Fréttablaðið - 01.12.2020, Side 10
Kínversk stjórnvöld
ættu að skammast
sín fyrir þessa birtingu.
Þetta lítillækkar þau í
augum heimsins.
Scott Morrison, forsætisráðherra
Ástralíu
Eldgos í Indónesíu
Þúsundir íbúa hafa f lúið heimili sín á eyjunni Lembata í Indónesíu eftir að gos hófst í eldfjallinu Ili Lewotolok á sunnudag. Samkvæmt fulltrúa
almannavarna í landinu lést enginn í gosinu. Indónesía er eitt virkasta eldfjallasvæði heims en þar eru alls 129 virk eldfjöll. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
ÁSTRALÍA Ástralir eru ævareiðir
Kínverjum eftir að fulltrúi utan-
ríkisráðuneytis Kína, Zhao Lijian,
birti umdeilda mynd á Twitter-
reikningi sínum. Um var að ræða
sviðsetta mynd af áströlskum her-
manni þar sem hann heldur hníf
að hálsi afgansks drengs undir yfir-
skriftinni: „Ekki vera hræddur, við
erum að koma á friði.“
Er um að ræða tilvísun í niður-
stöður nýlegrar skýrslu þar sem
haldið var fram að ástralskir her-
menn hefðu drepið 39 óbreytta
borgara og fanga í Afganistan. Hefur
skýrslan vakið gríðarlega athygli í
Ástralíu en þrettán hermönnum var
vikið úr starfi eftir að hún var gerð
opinber. Þá hefur ástralski herinn
farið fram á að rannsakað verði
hvort hermennirnir hafi gerst sekir
um stríðsglæpi.
Auk myndbirtingarinnar skrifaði
Lijian að hann væri miður sín yfir
morðum ástralskra hermanna og að
Kínverjar fordæmdu slíkar gjörðir
og gerðu kröfu um að þeim sem
bæru ábyrgð á þeim yrði refsað.
Scott Morrison, forsætisráð-
herra Ástralíu, hefur krafist þess
að Twitt er fjarlægi myndina sem
hann segir ósmekklega og falsaða.
Þá fór hann einnig fram á að utan-
ríkisráðuneyti Kína bæðist form-
lega afsökunar á birtingunni. „Kín-
versk stjórnvöld ættu að skammast
sín fyrir þessa birtingu. Þetta
lítillækkar þau í augum heimsins.“
Játaði forsætisráðherrann að það
andaði köldu milli þjóðanna en að
þetta væri ekki leiðin til að leysa
deilurnar.
Samskipti Ástrala og Kínverja
hafa verið kuldaleg undanfarið
þrátt fyrir mikil viðskipti milli
þjóðanna. Ástralar hafa á undan-
förnum árum gagnrýnt Kínverja
fyrir hernaðarbrölt í Suður-Kína-
hafi, meðferð á Úígúrum, afskipti
af Hong-Kong og Taívan og ýmis
mannréttindabrot. Í apríl voru
Ástralir í hópi þjóða sem kölluðu
eftir alþjóðlegri rannsókn á upp-
runa kórónaveirunnar sem féll í
grýttan jarðveg hjá kínverskum
yfirvöldum. Svöruðu Kínverjar
með því að setja margs konar höml-
ur á innflutning ástralskra matvæla
til Kína, til að mynda hærri tolla og
margs konar tafir við innf lutning
á landamærum. Þrátt fyrir erj-
urnar voru Kínverjar og Ástralir
í hópi fimmtán ríkja Austur-Asíu
og Eyjaálfu sem skrifuðu undir
gríðarstóran fríverslunarsamning
í byrjun nóvember.
Um miðjan nóvember skrifuðu
Ástralir undir varnarsamning við
Japan sem Kínverjar líta á sem
beina ögrun. Kínverjar líta á Ástrali
sem eina helstu bandamenn Banda-
ríkjamanna í Vestur-Kyrrahafi og
töldu þeir að samningurinn við
Japani væri að undirlagi Banda-
ríkjamanna. „Ástralir taka síendur-
teknar ákvarðanir sem ganga gegn
hagsmunum Kína, sem er ástæðan
fyrir hratt hnignandi samskiptum
þjóðanna á þessum erfiðu tímum,“
sagði áðurnefndur Lijian á blaða-
mannafundi við það tækifæri og
sagði að ábyrgðin á versnandi sam-
skiptum ríkjanna lægi hjá Ástralíu.
bjornth@frettabladid.is
Krefst afsökunarbeiðni Kína
Samskipti Ástralíu og Kína eru við frostmark eftir umdeilda myndbirtingu háttsetts kínversks embættis-
manns á Twitter. Kínverjar segja Ástrali endurtekið hafa tekið ákvarðanir gegn þeirra hagsmunum.
Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, fordæmdi myndbirtingu kínverska embættismannsins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
ÍR AN Íranskur ör yg gisfulltrúi
hefur sakað Ísrael um að beita
fjarstýrðum vopnum við morðið
á kjarnorkuvísindamanninum
Mohsen Fakhrizadeh. Fakhriza-
deh var myrtur í skotárás skammt
frá höfuðborginni Teheran síðast-
liðinn föstudag. Hann var hátt-
settur í íranska hernum og talið er
að hann hafi verið yfir kjarnorku-
vopnaverkefni landsins. Írönsk
yfirvöld sögðu í fyrstu að morðið á
Fakhrizadeh hefði verið framið af
mönnum vopnuðum vélbyssum og
sprengiefni.
Ali Shamkani, ritari þjóðarör-
yggisráðs Íran, varpaði hins vegar
ásökununum fram í útför Fakhriza-
deh þar sem hann sagði að enginn
árásarmaður hefði verið á staðnum
og að aðgerðinni hefði verið fjar-
stýrt. Íranska ríkisfréttastofan
Fars hefur einnig greint frá því að
Fakrizadeh hafi verið myrtur með
fjarstýrðri vélbyssu úr kyrrstæðum
bíl sem hafi sprungið nokkrum
mínútum síðar. Yfirvöld í Ísrael
hafa ekki sent frá sér neinar yfir-
lýsingar vegna morðsins en Íranir
hafa hótað hefndum. – atv
Íranir segja
morðið fjarstýrt
Frá útför Fakhrizadeh.
NÍGERÍA Minnst 110 létust í árásum
Boko Haram í norðausturhluta
Nígeríu á sunnudag. Þetta er haft
eftir talsmönnum Sameinuðu
þjóðanna í landinu.
Árásin átti sér stað við þorpið
Koshobe þar sem árásarmenn-
irnir réðust á almenna borgara úti
á hrísgrjónaökrum. Samkvæmt
sjónarvottum var fórnarlömbun-
um safnað saman og þau bundin
áður en árásarmennirnir tóku þau
af lífi með því að skera þau á háls.
Muhammadu Buhari, forseti
Nígeríu, hefur fordæmt árásina
og segir „landið allt hafa verið
sært með þessum tilgangslausu
morðum“.
Þetta er ein hræðilegasta árás
á svæðinu síðastliðna mánuði en
í síðasta mánuði létust 22 akur-
yrkjubændur í árás Boko Haram.
– atv
Minnst 110
látnir í árás
Boko Haram
Íranska ríkisfréttastofan
Fars segir Fakrizadeh hafa
verið myrtan með fjar-
stýrðri vélbyssu úr kyrr-
stæðum bíl.
Fjölmargir lágu í valnum.
1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð