Fréttablaðið - 05.12.2020, Side 74
Þrátt fyrir að hafa verið starf-andi í einni eða annarri mynd í 28 ár hefur Nexus
aldrei verið með nægilega góða
vefverslun fyrr en nú á þessu ári.
Tilraunir voru gerðar, sem ekki
báru árangur sem skyldi, og alltaf
stóð til að gera næstu tilraun en
það dróst á langinn vegna annarra
anna, eins og til dæmis að opna
Nexus-búð í Kringlunni og flytja
okkur um set yfir í enn stærra hús-
næði í Glæsibæ, sem var töluvert
átak.“
Þetta segir Gísli Einarsson,
eigandi Nexus, og bætir við að far-
sóttin COVID-19 hafi gefið Nexus
spark í rassinn.
„Þá var ekki annað hægt en
að spýta í lófana og koma net-
versluninni almennilega af stað.
Nexus reynir svo alltaf að gera
sem mest innanhúss, með því að
nýta reynslu og þekkingu starfs-
fólksins, og því var vefnum ekki
útvistað heldur var það samstillt
átak starfsfólksins í Nexus að raða
inn vörum í vefverslunina og koma
henni í loftið.“
Á venjulegum degi eru yfir 20
þúsund mismunandi vörur til sölu
hjá Nexus í kjallaranum í Glæsibæ.
„Það mun taka tíma sinn að
koma öllu okkar vöruúrvali inn
í vefverslunina en í dag eru þar
um 10 þúsund mismunandi vörur
og bætist við í hverri viku. Þetta
verður stórt verkefni næstu árin,
því fyrir utan að koma vörum inn
bíður mikil vinna við að setja inn
lýsingar á þeim á íslensku og aðrar
gagnlegar upplýsingar,“ upplýsir
Gísli.
Spil vinsælasta jólagjöfin
Spil eru það allra vinsælasta í vef-
verslun Nexus nú.
„Spilasala hefur tekið mikinn
kipp síðustu mánuði,“ segir Gísli.
„Borðspil hafa alla tíð verið vinsæl
jólagjöf á Íslandi og hér áður fyrr
voru jólin eini tími ársins þar sem
gripið var í borðspil. Þetta hefur
nú breyst og hópur þeirra sem
spila reglulega í góðra vina hópi
hefur stækkað gríðarlega.“
Breidd í borðspilum sé auk þess
orðin svo mikil að allir geti fundið
sér spil við hæfi.
„Til eru alls konar spil sem
flokkast ekki sem hefðbundin
borðspil en spilast samt við borð
með öðru fólki og eiga sér dyggan
aðdáendahóp. Þar eru safnkorta-
spil mjög vinsæl, eins og Magic the
Gathering, Pokémon og Yu-Gi-Oh.
Líka herkænskuspil með mód-
elum, eins og Warhammer og Star
Wars-spilið X-Wing sem standa
alltaf fyrir sínu.“
Mesta breytingin í spila-við-
borð-heiminum undanfarin ár,
fyrir utan samfellda aukna sölu
síðan í hruninu 2009 til 2010, er
tvenns konar, að sögn Gísla:
„Það er stórfelld endurkoma
hlutverkaspila/spunaspila,
með Dungeons & Dragons í
fararbroddi, og svo uppgangur
partíspila sem eru hönnuð til að
spila í smáum sem stórum hópum
og reiða sig oftar en ekki á kímni
og fyndnar eða vandræðalegar
uppákomur, frekar en keppni til
sigurs.“
Þægileg og örugg vefverslun
Sem stendur miðast fjöldatak-
markanir við tíu viðskiptavini
og óvíst hvað tekur við eftir 9.
desember og fram að jólum.
„Verslun Nexus í Glæsibæ er stór
og rúmgóð, með breiðum göngum,
og getur tekið við mörgum í einu
og samt nóg pláss fyrir hvern og
einn. Við höfum ekki farið þá leið
að skipta versluninni upp til að
koma fleirum inn. Við skiljum að
þessar takmarkanir eru gerðar
af illri nauðsyn, til að lágmarka
aðstæður þar sem smit getur orðið
og að best sé fyrir alla að farið sé
eftir fyrirmælum sóttvarnayfir-
valda og ekki reynt að fara á svig
við þær. Þó vonumst við til að
aðstæður í desember gefi tilefni til
aukningar á fjölda viðskiptavina,“
segir Gísli.
Í dag nýta viðskiptavinir Nexus
sér vefverslunina og sækja vör-
urnar í anddyri Glæsibæjar.
„Það lítur allt út fyrir að fólk
muni almennt versla mun meira á
vefnum fyrir þessi jól en nokkru
sinni fyrr, bæði vegna þægindanna
og af nauðsyn,“ segir Gísli.
Rafræn gjafabréf gleðja
Vinsæll spilasalur Nexus, sem er
inn af versluninni í Glæsibæ, er
lokaður vegna takmarkana.
„Við venjulegar aðstæður væri
hann fullur öll kvöld af fólki að
spila hin ýmsu spil og keppa í
sumum þeirra. Einnig er æskulýðs-
starf og námskeið í Nexus Noobs
í pásu. Hluti af spilasalnum er nú
notaður undir pökkun á vefpönt-
unum og til að stækka verslunina
fyrir jólin,“ upplýsir Gísli.
Nýjasta viðbótin í vefverslun
Nexus er rafræn gjafabréf sem
hægt er að kaupa og útbúa á
vefnum.
„Gjafabréfin er hægt að prenta
út og gefa þannig, eða senda þau
beint í tölvupósti sem rafræna
gjöf. Viðtakandi gjafarinnar getur
síðan notað gjafabréfið á nexus.is
eða í Nexus-búðunum í Glæsibæ
og Kringlu. Þetta er einföld og
þægileg leið til að senda jólagjöf
sem mun örugglega hitta í mark og
komast í hendur glaðra viðtakenda
fyrir jól.“
Nexus er í Glæsibæ og Kringlunni.
Verið einnig velkomin í vefverslun
Nexus: nexus.is.
Farsóttin gaf spark í rassinn
Partí-, spuna- og hlutverkaspil eru í stórsókn á spilaborðum landsmanna fyrir þessi jól. Rafræn
gjafabréf hitta viðtakendur í hjartastað og hægt er að velja úr 10.000 gjöfum í vefverslun Nexus.
Gísli Einarsson, eigandi Nexus, segir spilasölu hafa tekið mikinn kipp. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Borðspil fyrir allan aldur og við allra hæfi fást í Nexus.
Hlutverka- og spunaspil njóta mikilla vinsælda nú.
Pantanir úr vefverslun eru sóttar í anddyri Glæsibæjar.
Það er ævintýri að skoða freistandi úrval spila í Nexus.
Farið er eftir
fyrirmælum
sóttvarnayfir-
valda í einu og
öllu í verslunum
Nexus, en í
samkomubann-
inu hafa
viðskiptavinir
líka nýtt sér vef-
verslun Nexus í
miklum mæli.
6 KYNNINGARBLAÐ 5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RSPILAJÓL