Harmonikublaðið - 01.12.2016, Page 18

Harmonikublaðið - 01.12.2016, Page 18
Ferð til Castelfidardo á 41. alþjóðlegu harmonikukeppnina 20.-27. september 2016 Pílagrímsferðir eru farnar í ýmsum tilgangi svo sem til að fáyfirbót fyrir afglöp, heimsækja helga staði, halda upp á sérstök tilefni eða til stuðnings ákveðnum aðilum. Ferðin á harmonikuhátíðina í Castelfidardo var farin til að uppfylla að minnsta kosti þrjú þessara skilyrða. Við ferðafélagarnir Guðmundur Samúelsson, Sigurður Alfonsson, Flemming Viðar Valmundsson og Bjarni Gunnarsson erum allir áhugamenn um harmonikuna sem kennarar, nemendur og stuðningsmenn íslenska landsliðsins í harmonikuleik sem keppti þarna í fyrsta skipti og síðast en ekki síst höfðum við áhuga á að kynna okkur það allra nýjasta sem var að gerast í harmonikuheiminum. Þetta var í 41. skipti sem þessi keppni var haldin og einkenni hennar er að í henni eru fjölmargir flokkar og voru keppendur alls hátt á þriðja hundrað. Keppt var m.a. í jass-harmonikuleik, þjóðlegri tónlist, klassískri tónlist, bæði einleik og samleik og harmoniku með öðrum hljóðfærum. Keppt var í mörgum aldursflokkum og var gaman að sjá hvað margir ungir keppendur komu fram í hinum ólíku keppnisgreinum og hve gæði spilamennskunnar voru mikil. Haldnir voru fjölmargir tónleikar meðan á keppninni stóð og einnig voru keppnisatriðin opin áheyrendum. Spilað var frá eldsnemma á morgnana langt fram á kvöld og þá tóku við uppákomur á hinum ýmsu skemmtistöðum þar sem var „jammað“ og spilað af hjartans lyst. Nokkrir Italíufarar í heimsókn í harmonikuverksmiðjunni Flogið var þann 20. september til Mílanó og síðan ekið suður til Castelfidardo daginn eftir. Þessi litli bær er í héraðinu Marche, örskammt frá hinni fornfrægu hafnarborg Ancona. Bærinn stendur á hæð og var reyndar kastalabær eitt sinn, eins og nafnið bendir til en nú er sá kastali að mestu horfinn. Gamli bærinn er þó enn til staðar og fór þetta harmonikumót fram aðallega í húsakynnum innan hans þar sem göngufæri er á milli. Við félagarnir gistum annars vegar í Castelfidardo og hins vegar í næsta bæ á litlu sveitahóteli. Fór í alla staði vel um okkur og allt viðmót heimamanna var einstaklega vinsamlegt og hjálplegt. Einn megintilgangur ferðarinnar eins og áður sagði var að fylgjast með íslenska harmonikutríóinu Itríó sem keppti í flokki harmonikuhópa í klassískri tónlist en það skipuðu þau Jón Þorsteinn Reynisson, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir og Jónas Asgeir Asgeirsson. Einnig tók Jónas Asgeir þátt keppni 18 ára og eldri í einleik á harmoniku. Að öðru leyti var tilgangurinn með þessari keppni að kynna harmonikuna í öllum sínum myndum og var hægt að skoða fjölbreytt úrval af hljóðfærum, nótum og öðrum búnaði sem vakti áhuga og sýndi að þetta hljóðfæri er í mikilli þróun. Til gamans má geta að í Victoria versluninni skoðuðum við safn af um 200 bandoneon-harmonikum sem þýskur vinur Argentínumannsins Astor Piazzolla hafði safnað. Þar gafst Flemming einnig tækifæri til að spila á stærstu harmoniku í heimi við ágætar undirtektir (hún er vel yfir 3 m á hæð - ekki til að setja framan á sig!). 18 Fyrsta daginn hélt Itríóið tónleika og kom þar einnig fram portúgalskur piltur sem átti eftir að koma við sögu síðar. Reyndar voru þetta allt nemendur Norðmannsins Geirs Draugsvoll, prófessors í harmonikuleik við konunglega danska tónlistarháskólann. Fóru þessir tónleikar vel í menn og gáfu góða vísbendingu um hver árangur hópsins yrði þegar á hólminn væri komið. Margvíslegir tónleikar voru í boði og einna minnisstæðastir voru tvennir þar sem annars vegar voru flutt verk fyrir harmonikukvintett, rafmagnsgítar og blandaðan kór og hins vegar var leikinn jass/fusion á harmoniku og trompet. Þetta voru með eftirminnilegri tónleikum sem undirritaður hefur yfirleitt verið á. Leikar fóru svo þegar upp var staðið að í keppninni þar sem Itríóið tók þátt hlutu þau annað sæti - sem er ekki lítið þar sem keppinautarnir voru frá helstu harmonikulöndum heims, Rússlandi og Italíu. Sigurvegararnir voru „náttúrlega“ ítalski hópurinn, þrír glæsilegir ungir menn sem reyndar spiluðu sama verk og Itríóið - en þeir studdust við nótur en Itríóið kunni aftur á móti verkið utanbókar. Þarna mátti sennilega skrifa sigurinn á dómarann. Jónas Asgeir hafði verið örlítið meiddur og var ekki meðal þriggja efstu í sínum keppnisflokki en það var sárabót að samnemandi hans, Jose BeSií eflir niðurstöSum. Jánas Ásgeir, Helga Kristbjörg og Jón Þorsteinn d bekknum Valente frá Portúgal, sá sem áður var getið, fékk fyrstu verðlaun í aðalkeppninni um „41. alþjóðlegu harmonikuverðlaunin í Castelfidardo“. Þetta gefur góða vísbendingu um að gott sé að borða íslenskan fisk til að ná árangri í harmonikuleik (það þarf ekki að taka fram að saltfiskur er þjóðarréttur Portúgala). Ollu þessu var haldið til haga á stórri lokahátíð í bíósalnum í Castelfidardo sunnudaginn 25. september og fengu sigurvegararnir

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.