Fréttablaðið - 05.12.2020, Side 110
fyrir borðplötur og innréttingar
SÉRHÆFÐ HREINSIEFNI
Mikið úrval af ýmsum sérefnum
hegas.is
Bakteríueyðandi
Aníta Hirlekar er einn af fremstu fatahönn-uðum landsins og hefur slegið í gegn með línum sem sam-anstanda af litríkum
prentum á fallegum kjólum og
jökkum sem eru bróderaðir í hönd-
unum af Anítu sjálfri. Hún lærði
fatahönnun í hinum virta Central
St. Martins í London, en fyrsta lína
Anítu kom út 2014 og var partur
af útskriftarverkefni hennar við
skólann. Hönnun Anítu hefur birst
í mörgum af þekktustu tískutíma-
ritum heims á borð við I-D, Elle og
Wonderland.
„Mér hefur alltaf fundist mjög
spennandi að vinna með föt sem
ákveðið tjáningarform. Aðaláhersl-
an í minni hönnun er textíllinn sem
er mín listræna tjáning.“
Vetrarlína Anítu í ár hefur vakið
mikla athygli, enda litríkari en
gengur og gerist.
„Þetta er ekki beint hefðbundin
vetrarlína. Mér fannst vera kominn
tími til að hugsa aðeins út fyrir
boxið. Svart er ekki endilega að gera
mikið fyrir mann á þessum flóknu
tímum. Litríkar flíkur þurfa ekki að
vera bundnar við sumartímann. Eru
litir ekki einmitt það sem við þurf-
um í skammdeginu? Litir geta gert
svo margt fyrir mann,“ segir hún.
Kvenleg og klassísk
Aníta segir hönnun sína einkenn-
ast af litríkum litasamsetningum,
handmáluðum munstrum í abstrakt
blómaformum og handbróderuðum
textíl.
„Sniðin eru ávallt kvenleg og
klassísk en hugmyndin er að það
sé auðvelt að klæða sig upp og
niður í til dæmis kjólunum. Svo eru
þægindi alltaf mikilvæg, efnin eru
í góðum gæðum og eiga að endast
í langan tíma ef hugsað er rétt um
þau.“
Hún segir hönnunarferlið taka
sinn tíma og í raun aldrei vera eins.
„Ég vinn oftast í mörgu í einu,
það er svolítið einkennandi fyrir
Textíllinn er mín listræna tjáning
Aníta Hirlekar tjáir sig í textíl og hannar handgerða jakka og litríka kjóla, sem hún segir allt eins eiga við yfir
vetrartímann. Hún hannaði sokka fyrir Amnesty International, en allur ágóðinn rennur til mannréttindastarfs.
Aníta hlakkar til nýja árins og er bjartsýn á að það beri góða hluti í skauti sér. MYND/ÞÓRDÍS REYNIS
Vetrarlína Anítu Hirlekar sker sig
úr hefðbundnum vetrarlínum enda
litríkari en gengur og gerist.
MYND/RUT SIGURÐARDÓTTIR
Sokkarnir frá Amnesty, en hér er hönnun Anítu fyrir miðju.
mig. Ég er til dæmis oftast með
tuttugu munstur í gangi sem ég
f lakka á milli að vinna við. Svo er
ég mikið að vinna í handútsaumi
sem er mikið hægara ferli og krefst
mikillar þolinmæðisvinnu. Ég vinn
síðan náið með kjólameistara til að
útfæra hugmyndirnar í falleg snið
fyrir konur,“ segir hún.
Aníta segist ekki vinna endilega
í kringum ákveðin „season“ eins og
gengur og gerist í tískuheiminum.
Hún segir að það sé í raun að breyt-
ast hjá fleiri hönnuðum.
„Þótt ég kalli línurnar vetur eða
sumar þá er það meira fyrir mig og
kúnnann að vita hvenær ákveðnar
flíkur voru gerðar, líkt og listamenn
sitja ártal á sín verk. En undan-
farið er ég búin að fókusera mest á
kjóla. Ég er sjálf mikið í kjólum og
það er eins konar einkennisklæðn-
aður fyrir mig. Mér finnst ákveðin
praktík að ákveða bara eina f lík á
morgnana. En það sem er mest ein-
kennandi er líklega að kjólarnir eru
eftirtektarverðir og eiga að vera það,
þú átt að taka eftir konunni sem
klæðist kjólunum,“ segir Aníta.
Undanfarið hefur Aníta verið að
skoða styrkleika merkisins og hvað
hún vilji að skipti máli.
„Sjálf bærni spilar þar stóran
leik en nýjasta línan er framleidd á
Íslandi og því var ekki mikið vanda-
mál að kljást við framleiðslufyrir-
tæki erlendis þar sem allt varð stopp
í langan tíma.“
Margir einstaklingar í skapandi
greinum tala um áhrif heimsfarald-
ursins á sköpunargleðina.
„Það er búið að vera svo mikið af
tilfinningum í gangi út af faraldr-
inum en ég snéri þessari óvissu bara
í sókn. Ég og fjórir aðrir hönnuðir
opnuðum verslun, KIOSK, sem ein-
blínir á íslenska fatahönnun og fylgi-
hluti og er staðsett úti á Granda.“
Fengu listrænt frelsi
Aníta var fengin ásamt þeim Bergi
Guðnasyni og Aldísi Rún Ingólfs-
dóttur til að hanna sokka fyrir
Amnesty International á Íslandi.
„Mig hefur lengi langað að vinna
með góðgerðasamtökum og ég var
svo ótrúlega ánægð þegar þau höfðu
samband, að vinna með þeim að
sokkum ásamt tveim öðrum fata-
hönnuðum, Aldísi Rún og Bergi.
Sokkarnir eru framleiddir í Portúgal
þar sem mikið er lagt upp úr sjálf-
bærni í framleiðsluferlinu. Ágóðinn
af sokkunum rennur svo óskertur til
mannréttindastarfsins.“
Hún segir þau hafa fengið algjört
listrænt frelsi við hönnun sokkanna.
„Við erum öll mjög ólík í okkar
hönnun, sem er bara skemmtilegt.
En mig langaði að sokkarnir yrðu
fyrst og fremst fallegir og eftir-
tektarverðir. Ég hugsaði að rauði
liturinn mundi virka vel á körlum til
dæmis yfir hátíðarnar, við jakkaföt.
Sokkarnir eru úr lífrænni bómull
svo þeir eru dásamlega mjúkir líka.“
Það er margt spennandi á döf-
inni hjá Anítu, sem vonast til að ná
nokkrum vinnuferðum á nýju ári.
„Mér finnst alltaf gaman að byrja
nýtt ár en ég hef fulla trú á að margt
jákvætt eigi eftir að gerast á næsta
ári.“ steingerdur@frettabladid.is
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R68 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ