Fréttablaðið - 01.12.2020, Qupperneq 20
2 BÍLAR 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R
w
w
w
.fr
et
ta
bl
ad
id
.is
Umsjón blaðsins
Njáll Gunnlaugsson
njall@frettabladid.isBílar
Auglýsingar: Atli Bergmann atli@frettabladid.is | Sími 550 5657
Útgáfufélag: Torg ehf. | Kalkofnsvegur 2 | 101 Reykjavík | Sími 550 5000
Verða sýndir í fyrsta skipti
á Íslandi í nýjum sýndarsal
Mercedes-Benz á vefsíðunni
syndarsalur.is.
Bílaumboðið Askja mun frum
sýna tvo nýjustu raf bíla Merced
esBenz, EQV og eVito Tourer,
á fimmtudaginn, 3. desember.
Bílarnir verða frumsýndir í nýjum
sýndarsal MercedesBenz á vef
síðunni syndarsalur.is.
EQV og eVito eru 100% rafmagn
aðir fjölnotabílar. Um er að ræða
nýja valmöguleika í rafmögnuðum
samgöngum en bílanir henta vel
fyrir akstur með minni hópa eða
allt að níu manns. Báðir þessir
bílar er góður kostur sem atvinnu
bíll, sem fágaður fjölskyldubíll eða
vel útbúinn fjölnotabíll fyrir ólík
verkefni í tengslum við vinnuna
eða til einkanota.
Bílarnir koma í tveimur
lengdum með sæti fyrir allt að
níu manns og góðu plássi fyrir
farangur. Bílarnir státa af miklu
innanrými en rafgeymastæðan
er undir gólfi bílsins og gengur
því ekki á innanrýmið. Í lengstu
útfærslu er farangursrýmið allt að
1.410 l. Rafdrægni EQV er 356 km
og eVito Tourer er 361 km á fullri
hleðslu. Það tekur einungis um
45 mínútur að hlaða frá 10% upp
í 80% hleðslu í hraðhleðslustöð.
EQV og eVito eru af bragðsgóðir í
akstri og að sjálfsögðu með öllum
þeim þæginda og öryggisbúnaði
sem einkennir MercedesBenz.
Fjöldi tengiltvinnbíla og rafdrif
inna fólksbíla frá MercedesBenz
er þegar á boðstólum og nú bætast
í hópinn þessir tveir hreinu raf
bílar sem eru mjög góð viðbót við
úrvalið.
„Við hjá Öskju höfum hannað
þennan nýja sýndarsal í samstarfi
við Daimler, eiganda Mercedes
Benz. Sýndarsalinn er strax hægt
að skoða að hluta en frumsýningin
á EQV og eVito Tourer opnar þann
3. desember klukkan 10.30. Við
hlökkum mikið til að sýna þessa
tvo nýju og spennandi bíla og leyfa
viðskiptavinum okkar að njóta
upplifunarinnar á þessum nýja
vettvangi,“ segir Arna Rut Hjartar
dóttir, forstöðumaður markaðs og
kynningarmála Öskju.
EQV og eVito Tourer frumsýndir
Toyota á Íslandi fær viðbót í
vörulínu sína í janúar 2021 þegar
Toyota Highlander verður kynntur
í fyrsta sinn í VEvrópu. „Þessi
bíll hefur notið vinsælda víða
um heim frá því hann kom fyrst
á markað árið 2000, ekki síst í
Bandaríkjunum. Highlander er
stór sportjeppi með mikið innan
rými, tveggja tonna dráttargetu
og veghæð sem sæmir jeppa eða
20,3 sm,“ segir í fréttatilkynningu
frá Toyota á Íslandi. Hröðun hans
er góð eða 8,3 sekúndur í 100 km
á klst.
Highlander er í f lokki ESUV bíla
þar sem Land Cruiser hefur verið
áberandi hér á landi undanfarna
áratugi. Með þessu skrefi býður
Toyota upp á enn fleiri lausnir í
einum kröfuharðasta flokki bíla á
Íslandi með tæknilega vönduðum
og rúmgóðum Hybrid sportjeppa.
Tvö niðurfellanleg sæti eru aftast
í bílnum og er því pláss fyrir sjö í
Highlander.
Toyota Highlander Hybrid er
með AWDI fjórhjóladrif og verður
í boði í þremur útfærslum, GX, VX
og Luxury. Highlander er knúinn
áfram af fjórðu kynslóð Hybrid
tækninnar auk bensínvélar sem
skilar samanlagt 244 hestöflum.
Eyðslan er samt hófleg eða frá 5,8 –
8,2 lítrar á 100 km.
Toyota Highlander er 4.950 mm
langur með 658 lítra farangurs
rými. Auðvelt er að fella niður tvær
sætaraðir og mynda þannig 1.909
lítra farangursrými með sléttu
gólfi. Highlander er búinn Toyota
Safety Sense 2.5 sem er nýjasta
útgáfa af öryggiskerfi Toyota.
Toyota Highlander kemur í janúar
Þriðja kynslóð Peugeot 308 er
væntanleg á næsta ári og líkt
og hjá öðrum bílum Peugeot
er von á honum með tvinn-
útfærslum, sem tengiltvinnbíl
og sem 100% rafmagnsbíl.
Þessar njósnamyndir náðust
nýlega af nýjum Peugeot 308 en
hann verður kynntur á næsta ári.
Mun hann þá kynda undir sam
keppni við Ford Focus og nýjan
VW Golf. Hann verður líklega
byggður á sama eVMPundir
vagninum og þriðja kynslóð 3008
bílsins en sá undirvagn er endur
hönnun á EMP2undirvagninum
sem er í núverandi kynslóð. Má
því búast við 48 volta tvinnút
færslum, ásamt tengiltvinnbíl og
rafmagnsbíl. Mun þá e308 vera
ætlað að keppa við VW ID.3 til að
mynda. Að sögn Peugeot getur
eVMP undirvagninn innihaldið
rafhlöðu sem hefur allt að 650 km
drægi. Undirvagninn býður upp á
bæði framhjóladrif eða fjórhjóla
drif og rafhlöður af stærðinni
60100 kWst.
Grunnútfærslur ebílsins verða
án efa með 134 hestafla rafmótor á
framdrifinu en öflugustu útfærslur
hans verða líklega 335 hestöfl og
með fjórhjóladrifi. Líkt og í VW
Golf eru ekki róttækar breytingar
á útliti og myndirnar gefa ekki
mikið uppi þar. Búast má við
breiðari ljósum og grilli ásamt
afturljósum sem ná alveg yfir
afturenda bílsins. Þar sem breitt
var yfir innréttinguna á mynd
unum var ekki hægt að sjá hvort
breytingar yrðu á henni en í 208
bílnum er 10 tommu upplýsinga
skjár ásamt þrívíddarmælaborði.
Njósnamyndir af nýjum Peugeot 308
Toyota Highlander er öflug viðbót við jeppalínu Toyota.
Nýr Mercedes-Benz EQV verður frumsýndur í nýjum sýndarsal á netinu.
Ekki er að sjá
miklar breyt-
ingar á útliti
bílsins undir
dulargerfinu
en grill og ljós
verða breiðari
en áður.
Breitt var yfir mælaborð og miðju-
stokk til að fela hugsanlegar
breytingar á innréttingu bílsins.
Volkswagen er að þróa lítinn,
rafdrifinn smábíl fyrir fjöldafram
leiðslu til að mæta betur meng
unarreglum Evrópusambandsins.
Kemur þetta fram hjá frétta
veitunni Reuters sem séð hefur
gögn um þetta, en engar myndir af
bílnum fylgja fréttinni.
Áætlunin kallast „Lítill BEV“ og
stendur BEV fyrir Battery Electric
Vehicle og er áætlað að bíllinn
muni kosta á bilinu 2025.000
evrur. Það myndi gera hann
ódýrari en ID.3 en óvíst er hvort
hann muni leysa VW Polo alveg af
hólmi.
Volkswagen Group hækkaði
fjárhagsáætlanir sína fyrir raf bíla
nýlega, upp í 73 milljarða evra á
næstu fimm árum. Áætlar VW að
smíða 1,5 milljónir raf bíla árið
2025.
Volkswagen með lítinn rafbíl á næstunni
Volkswagen e-Up er rafdrifinn smábíll sem byggir á eldri hönnun.
Með þessu skrefi
býður Toyota upp á
enn fleiri lausnir í einum
kröfuharðasta flokki
bíla á Íslandi með tækni-
lega vönduðum og
rúmgóðum Hybrid
sportjeppa.