Fréttablaðið - 01.12.2020, Side 34

Fréttablaðið - 01.12.2020, Side 34
Bíllinn verður með fimmtu kynslóð eDrive rafmótora en þeir eru minni um sig en skila um leið meira afli en áður. BMW iX er nýtt flaggskip BMW-merkisins og verður alveg rafdrifinn. Hann mun skila 500 hestöflum og hafa 605 kílómetra drægi auk þess að nota 5G-farsímatæknina. BMW gengur svo langt að segja að BMW iX sé dögun nýrra tíma hjá merkinu. Þótt bíllinn sé ennþá í þróun hefur BMW tekið ákvörðun um að frumsýna bílinn en hann er væntanlegur á markað í lok næsta árs. Bíllinn byggir á iNext-til- raunabílnum sem frumsýndur var árið 2018 og er iX fyrsti bíll BMW sem byggður er á nýjum skalanleg- um undirvagni sem verður undir framtíðarökutækjum BMW. Með fullkomnari hugbúnaði og öflugri tölvubúnaði getur bíllinn nýtt sér 5G-tæknina til að keyra sjálfur og leggja sjálfur í stæði. Bíllinn verður með fimmtu kynslóð eDrive-rafmótora en þeir eru minni um sig en skila um leið meira afli en áður. Rafhlaðan verður 100 kWst og skilar orku til tveggja rafmótora sitt á hvorum öxlinum. Hestaflatalan verður 500 og upptakið í 100 km hraða undir fimm sekúndum. Það sem mestu máli skiptir er að nýja rafhlaðan verður með 605 km drægi sem er talsvert meira en er í boði í BMW- raf bílum í dag. BMW segir einnig að hægt sé að hlaða rafhlöðuna með 200 kW hleðslu sem þýðir að hægt er að hlaða hana upp í 80% á undir 40 mínútum. Í 11 kW heima- hleðslustöð er hægt að fullhlaða bílinn á 11 klst. Undirvagninn nýi verður með álgrind og umlukinn koltrefjum. Að sögn BMW er tölvu- kerfi bílsins 20 sinnum öflugra en sést hefur áður í framleiðslubílum. BMW hefur ekki gefið upp neinar stærðartölur um bílinn aðra en þær að hjólhafið verður þrír metrar sem verður að teljast allgott. Bíllinn verður þó svipaður BMW X5 að stærð. Hið þekkta nýrnagrill verður áberandi að framanverðu þótt það sé nánast lokað eins og búast má við af raf- bíl. Þar verður myndavél, ásamt radar- og lidar-skynjurum komið fyrir. Díóðuljósin eru þynnri en við höfum séð áður í ökutækjum BMW kynnir iX-rafjepplinginn Mazda, líkt og Suzuki, gæti verið á leiðinni með Mazda 2 í formi Yaris eftir tvö ár. Kemur það fram í nýrri kynningu fyrir fjárfesta á vegum fyrirtækisins, en þar er sagt frá samstarfi Mazda og Toyota og áætlunum um að smíða bíl byggðan á Yaris-tvinnútfærslunni. Líklega verður bíllinn smíðaður af Toyota við hlið Yaris í verksmiðju Toyota í Norður-Frakklandi. Með því að bjóða upp á tvinn- útfærslu getur merkið, líkt og hjá Suzuki, náð mengunarmörkum sínum. Núverandi Mazda 2 hefur verið á markaði síðan 2014 og er ekki með tvinnútfærslu. Hvort samstarfið muni ná til f leiri bíla í framtíðinni er óvíst, en hjá Suzuki hafa tveir Toyota-bílar fengið Suzuki-merkið. Eru það Corolla í formi Suzuki Swace og RAV4 í formi Across. Ný Mazda í formi Yaris árið 2022 Mazda notaði tækifærið og kynnti nýja sex strokka línuvél á hlut- hafafundi á dögunum. Vélin mun líklega fara í 6-línuna og þá einnig langbakinn. Mazda hafði tilkynnt í fyrra að þessi vél væri á leiðinni en hún mun samt ekki koma í framleiðslubílum fyrr en í fyrsta lagi seint á árinu 2022. Hún verður fáanleg sem bæði bensín- og dísilvél og þá einnig í Skyactiv-X útgáfu. Mazda hefur ekki gefið mikið af tækniupplýsingum upp með vélinni. Vitað er að hún verður langsum í bílnum og verður tengd fjórhjóladrifi. Búast má við að næsta kynslóð Mazda 6, sem væntanleg er árið 2022, verði með vélina strax frá upphafi. Sá bíll verður einnig með afturdrifi svo líklega verða fleiri en ein vél í boði þegar hann kemur á markað. Með því að fara þessa leið mun Mazda geta keppt við bíla eins og BMW 3-línu og Kis Stinger GT S svo eitt- hvað sé nefnt. Hvort nýr Mazda 6 verði svo boðinn í Evrópu á eftir að koma í ljós en talsmenn Mazda hafa forðast að svara spurningum þess efnis. Mazda kynnir nýja línusexu Það eru ekki allir aðdáendur BMW-merkisins sáttir við þennan framenda en BMW hefur þorað að taka áhættu þegar kemur að útliti. Þótt afturendinn sé hefðbundnari setur hann nýjar línur með ílöngum afturljósum. Endurhönnuð innréttingin er stílhrein með stórum upplýsingaskjáum sem verður eins og breiðtjald og nær yfir meginhluta innréttingarinnar. BMW og hurðarhúnar sem koma út úr yfirbyggingunni er eitthvað sem við höfum ekki séð áður. Að innan verður flatt gólf sem eykur plássið fyrir alla fimm farþegana. Tveir stórir skjáir verða áberandi í mælaborðinu en þeir eru boga- dregnir. Annar er 15 tommur að stærð meðan hinn er 12,3 tommur. Annað eins og miðstöðvartúður og hátalarar er meira falið í innrétt- ingunni. Næsta kynslóð Mazda 6 sækir út- litið til Vision Coupe tilraunabílsins. Mazda 2 gæti líkst Yaris fyrir utan atriði eins og ljósabúnað. Samstarf Mazda og Toyota er til þess að merkið geti náð meng- unarmarkmiðum sínum. Með því að fara þessa leið mun Mazda 6 keppa við BMW 3-línu. 8 BÍLAR 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.