Fréttablaðið - 05.12.2020, Page 112
Árni Helgason
Löggiltur fasteignasali
arni@domusnova.is
Sími: 663 4290
BUGGY ADVENTURES
LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN
taumlaus gleði...Buggy Adventures ...í stórkostlegri náttúrunni
Til sölu frábært tækifæri í ferðaþjónustu, góð aðstaða og útbúnaður.
Missið ekki af þessu tækifæri, bóluefnið að koma og allt að fara á fullt!
DOMUSNOVA - HLÍÐASMÁRA 4 KÓPAVOGI - AUSTURVEGI 6 SELFOSSI & STILLHOLTI 16-18 AKRANESI - SÍMI 527 1717 - WWW.DOMUSNOVA.IS
Seint verður af Dísu ljósálfi tekið að hún er meðal vinsælustu barnabóka sem komið hafa út á íslensku. Dísa er varla stærri en mannsfingur þegar hún
dettur af trjágreininni sinni og
lendir í klóm skógarhöggsmanns og
konu hans. Þau klippa vængina af
ljósálfinum og loka hana inni í búr
skáp og líklega hefur sagan ekki síst
orðið jafn lífseig og raun ber vitni í
bernskuminningum margra vegna
hins ógleymanlega of beldisverks
skógarhöggsmannsins.
Dísa ljósálfur kom fyrst fyrir augu
íslenskra lesenda á síðum Morgun
blaðsins fyrir rúmlega 90 árum
þegar myndasaga Hollendingsins
G. Th. Rotman hóf þar göngu sína
sem framhaldssagan „Ljósálfurinn
litli“ í nóvember 1927. Sögunni var
þá sem síðar lýst sem „barnasögu í
112 myndum“.
Það kom í hluta blaðamannsins
Árna Óla að þýða sögu Rotmans en
hann upplýsti síðar í ævisögu sinni
að hann hefði ekkert kunnað í hol
lensku. Verkið fórst honum þó það
vel úr hendi að sagan kom út á bók
og er fyrir lifandis löngu orðin sígild
barnabók hér á landi.
Árni þýddi í kjölfarið sögur Rot
mans um Alfinn álfakóng og dverg
inn Rauðgrana, sem hafa einnig gert
það gott í gegnum áratugina þótt
þeir hafi alla tíð mátt dúsa í skugga
Dísu.
Litaður ljósálfur
Dísa ljósálfur hefur notið það
jafnra vinsælda hér á landi að
hún hefur oft verið endurprentuð
og útgefin. Hún kom síðast út
hjá Máli og menningu 2008 og nú
hefur bókaútgáfan Óðinsauga sætt
færis og gefið hana út í stærra broti
en venjulega og, að því er vitað er
til, litprentaða í fyrsta skipti á
íslensku.
Þessi nýja útgáfa er að sögn
útgefandans hugsuð fyrir nýja
kynslóð barna sem er vön því að
lesa litríkar barnabækur. Litmynd
irnar í bókinni eru sem fyrr 112 og
voru skannaðar upp úr frumútgáfu
og síðan litaðar. Þá hefur gömlu
þýðingu Árna Óla verið skipt út
fyrir nýja þar sem leitast er við að
fylgja betur frumtextanum auk
þess sem ýmsum nöfnum og öðru
sem Árni lét liggja milli hluta hefur
verið bætt við nýju þýðinguna.
toti@frettabladid.is
Svarthvít
hetja í lit
Sagan um Dísu ljósálf hefur
notið mikilla og nokkuð stöð-
ugra vinsælda á Íslandi allt frá
því „Ljósálfurinn litli“ birtist
fyrst á síðum Morgunblaðsins
1927. Sagan um Dísu hefur
verið endurprentuð ítrekað í
gegnum tíðina en kemur nú út í
lit í fyrsta skipti svo vitað sé.
... hvernig ertu í lit?Svarthvíta barnabókahetjan mín ...
DÍSA LJÓSÁLFUR KOM
FYRST FYRIR AUGU ÍSLENSKRA
LESENDA Á SÍÐUM MORGUN-
BLAÐSINS FYRIR RÚMLEGA 90
ÁRUM.
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R70 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð