Fréttablaðið - 01.12.2020, Blaðsíða 16
Baldvin, frændi minn, Jónsson
umboðsmaður flutti Kinks inn
og ég sagði honum ekki fyrr en í
fyrra að ég teiknaði þrjá miða á
Kinks-tónleikana.
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
María Steinunn Gísladóttir
frá Skáleyjum,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Seljakirkju
fimmtudaginn 3. desember kl. 13 að viðstöddum nánustu
ættingjum. Athöfninni verður streymt frá vef Seljakirkju,
seljakirkja.is. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
minningarsjóð Flateyjarkirkju, reikningur
0309-26-012652, kt. 550169-5179.
Leifur Kr. Jóhannesson
Jóhanna Rún Leifsdóttir Kristján Á. Bjartmars
Sigurborg Leifsdóttir Hörður Karlsson
Heiðrún Leifsdóttir Lárentsínus Ágústsson
Eysteinn Leifsson Guðleif B. Leifsdóttir
Jófríður Leifsdóttir Ingimundur Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, amma og systir,
Sólrún Helgadóttir
lést þann 19. nóvember. Sólrún
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 2. desember kl. 13.30.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða
einungis nánustu aðstandendur viðstaddir
en athöfninni verður streymt á Facebook-síðunni
„Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar“.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Heimahlynninguna á
Akureyri eða Krabbameinsfélag Akureyrar.
Tómas Helgi, Jón Birkir, Andri Már og Alda Ósk,
barnabörn og systkini hinnar látnu.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðjón Tómas Brewer
fæddur í Reykjavík 10. apríl 1944,
lést á heimili sínu að Hamrahlíð 17
mánudaginn 26. október.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Jarðsett var í Kópavogskirkjugarði.
Kolbrún Fjóla Kristensen Guðmundur Rúnar Rúnarsson
Róbert Þór Guðjónsson María Kristiansdóttir
Tómas Guðbrandur Guðjónsson
Edvard Kristinn Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sem gamall fréttarefur hlustaði ég lengi á alla íslenska frétta-tíma, þannig er það nú ekki lengur en auðvitað fylgist ég með þeim,“ segir hinn sjö-tugi Sigurður G. Tómasson
sem vann í áratugi í útvarpi, allt frá því
Bylgjan fór í loftið 1986. „Enn eru á Bylgj-
unni menn sem ég vann með, Kristófer
og Þorgeir Ástvalds. Sá síðarnefndi kom
til mín í sumar. Við erum gamlir vinir. Ég
sá hann þegar hann spilaði fyrst í Tempó
þegar Kinks kom hingað til lands, það
var hans fyrsta gigg. Baldvin, frændi
minn, Jónsson umboðsmaður f lutti
Kinks inn og ég sagði honum ekki fyrr en
í fyrra að ég teiknaði þrjá miða á Kinks-
tónleikana. Það mál var fyrnt!“
Af Bylgjunni fór Sigurður á Ríkisút-
varpið, þar var hann þegar Dægurmála-
útvarpið og Þjóðarsálin á Rás 2 voru og
hétu og var ráðinn dagskrárstjóri, því
embætti gegndi hann svo á Útvarpi Sögu
um tíma. Síðar varð eitt af afrekum hans
að hanna Tímamótasíðu Fréttablaðsins.
„Það var Kári Jónasson ritstjóri sem bað
mig að forma þennan þátt í blaðinu. Ég
reyndi að finna eitthvað sem tilheyrði
hverjum útgáfudegi og tíunda það. Var
með bókastafla í kringum mig og netið
í tölvunni.“
Er lögblindur
Nú á Sigurður ekki jafn auðvelt með að
lesa og áður, hann fékk augnbotnahrörn-
un af völdum sykursýki og er lögblindur
en hefur ratsjón og kveðst geta lesið
fyrirsagnir í blöðum og á netinu, það sem
hann stækkar upp. „Þetta er mikil fötlun
fyrir mann sem hefur verið lesandi síðan
hann lærði það,“ viðurkennir hann.
Jarðfræði og íslenska urðu fyrir valinu
af hlaðborði háskólans hjá Sigurði og
eitthvað kveðst hann hafa lært í sögu.
Fróðleiksþorsti er honum í blóð borinn
og honum svalar hann með ýmsu móti
þrátt fyrir allt. „Ég er í Blindrafélaginu
og hef því aðgang að Hljóðbókasafninu,
hlusta líka stundum á hljóðbækur í sím-
anum gegnum Storytel, því sonur minn
nýtir ekki allan rétt sinn þar. Svo fylgist
ég með erlendum útvarpsstöðvum, til
dæmis BBC og stundum NPR (National
Public Radio) í Bandaríkjunum og skoða
fyrirsagnir á New York Times og fleiri
stórblöðum.“
Réð reykmeistara
Sigurður G. býr á fögrum stað í Mos-
fellsbæ með frúnni sinni, Steinunni Berg-
steinsdóttur listakonu, og á þessum árs-
tíma er einkar búsældarlegt hjá þeim því
þau eru með eigin reykkofa. „Ég þurrsalta
kjöt fyrir reykinguna og Steinunn býr til
bjúgu,“ lýsir Sigurður. „En félagi minn
Ævar Örn Jósepsson sér um að kveikja
upp. Hann byrjaði sem lærlingur en er
orðinn reykmeistari.“
gun@frettabladid.is
Nýtir sér marga miðla
Sigurður G. Tómasson útvarpsmaður er sjötugur í dag. Flestir landsmenn þekkja hann
af Bylgjunni og Rás 2. Hitt vita færri að hann formaði Tímamótasíðu Fréttablaðsins.
„Ég reyndi að finna eitthvað sem tilheyrði hverjum útgáfudegi,“ segir Sigurður um Tímamótasíðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1974 Hús Jóns Sigurðssonar er formlega vígt í Kaup-
mannahöfn.
1983 Ríkisútvarpið byrjar útsendingar á FM-bylgju sem
Rás 2.
1986 Bylgjan byrjar að senda út stöðugt allan sólar-
hringinn, fyrst íslenskra útvarpsstöðva.
1990 Verkamenn í Ermarsundsgöngunum slá í gegn.
1991 Hilmar Örn Hilmarsson hlýtur Felix-verðlaunin
fyrir tónlist sína í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar,
Börnum náttúrunnar.
Merkisatburðir
1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT