatækifæra og þjónusta viðskiptavini
fyrirtækisins
• Tilboðsgerð, samningaviðræður og samningagerð
• Viðskiptaþróunarstjóri vinnur þvert á deildir
Coripharma til að tryggja að viðskiptahagsmunir
tengdir samningum fyrirtækisins nái fram að ganga
Við leitum að einstaklingi:
• Sem hefur 3-5 ára reynslu í lyfjaiðnaði
• Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Með reynslu af viðskiptaþróun eða sambærilegu í
alþjóðlegu viðskiptaumhverfi
• Sem hefur áhuga á sölumennsku og getur unnið undir
álagi
• Að hafa þekkingu og/eða reynslu af samningagerð er
kostur
• Sem býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum, er
úrræðagóður og hefur léttleikann að leiðarljósi
• Sem er tilbúinn að ferðast í tengslum við vinnu sína
• Með mjög góða enskukunnáttu
Coripharma er fyrirtæki í lyfjaiðnaði
sem þróar og framleiðir lyf fyrir
viðskiptavini á erlendum mörkuðum.
Frá því að félagið hóf starfsemi
árið 2018 hefur það keypt alla
lyfjaframleiðslu og lyfjaþróun Actavis
á Íslandi og hefur síðan þá verið í örum
vexti. Í dag starfa rúmlega 130 manns
hjá Coripharma. Nánari upplýsingar
um Coripharma má finna
á www.coripharma.is
Til að fylgja eftir nýjum og spennandi
viðskiptatækifærum leitum við nú
að þremur ferskum starfsmönnum
sem eru tilbúnir að taka þátt í frekari
uppbyggingu fyrirtækisins með okkur.
Umsóknir óskast fylltar út
á www.hagvangur.is.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu
rökstudd.
Umsóknarfrestur er til og með
14. desember 2020.
Nánari upplýsingar um störfin veitir
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir,
ráðgjafi, stefania@hagvangur.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ábyrgð á kostnaðarútreikningum á lyfjum framleiddum
hjá Coripharma
• Innleiðing á ferlum varðandi slíka kostnaðarútreikninga,
allt frá áætlun til framleiðslu
• Ábyrgð á markaðsverðsútreikningum á nýjum vörum á
mismunandi mörkuðum og innleiðing viðeigandi ferla
• Stuðningur við viðskiptaþróun við gerð verðtilboða fyrir
vörur og þjónustu Coripharma
• Yfirumsjón með uppgjörum og innheimtu samninga um
markaðstengd verð
• Ábyrgð á viðskiptagreiningum
• Tengiliður viðskiptaþróunar, framleiðslu-, fjármála- og
þróunarsviðs varðandi sölu- og kostnaðaráætlanir
Við leitum að einstaklingi:
• Með háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. B.S. í
verkfræði eða viðskiptafræði
• Reynsla í viðskiptagreiningum og skýrslugerð er kostur
• Sem er talnaglöggur og með gott vald á Excel
• Sem er metnaðarfullur, hefur góða samskiptahæfileika
og býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og þróa nýtt
starf
• Með mjög góða enskukunnáttu
• Bakgrunnur úr vörustjórnun eða framleiðslu er kostur
Coripharma leitar að metnaðarfullum starfsmanni til að þróa og innleiða nýtt starf innan fyrirtækisins,
sem snýr að kostnaðarútreikningum og verðlagningu framleiddra lyfja. Verkefnin eru fjölbreytt og
starfsmaðurinn mun vinna þvert á deildir Coripharma.
SÉRFRÆÐINGUR Í VERÐLAGNINGU
OG VIÐSKIPTAGREININGUM
Gæðasvið leitar að metnaðarfullum starfsmanni í stjórnunarstöðu á einni af deildum sviðsins. Margir
af lykilferlum Coripharma eru á ábyrgð deildarinnar, verkefnin fjölbreytt og krefjandi og því eru mikil
samskipti við aðrar deildir og einnig við erlenda viðskiptavini.
DEILDARSTJÓRI GÆÐAEFTIRLITSDEILDAR
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Dagleg umsýsla sem og fjárhagsleg afkoma
deildarinnar
• Fagleg uppbygging deildarinnar og að sett markmið
náist
• Þjálfun starfsmanna deildarinnar
• Daglegt gæðaeftirlit á aðföngum og framleiðsluvöru
• Samþykkt mastera
• Umhverfiseftirlit
Við leitum að einstaklingi sem:
• Hefur háskólamenntun í raungreinum sem nýtist í starfi
• Hefur reynslu í tengslum við lyfjaframleiðslu
• Hefur frábæra samskipta- og samstarfshæfileika
• Er sjálfstæður, nákvæmur og vanur skipulögðum
vinnubrögðum
• Hefur metnað til að ná árangri í starfi
• Hefur hæfni til að miðla þekkingu og upplýsingum á
íslensku og ensku
• Býr yfir góðri almennri tölvuþekkingu
STÖRF Í BOÐI HJÁ ÖRT VAXANDI
ÍSLENSKU NÝSKÖPUNARFYRIRTÆKI