Fréttablaðið - 05.12.2020, Síða 114
Lífið í
vikunni
29.11.20
05.12.20
ÞRÁTT FYRIR COVID
OG SVONA VERALD-
LEGT AMSTUR ÞÁ BARA HÖLD-
UM VIÐ FÁNANUM UPPI.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
MÖMMUR REDDUÐU
BOLTA STELPUDAGATALI
Þegar Þróttaramömmurnar Berg
lind Ingvarsdóttir og Tobba Ólafs
dóttir áttuðu sig á að hvergi væri til
jóladagatal með myndaspjöldum
af fremstu knattspyrnukonum
heims drifu þær í að gefa eitt slíkt
út. Sara Björk Gunnarsdóttir, lands
liðskona og Evrópumeistari með
Lyon, er þar fulltrúi Íslands.
SJÁLFBÆR MISBRIGÐI
Misbrigði er samstarfsverkefni
LHÍ og Fatasöfnunar Rauða kross
Íslands. Nemar á öðru ári í fata
hönnun vinna þar línur til þess að
vekja athygli á mikilvægi fata
söfnunarinnar og textílsóun.
Tískusýning þarf að bíða en hægt
er að skoða útkomuna í verslunum
Rauða krossins.
SJÁLFSVINNAN ER NÝJ-
ASTA GEÐVEIKIN
Elísabet Jökulsdóttir er tilnefnd til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
fyrir bókina Aprílsólarkuldi. „Þetta
er svona sjálfsævisögulegt og
byggt á minni sögu en ég nota samt
aðferðir skáldskaparins,“ segir
hún en í bókinni gerir hún upp við
ástina, geðveikina og fortíðina.
HEIMSENDASPÁ RÆTIST
Sigur Rós svaraði loks kalli aðdá
enda sem hafa beðið útgáfu tón
verksins Hrafnagaldurs Óðins síðan
það var flutt nokkrum sinnum
2002. Bassaleikarinn Georg Hólm
segir tímasetninguna á útgáfunni
ágæta þar sem í verkinu eru enda
lok goða og manna yfirvofandi.
Við höfum alltaf haldið tryggð við fullveldis-daginn og svo bara datt ég í sóttkví akk-úrat þarna í kringum 1. des og varð bara að
hægja á mér og var að koma út úr
því á fimmtudaginn þannig að ég er
stimplaður bak og fyrir neikvæður
og við höldum okkar striki,“ segir
Tolli Morthens sem lætur COVID-19
ekki trufla sína rótgrónu fullveldis-
hátíð.
Tolla telst til að það séu 30 ár
síðan fyrsta fullveldishátíðin var
haldin og var þá menningarvið-
burður uppi á Höfða á bifreiðaverk-
stæðinu hjá Steina sem er jafnan
kenndur við Svissinn.
Síðan er það löngu orðinn árviss
viðburður og jólahefð hjá mynd-
listarmanninum að bjóða gestum
og gangandi í opið hús á vinnu-
stofunni í tengslum við fullveldis-
daginn 1. desember.
Hátíð verður fátíð
„Við erum öll að díla við þessar
aðstæður en samt látum við eitt-
hvað gerast. Höldum einhverju
gangandi og þrátt fyrir COVID og
svona veraldlegt amstur þá bara
höldum við fánanum uppi,“ segir
Tolli um óhjákvæmilega breytingu
frá vananum að þessu sinni.
Í stað fullveldishátíðar slær hann
nú upp fátíð og vegna þess að sótt-
varnareglur leyfa ekki f leiri en tíu
manns á vinnustofunni verður
gleðinni streymt á Facebook að
sögn með bestu fáanlegum tækjum.
„Það er leiðinlegt að geta ekki
boðið upp á þessar f lottu veitingar
sem ég hef alltaf verið með en svona
er lífið,“ segir Tolli, sem verður síðan
með opið á vinnustofunni alla
föstudaga og laugardaga fram að
jólum þar sem hægt verður að hitta
á hann.
Vitringarnir þrír
Bubbi, bróðir Tolla, og æskuvinur
hans Einar Már Guðmundsson rit-
höfundur, hafa verið fastagestir
Tolla á fullveldishátíðinni þessi
þrjátíu ár og Tolli segir að þeir láti
sig heldur ekki vanta á fullveldis-
fátíðina þannig að „vitringarnir
þrír“ verða á sínum stað.
„Og nú er Kristín, dóttir mín,
komin til liðs við mig. Hún er lista-
málari og lærði í Kanada og hefur
síðustu ár mest verið að vinna og
sýna verk sín þar og í Þýskalandi en
hefur illu heilli þurft að ílengjast hér
á Íslandi. Hún var í góðum málum
þarna í Toronto en allt í lagi. Hún
ætlar að sýna verkin sín hérna. Hel-
víti mikil verk,“ segir Tolli og horfir
sem fyrr á björtu hliðarnar.
Bubbi spilar og málar
„Og svo er það nýliðinn í mynd-
listinni, Bubbi Morthens,“ segir
Tolli þegar hann víkur að bróður
sínum, sem þreytti frumraun sína
sem listmálari á fullveldishátíðinni
í fyrra. „Það var bara skemmtilegt
þannig að við ákváðum að endur-
taka þetta,“ segir Tolli og bætir við
í fyrra hafi verið „geggjað stuð“ á
vinnustofunni. „Hann er sem sagt
með þessi málverk sem hann hefur
verið að mála og svo ætlar hann að
spila fyrir okkur.“
Dagskránni verður streymt á
Facebook-síðu Tolla milli klukkan
15 og 16 í dag. „Við ætlum að streyma
þessu út af því að við fáum ekki að
hafa nema tíu manns inni þannig
að við stillum okkur upp við verkin
okkar og tölum aðeins um þau og
Einar Már mætir auðvitað með sín
ljóð og ætlar að lesa fyrir okkur,“
segir Tolli og sér ákveðna kosti í
fjöldatakmarkaleysi internetsins.
Tengsl í rofi
„Þetta er alveg fullorðins menning-
arviðburður þegar hægt er að ná til
svona margra. Það er svo áhugavert
á svona tímum þegar öll tengsl eru
rofin að halda samt úti menningar-
tengslum í gegnum svona miðil. Það
er ótrúlegt hvað streymið virkar
vel og hvað tengingin verður sterk
ef þetta er gert með hjartanu. Þá
undrast maður hvað þetta verður
samt lifandi,“ segir Tolli sem býður
alla velkomna inn í stafræna hlýj-
una í frosthörkunum sem hótað er
um allt land um helgina.
toti@frettabladid.is
Fullveldisfátíð Tolla
Tolli Morthens heldur fast í gamla jólahefð en heldur fullveldisfátíð
á Facebook í dag þar sem hann var í sóttkví á fullveldisdaginn.
Vitringarnir þrír, Tolli Morthens og fastagestirnir Bubbi bróðir og æskuvinurinn Einar Már, í vinnustofunni ásamt
Kristínu, dóttur Tolla, sem slæst í hópinn þar sem hún er föst á Íslandi vegna aðstæðna. MYND/AÐSEND
Kristín mun sýna olíu-
málverk sem Tolli segir
litrík og kraftmikil.
DORMA LUX
heilsárssæng
Dásamleg dúnsæng frá Quilts of Denmark.
Stærð: 140×200 cm. 600 g. 90% hreinn andadúnn.
10% smáfiður. Má þvo á 60°c en það er
hitastig sem rykmaurar þola ekki –
því er gott að nota sæng
sem þolir þennan
þvottahita ef um
rykofnæmi er
að ræða.
Fullt verð: 25.900 kr.
Aðeins 20.720 kr.
20%
AFSLÁTTUR
HÁTÍÐAR
DORMA HOME sængurföt
Sængurfötin frá Dorma Home eru ofin úr 300 gsm bómullarþræði sem
gefur frábæra endingu, viðkomu og mýkt. Þau eru með OEKO-TEX®
vottun um að þau séu framleidd án allra skaðlegra efna. Sængurfötin
koma í nokkrum mismunandi mynstrum/litum og fást í 3 stærðum.
SMÁRATORG HOLTAGARÐAR
AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR
Heima er best
>> Jólin 2020 <<
Gerðu góð kaup i verslunum okkar eða
á dorma.is og við sendum allar vörur frítt
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Fullt verð
140 x 200 cm: 9.990 kr.
Aðeins: 7.992 kr.
Fullt verð
140 x 220 cm: 11.990 kr.
Aðeins:9.592 kr.
Fullt verð
200 x 200 cm: 16.990 kr.
Aðeins: 13.592 kr.
20%
AFSLÁTTUR
HÁTÍÐAR
DORMA HOME sængurföt
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R72 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð