Morgunblaðið - 05.05.2020, Síða 15

Morgunblaðið - 05.05.2020, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020 Kristinn Magnússon Bekkjarspjall Þessar vinkonur settust saman á bekk í Reykjavík og tóku með sér nesti, kaffi á brúsa og með því. Þær sáu líka til þess að hátt í tveir metrar væru á milli þeirra á bekknum. Heimsfaraldur CO- VID-19 hefur kallað á margs konar áskoranir og viðbrögð. Fyrirtæki og stofnanir hafa þurft að breyta starfsháttum, starfsaðstæðum og mannlegum sam- skiptum á örskömmum tíma og á róttækan hátt með það markmið í huga að hámarka fram- leiðslu og þjónustu við gjörbreyttar aðstæður. Á einungis tveimur mánuðum hafa verið fundnar lausnir til að halda starfseminni gang- andi með tilliti til fyrirmæla um sótt- varnir og vegna samkomubannsins. Mikilvægi snjalltækni Við þessar óvenjulegu aðstæður hefur snjalltæknin skipt sköpum. Hún hefur gert fjarvinnu, fjarþjón- ustu, fjarkennslu og fjarfundi mögu- lega. Við ættum að nýta þá dýrmætu reynslu sem skapast hefur á þessum sviðum og halda áfram að þróa og bæta starfshætti með hjálp tækninn- ar, hvort heldur í þeirri viðleitni að bæta þjónustu borgarinnar eða til að efla og auka möguleika menntunar. Fjarkennsla hefur verið vannýtt auðlind Það var aðdáunarvert að sjá hvern- ig kennarar og skólastjórnendur brugðust hratt og vel við að breyta og þróa fyrirkomulagi náms og kennslu með litlum fyrirvara við þessar að- stæður. Þar sannaði fjarkennslan gildi sitt og kennarar nýttu sér ýmis verkfæri til að halda uppi kennslu og vera í sambandi við nemendur sína, til að mynda með aðstoð Google Class- room, Webex Teams og fleiri forrita. Hingað til hefur fjarkennsla verið vannýtt auðlind á grunnskólastigi þrátt fyrir að fyrsta tilraun hafi verið gerð með slíka kennslu á grunn- skólaaldri skólaárið 1999-2000 þegar Broddanesskóli á Ströndum fékk fjarkennslu frá grunnskólanum í Hólmavík. Nýtum tæknina í þágu menntunar Við eigum að nýta tæknina betur til að efla menntun og kennslu, en þar getur fjarkennslan orðið auka- kennslustofa og gagnvirk kennslu- stofa, ekki bara utan skólans heldur auk þess innan hans. Fjarkennslan eykur sveigjanleika í námi, styður við einstaklingsmiðað nám þannig að hver og einn getur lært á sínum hraða auk þess sem fjarkennslan gefur aukna möguleika á þverfaglegu námi og kennslu. Með fjarkennslu og rafrænu námi skapast jafnframt möguleikar á aukinni fjölbreytni í kennslu auk þess sem auknir möguleikar skapast á að stórefla námsgagnagerð. Þá getur fjarkennsla einnig nýst í þeim tilgangi að nýta betur sérhæfða kennara sem geta þá kennt í fleiri en einum skóla auk þess að efla almennt samstarf skóla og miðla þekkingu milli þeirra. Enn fremur getur snjalltæknin auðveldað og eflt allt skólasamfélagið og nýst vel í þeim tilgangi að efla for- eldrasamstarfið með því að nýta fjar- fundi í auknu mæli til að stytta boð- leiðirnar. Nýtum sóknarfærin Allt frá 1996 hefur það verið stefna menntamálaráðuneytisins að leggja áherslu á notkun upplýsingatækni í öllum námsgreinum og frá þeim tíma hefur verið lögð áhersla á það í öllum námskrám. Þar hefur verið bent á þá staðreynd að í síbreytilegum heimi tækni, upplýsinga og samskipta verði upplýsingalæsi, þ.e. þekking og færni í að flokka, vinna úr og miðla upplýs- ingum, sífellt mikilvægara. Fjarnám samræmist vel ýmsum kennslufræðilegum kenningum, þ. á m. hugsmíðahyggju, sem er náms- kenning sem gengur út á að þekking sé afurð þess hvernig einstaklingur skapar merkingu úr reynslu sinni og lögð áhersla á að námsumhverfið sé opið og sem líkast raunverulegum að- stæðum og lagt upp úr að nemandinn sé virkur í að byggja upp eigin þekk- ingu. Í samræmi við aðalnámskrár, kennslufræðilegar hugmyndir um nám og þau sóknarfæri sem nú hafa skapast ættum við að setja kraft í að nýta tæknina betur í námi og þróa enn frekar til framtíðar. Eftir Mörtu Guð- jónsdóttur »Nýtum tæknina til að efla menntun og kennslu, en þar getur fjarkennslan orðið auka- kennslustofa og gagn- virk kennslustofa, bæði innan og utan skólans. Marta Guðjónsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Gagnvirkni í kennslu og þjónustu Í fjölmiðlaumfjöllun og greinaskrifum undanfarnar vikur hafa möguleikar lána- stofnana á að veita svonefnd brúarlán, að hluta tryggð með rík- isábyrgð, til fyrir- tækja í fjárhagserf- iðleikum vegna Covid-19 faraldursins verið settir í sam- hengi við umboðssvik sem lýst eru refsiverð í 249. gr. al- mennra hegningarlaga. Í þessari grein verður farið nokkrum orðum um álitaefni sem þessu tengjast og varpað ljósi á mögulega snertifleti milli veitingar brúarlána annars vegar og umboðssvika hins vegar. Höfundur hefur áður skrifað um umboðssvik og skilyrði brotsins í greinum sem birtust í Morgun- blaðinu 1. apríl 2019 og 16. apríl sama ár. Því hefur verið velt upp hvort svigrúm lánastofnana til að veita fyrrgreind brúarlán kunni að sæta takmörkunum í ljósi dómafram- kvæmdar Hæstaréttar í saka- málum tengdum falli bankanna ár- ið 2008. Í mörgum þessara dóma hafi stjórnendur og starfsmenn fjármálafyrirtækja verið sakfelldir fyrir umboðssvik vegna lánveit- inga sem hafi m.a. valdið verulegri fjártjónshættu og tapast í heild eða að hluta. Af umræddri dóma- framkvæmd hafa sumir þátttak- endur í umræðunni dregið þá ályktun að veiting brúarlána með tilheyrandi tapsáhættu kunni að vera virt sem umboðssvik með sama hætti og þær lánveitingar sem sakfellt var fyrir í hrunsmál- unum. Misnotkun á aðstöðu er frumskilyrði umboðssvika Í þeim málflutningi sem lýst er hér að framan er að mati höfundar litið framhjá því veigamikla atriði að frumskilyrði umboðssvika felst í misnotkun á aðstöðu. Áhættu- samar lánveitingar verða því ekki sjálfkrafa virtar sem umboðssvik vegna þess eins að þeim kunni að fylgja einhver eða jafnvel veruleg tapsáhætta heldur þarf meira að koma til svo að sakfellt verði fyrir umboðssvik, þar á meðal að við- komandi hafi af ásetningi misnotað aðstöðu sína með lánveitingunni, svo sem með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga. Í dómum Hæstaréttar þar sem sakfellt hefur verið fyrir umboðssvik vegna lánveitinga í aðdraganda hruns fjármálakerfisins árið 2008 hefur niður- staðan í öllum til- vikum verið reist á því að viðkomandi ákærðu hafi misnotað aðstöðu sína í ofangreindum skilningi, t.d. sem stjórnendur eða starfsmenn hjá við- komandi lánastofnun, eða átt hlutdeild í slíkri misnotkun. Algeng birting- armynd þessa skilyrðis í um- ræddum dómum er að lán voru greidd út án þess að þau hefðu hlotið samþykki viðeigandi lána- nefnda sem áskilið var í lána- reglum. Samandregið voru nið- urstöður málanna þannig ekki einungis reistar á því að lánveit- ingarnar hefðu falið í sér verulega fjártjónshættu (skilyrðið um auðg- unarásetning) heldur einnig á því að þær hefðu ekki rúmast innan heimilda eða umboðs hlutaðeigandi (skilyrðið um misnotkun á að- stöðu). Hvernig birtist skilyrðið í dómaframkvæmd? Til skýringar á ofangreindu verður hér vikið að einu þeirra sakarefna sem dæmt var um í dómi Hæstaréttar frá 12. febrúar 2015 í máli nr. 145/2014. Í málinu voru forstjóri og formaður stjórn- ar fjármálafyrirtækis sakfelldir m.a. fyrir umboðssvik, annar sem aðalmaður í brotinu og hinn sem hlutdeildarmaður í því, vegna 12,8 milljarða króna lánveitingar til fé- lags á Bresku Jómfrúareyjunum, en félagið var eignalaust þegar lánið var veitt. Í dómi Hæstaréttar var talið ljóst að tryggingar fyrir endurgreiðslu lánsins hefði skort og að ekki hefði verið tilefni til að reikna með því að lánið fengist endurgreitt nema með fúsum og frjálsum vilja lántakans. Veruleg og augljós fjártjónshætta hefði leitt af ráðstöfuninni, sem um leið hefði verið til þess fallin að verða eiganda lántakans til auðgunar (skilyrðið um auðgunarásetning). Lánveitingin hefði jafnframt ekki verið lögð fyrir hlutaðeigandi lána- nefnd og því hefði hún ekki rúmast innan heimilda þess sem tók ákvörðun um hana (skilyrðið um misnotkun á aðstöðu). Sá sem kom fram sem fyrir- svarsmaður lántakans var sýkn- aður af hlutdeild í fyrrgreindu umboðssvikabroti. Í forsendum Hæstaréttar var talið að þótt hon- um hefði hlotið að hafa verið ljós sú verulega fjártjónshætta sem umrædd lánveiting skapaði hefði hann mátt treysta því að ákvörðun forráðamanna bankans um lánveit- inguna yrði tekin eftir formlega réttum leiðum. Með öðrum orðum var talið ósannað að þessum ákærða hefði verið kunnugt um að lánveitingin hefði verið afgreidd í andstöðu við lánareglur bankans. Huglæg afstaða hans náði þannig ekki til skilyrðisins um misnotkun á aðstöðu og voru því ekki skilyrði til að sakfella hann fyrir hlutdeild í umboðssvikabrotinu. Ólíku saman að jafna Þegar öllu er á botninn hvolft er mergurinn málsins sá að misnotk- un á aðstöðu er ófrávíkjanlegt skil- yrði sakfellingar fyrir umboðssvik. Spurningunni hvort líkur séu á því að áhættusöm brúarlán til fyrir- tækja í fjárhagserfiðleikum kunni eða kunni ekki að verða virt sem umboðssvik verður ekki svarað með því að einblína á skilyrðið um verulega fjártjónshættu, heldur þarf jafnframt að taka önnur skil- yrði umboðssvika með í reikning- inn. Að mati höfundar er heldur almennt ekki unnt að líkja hruns- málum þar sem misnotkun á að- stöðu var ein forsenda sakfellingar saman við lánveitingar sem veittar eru á traustum lagagrundvelli og í samræmi við reglur og verkferla viðkomandi lánastofnana, þar á meðal stefnu og viðmiðanir þeirra um ásættanlega áhættu af útlán- um. Samantekið er það því álit höfundar að slíkar lánveitingar eigi lítið sameiginlegt með lánveit- ingum í hrunsmálum sem taldar voru fela í sér misnotkun á aðstöðu í skilningi 249. gr. hegningarlaga. Dómar í hrunsmálunum veiti eftir sem áður leiðsögn um inntak og beitingu umboðssvikaákvæðisins í þessu samhengi og horfi því til skýringar á réttarstöðunni fremur en hitt. Eftir Friðrik Árna Friðriksson Hirst » Þegar öllu er á botn- inn hvolft er mergurinn málsins sá að misnotkun á aðstöðu er ófrávíkjanlegt skilyrði sakfellingar fyrir um- boðssvik. Friðrik Árni Friðriksson Hirst Brúarlán og þýðing umboðssvikaákvæðisins Höfundur er doktorsnemi í refsirétti við lagadeild HÍ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.