Fréttablaðið - 01.12.2020, Blaðsíða 33
Miðjusætaröðin er á sleða til að auðvelda aðgengi sem er mun betra þegar
stigið er hægra megin inn í öftustu sætaröðina.
Höfuðrými bílsins hæfir stærstu mönnum en eins og sjá má er meira en nóg
eftir þótt fyrirsætan sé rúmir 180 sentimetrar á hæð.
Felling sæta í miðjusætaröð mætti vera betri en fyrirferðarmikil sætin falla ekki nógu vel niður.
Bíllinn kemur á 17 tommu felgum og hjólbörðum sem
gera hann mýkri í akstri en búast má við af rafbíl.
Það er langt síðan greinarhöfundur hefur séð sígarettu-
kveikjara í nýjum bíl sem hafður er til prófunar.
Innréttingin er smekkleg og útsýni svo gott að manni líður vel undir stýri.
yfirdrifið í þessum bíl. Meira að
segja er gott pláss til hliðanna í
öftustu sætaröð sem er sjaldnast
raunin. Fótarými er gott í bílnum
og aðgengi í miðjusætaröð, enda
er hurðir eins og áður sagði í yfir-
stærðum.
Farangursrými er mjög gott
með sætin niðri en miðjusæta-
röð mætti falla betur niður, því
að fyrirferðarmikil miðjusætin
falla ekki nógu vel niður í gólfið.
Aðgengi í öftustu sætaröð er ekki
nógu gott ef komið er vinstra
megin inn í bílinn. Það kemur
til þar sem ekki er hægt að velta
tveimur vinstri sætunum fram og
þau renna ekki nógu mikið fram
heldur. Aðgengi vinstra megin
þar sem er aðeins eitt sæti er mun
betra og auðveldara að færa sætið
fram.
Virkar ekki stór í akstri
Akstur Maxus Euniq MPV er
nokkuð sem kemur á óvart og
hann er mjög hljóðlátur. Þrátt
fyrir hefðbundna MacPherson-
fjöðrun að framan og sneril-
fjöðrun að aftan er fjöðrunin
góð og laus við að virka þvinguð
af þeim tæpu tveimur tonnum
sem hann var að burðast með.
Stýrið er létt og leggur vel á svo
að auðvelt er að snúa honum
þrátt fyrir stærðina. Það er ekki
hægt að segja að stærðin hamli
honum í akstri og ef einhver er
ragur við stærðina eru alltaf fjar-
lægðarskynjarar. Gallinn við þá
er að ekki er hægt að slökkva á
frekar leiðinlegu píp-hljóði frá
fjarlægðarskynjara. Af lið er gott
fyrir bíl í þessum f lokki enda ekki
á hverjum degi sem prófaður er
sjö sæta fjölnotabíll með upptak
undir 10 sekúndum Drægið með
minni raf hlöðunni er viðunandi
eða 325 km en hægt er að fá bílinn
með 71 kWst raf hlöðu og er þá
drægið 420 km.
Lítil samkeppni
Einu sjö sæta raf bílarnir fyrir
utan Maxus Euniq MPV eru
Mercedes-Benz EQV og Tesla
Model X. EQV er talsvert lengri
eða 5.140 mm, allt að 8 manna og
töluvert dýrari eða frá 11.950.000
kr. svo að samanburður við hann
er frekar ósanngjarn. Það sama
má segja um Tesla Model X sem
kostar 11.672.000 í Long Range
útgáfu. Að sögn Úlfars Hinriks-
sonar hjá Suzuki er endanlegt
verð ekki komið á bílinn en það
verður þó undir sjö milljónum
sem verður að teljast ansi gott
verð fyrir raf bíl í þessari stærð, og
gerir almenningi kleift að eignast
rafdrifinn, sjö sæta bíl.
Sjaldan hefur bíla-
prófari Fréttablaðs-
ins reynt bíl með jafn
mikið höfuðrými og
Maxus Euniq MPV.
BÍLAR 7 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 ÞRIÐJUDAGUR