Fréttablaðið - 01.12.2020, Blaðsíða 15
FÓTBOLTI Sama dag og Ísland mætir
Ungverjalandi í lokaleik Stelpnanna
okkar í undankeppninni fyrir EM
2023 verður þjálfarateymið eflaust
með annað augað á nokkrum viður-
eignum samdægurs. Í lok dags ætti
að liggja fyrir hvort kvennalands-
liðið öðlist beinan þátttökurétt á
fjórða Evrópumótinu í röð eða þurfi
að fara í umspil líkt og fyrir EM 2009
og 2013. Undankeppninni lýkur
ekki í dag því einhverjar viðureignir
fara fram í febrúarmánuði. Myndin
ætti að vera nokkuð skýr í kvöld,
hvort kvennalandsliðið geti farið að
huga að undankeppninni fyrir HM
2023 með EM á Englandi 2022 bak
við eyrað eða hvort það þurfi að fara
í sex liða umspil sem fer fram í apríl.
Fyrir leiki dagsins er Belgía með
bestan árangur af þeim liðum sem
eru í öðru sæti, með átján stig,
tveimur stigum á undan Íslandi og
Austurríki en þessi þrjú lið eiga einn
leik eftir. Ítalir sem eru með fimm-
tán stig og eiga tvo leiki eftir geta
því jafnað Belga að stigum en þurfa
til þess að vinna sigur á geysisterku
liði Dana í dag. Fyrri leik Dana og
Ítala lauk með 4-0 sigri Dana og geta
Danir gert Stelpunum okkar stóran
greiða í dag með sigri.
Það sama á við um lið Sviss sem
mætir Belgíu í dag þar sem allt
annað en jafntefli hentar íslenska
liðinu vel. Ef Belgar tapa geta Stelp-
urnar okkar skotist upp fyrir Belga
og ef Sviss tapar og Ísland afgreiðir
sinn leik er Ísland jafnt Sviss að
stigum og með betri markatölu.
Markatalan gæti aftur komið inn
í leik í G-riðli þar sem Austurríki,
líkt og Sviss, er hársbreidd frá því að
komast í lokakeppni Evrópumótsins
annað skiptið í röð. Austurríki er
líkt og Ísland með sextán stig þegar
ein umferð er eftir og átján mörk
í plús í markatölu fyrir leik gegn
Serbíu á heimavelli. Ísland verður
því að jafna árangur Austurríkis í
kvöld til að halda þeim fyrir neðan
okkur á listanum yfir stigahæstu
liðin í öðru sæti sem komast beint
inn á Evrópumótið.
Staðan er heldur f lóknari í E-
riðli þar sem Portúgal, Finnland og
Skotland berjast sín á milli um efstu
tvö sætin og eiga öll þrjá leiki eftir
og eiga eftir að mætast innbyrðis.
Annað sætið getur enn náð tuttugu
stigum en líklegt er að þau skipti
stigunum eitthvað á milli sín á loka-
sprettinum. – kpt
Fylgjast með úrslitum
úr hinum riðlunum
Íslenska kvennalandsliðið fer langt með að tryggja sæti sitt á EM með sigri
í dag en það er enn háð úrslitum úr öðrum leikjum. Í lok dags ætti að vera
nokkuð ljóst hvort að Ísland fái þátttökurétt á EM eða fari í umspilið í apríl.
Líklegt er að Hlín, Berglind Björg og Hallbera Guðný haldi allar sæti sínu í byrjunarliðinu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Traustur fyrirtækjarekstur og öflug nýsköpun
kallar á samstarfsaðila sem skilur þarfirnar.
Arion banki býður fyrirtækjum af öllum
stærðum og í öllum geirum alhliða
þjónustu með fagmennsku, innsæi
og þekkingu að leiðarljósi.
Hafðu samband á fyrirtaeki@arionbanki.is,
við þjónustuver í síma 444 7000 eða í
netspjalli á arionbanki.is.
Búum í haginn
fyrir atvinnulíf
framtíðarinnar
arionbanki.is
SKRÁÐU ÞIG Á
PÓSTLISTANN
Fáðu blað dagsins
sent rafrænt
Google Jólalakkrís 300x250, 336x280, 728x90, 300x600 og 320x100 - skil 26. nóv
Facebook / Instagram Jólalakkrís 1080x1350/2048x1072 - skil 27. nóv
Vefborðar Jólalakkrís 310x400 og 300x250 - skil 27. nóv
Morgunblaðið (3. des) Jólalakkrís - skil 2.des
Fréttablaðið (8. des, 15. des, 19. des) Jólalakkrís - skil 7. des
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0