Fréttablaðið - 01.12.2020, Blaðsíða 38
Eftir að gagnrýni á mynda-bandsupptökur af hraðameti SSC Tuatara bílsins komu
fram hefur verið ákveðið að endur-
taka leikinn. Spurningar vöknuðu
eftir stærðfræðingur sem skoðaði
myndbandið og beitti reikniað-
ferðum á tækniupplýsingar bílsins,
sagði að bíllinn hefði verið á nær
400 km hraða í stað 533 km á klst.
Forstjóri SSC, Jerod Shelby
lét hafa eftir sér í yfirlýsingu að
mistök hefðu orðið við klippingu
myndbandsins og þess vegna
hefðu GPS-tölur ekki passað við
klippingarnar. Til að bregðast við
þessari gagnrýni var því ákveðið
að bíllinn myndi reyna aftur við
metið í náinni framtíð. Hvenær
það verður nákvæmlega er þó ekki
ákveðið og því er það spurning
hvort Heimsmetabók Guinness
viðurkenni metið endanlega fyrr
en að seinni tilraun við það verði
lokið.
SSC Tuatara ætlar
að endurtaka
hraðamet
SSC Tuatara reynir hér við heims-
metið á dögunum.
Guðmundur Jóhann Gíslason,
leigubílstjóri hjá Hreyf li, fékk
af hentan nýjan, 100% rafmagn-
aðan Volkswagen ID.3 fyrir
nokkrum vikum og varð þar með
fyrsti leigubílstjórinn á Íslandi
sem ekur um á þessari nýju
tegund raf bíla. Ekki hafa borist
sögur af ID.3-leigubílum úti í
heimi og því líklegt að hann hafi
einnig verið sá fyrsti í heimi til að
fá sinn af hentan.
Guðmundur hefur verið leigu-
bílstjóri í 30 ár og ber Volkswagen
vel söguna. „Þau hjá Heklu hafa
aðstoðað mig með mikilli prýði í
mörg ár en þetta er sjötti Heklu-
bíllinn frá árinu 2011. Ég ákvað
strax og sögur fóru að berast
af ID.3 að ég myndi panta einn
slíkan enda rafmagnsdrægið
orðin nægt fyrir mig.
Hingað til hefur nægt mér að
hlaða bílinn bara heima hjá mér
á nóttunni og hef ég í raun bara
einu sinni verið að því kominn
að klára rafmagnið en þá kom ég
heim með um 20 kílómetra drægi
eftir. Rekstrarkostnaðurinn á
rafmagnsbílum er hverfandi og
sparnaðurinn mikill en á venju-
legum mánuði geri ég ráð fyrir
að spara allt að 90.000 krónur í
rekstrarkostnað. Svo er líka afar
gott að þurfa ekki að hafa bílinn í
lausagangi á meðan maður bíður
á milli ferða. Umhverfið græðir,“
segir Guðmundur og bætir við að
plássið í bílnum komi viðskipta-
vinum einstaklega skemmtilega á
óvart enda er hann mun pláss-
meiri að innan en ytra rýmið
gefur til kynna.
Jóhann Ingi Magnússon,
vörumerkjastjóri Volkswagen
á Íslandi, segir nýjungarnar
spennandi og að gaman hafi verið
hversu mikla athygli bíllinn hans
Guðmundar vakti í höfuðstöðv-
um Volkswagen í Þýskalandi.
„Þetta eru spennandi tímar og
þróunin hröð. Í dag er rafdrifinn
leigubíll orðinn raunhæfur kostur
og gaman að sjá leigubílstjóra
nýta sér vistvænar lausnir sem fer
fjölgandi.“
Fyrsti ID.3-leigubíllinn í heiminum
Guðmundur Jóhann Gíslason við sérmerktan ID.3-leigubílinn sem er áberandi í borgarumferðinni.
Umferðaröryggisstofnun Banda-
ríkjanna NHTSA rannsakar nú ört
vaxandi tilkynningar um galla
í fjöðrunarkerfum Model S- og
Model X-bílanna. Með auknum
aldri bílanna hefur tilkynningum
vegna þess fjölgað að undan-
förnu og að sögn stofnunarinnar
eru nú 43 tilkynningar á borði
hennar. Gallinn lýsir sér þannig
að dekkið nær að skrapast upp
í innra bretti bílanna sem getur
haft áhrif á öryggi þeirra í akstri.
Flestar bilanirnar áttu sér stað á
lítilli ferð eða 32 talsins, en sumar
þeirra á vegum úti og fjórar á
hraðbrautum. Engin óhöpp hafa
samt orðið í þessum tilfellum sem
eru til rannsóknar. Meira álag er
á fjöðrunarkerfi rafmagnsbíla
vegna aukins þunga þeirra. Rann-
sóknin nær til 2015-2017 árgerða
Model S og 2016-2017 árgerða
Model X. Ef rannsóknin leiðir til
innköllunar mun hún því geta
náð til allt að 115.000 Tesla bíla á
heimsvísu.
NHTSA rannsakar galla í fjöðrunarkerfi Tesla
Það eru Tesla Model X og Model S
sem eru til rannsóknar hjá NHTSA.
Nýlegt myndband af
hraðameti SSC Tuatara
hefur verið gagnrýnt að
undanförnu.
JEPPADEKK
OG FELGUR
DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR Í SÍMA 540 4900
Vönduð amerísk jeppadekk sem henta
frábærlega fyrir íslenskar aðstæður.
Stærðir 29 - 44”.
KANNAÐU ÚRVALIÐ! VERSLUN.ARCTICTRUCKS.IS
Arctic Trucks Ísland ehf Kletthálsi 3 110 Reykjavík Sími: 540 4900 Netfang: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is
12 BÍLAR 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R