Fréttablaðið - 05.12.2020, Side 54
Umsóknir óskast fylltar út á https://festi.is/atvinna ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi
þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 14. desember.
Öllum umsóknum verður svarað og fullum trúnaði heitið.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Festi hf. er eignarhaldsfélag sem í dag rekur fimm rekstrarfélög,
N1, Krónuna, Elko, Bakkann vöruhótel og Festi fasteignir.
Dagleg starfsemi félagsins skiptist annars vegar í rekstur stoð-
þjónustu fyrir rekstrarfélögin og hins vegar í fjárfestingarstarfsemi.2017 - 2020
Ábyrgðarsvið:
• Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsmannahaldi deildar
• Yfirumsjón með verkefnum deildar
• Stefnumótun deildar og þátttaka í stefnumótun Festi
• Yfirumsjón með skipulagningu og þróun ferla
í reikningshaldi
• Þátttaka og skipulagning ýmissa umbótaverkefna
• Ýmis önnur tilfallandi verkefni í samráði við
framkvæmdastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf á meistarastigi, með áherslu á stjórnun og fjármál
• Viðskiptafræðimenntun af endurskoðunar- eða fjármálasviði
• Góð reynsla af stjórnun og sköpun liðsheildar
• Mikil þekking á sviði bókhalds og uppgjörum stærri fyrirtækja
• Reynsla af störfum á endurskoðunarskrifstofu æskileg
• Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
• Jákvætt viðmót, rík færni í samskiptum og stjórnun
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björg Ársælsdóttir, bjorg@festi.is.
Forstöðumaður Reikningshalds
FESTI hf. leitar að traustum og metnaðarfullum einstaklingi í starf forstöðumanns
Reikningshalds. Við leitum að einstaklingi sem sækist eftir krefjandi starfsumhverfi
og hefur afburða hæfileika í mannlegum samskiptum og metnað til að ná
árangri í starfi.
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
Ert þú ekki gera ekki neitt týpa?
Skjalastjóri
Motus óskar eftir að ráða öflugan bókasafns- og
upplýsingafræðing í starf skjalastjóra.
Skjalastjóri hefur yfirumsjón með skjalastýringu fyrirtækisins, viðheldur verklagsreglum
og stefnu fyrirtækisins í skjalamálum og sér um almenna fræðslu til starfsmanna um
skjalastjórn. Skjalastjóri ber ábyrgð á skönnun skjala, hefur umsjón með ritstjórn á innri
vef fyrirtækisins og utanumhald á gæðaferlum og gæðahandbók.
Til greina kemur að viðkomandi hafi umsjón með gæðastjórnun fyrirtækisins og taki
þátt í vinnu við sjálfvirknivæðingu vinnuferla.
EKKI GERA EKKI NEITT er grundvöllur fyrirtækjamenningar Motus, en innri gildi
starfsmanna eru hjálpsemi, frumkvæði, jákvæðni, vinnusemi og umburðarlyndi.
Í boði er skemmtilegt starfsumhverfi, metnaðarfullir samstarfsmenn, afburða
upplýsingakerfi og öflugt fyrirtæki.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á og umsjón með skjalastefnu fyrirtækisins og
verklags við skjalastjórnun
• Skönnun, skráning og frágangur skjala
• Ritstjórn á innri vef
• Fræðsla um upplýsinga- og skjalastjórn til starfsmanna
• Ábyrgð á gæðahandbók og skráningu verkferla
• Umsjón lagers með markaðsefni, umslög, bréfsefni o.fl.
• Umsjón með sérfræðibókasafni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfinu s.s. í bókasafns-
og upplýsingafræði
• Þekking og reynsla af skjalastjórnun kostur
• Frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
• Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
• Þekking á Fakta og SharePoint æskileg
• Vera „ekki gera ekki neitt" týpa
Motus ehf. er leiðandi fyrirtæki
á sviði kröfustjórnunar (Credit
Management Services).
Hjá Motus starfa rúmlega 130
starfsmenn á 11 starfsstöðvum
um land allt. Meðal viðskipta-
vina Motus eru m.a. fjölmörg
af stærstu fyrirtækjum og
stofnunum landsins.
Motus er samstarfsaðili Intrum
Justitia, sem er markaðsleið-
andi fyrirtæki í Evrópu á sviði
kröfustjórnunar.
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg D. Hjaltadóttir mannauðsstjóri Motus (sibba@motus.is)
Vinsamlegast sækið um á heimasíðu okkar www.motus.is.
Umsóknarfrestur er til og með 13. desember 2020.
Ráðið verður í starfið sem fyrst.
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R