Morgunblaðið - 05.05.2020, Page 21

Morgunblaðið - 05.05.2020, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020 ✝ Kristín Ragn-arsdóttir fædd- ist 30. júlí 1945 á Akranesi. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 17. apríl 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Aðalheiður Ester Guðmundsdóttir, f. 20. nóvember 1923, d. 8. október 2002, og Ragnar Leós- son, f. 26. desember 1920, d. 8. júlí 2014. Systkini Kristínar eru Fríða Ragnarsdóttir, f. 1942, maki Ásgeir Rafn Guðmunds- son, f. 1942, Aðalheiður Ragna Ragnarsdóttir, f. 1950, maki Helgi Þröstur Guðnason, f. 1945, Guðríður Birna Ragn- arsdóttir, f. 1956, maki Kristinn Eiríksson, f. 1956, og Leó Ragn- arsson, f. 1964, maki Halldóra Sigríður Gylfadóttir, f. 1968. Systkinabörn Kristínar eru tólf. Kristín lauk gagnfræðaprófi arson, f. 22. október 1903, d. 18. september 1969, og Ingibjörg Örnólfsdóttir, f. 27. mars 1918, d. 30. janúar 2005. Kristín og Grettir voru barnlaus. Í byrjun hjónabands síns bjuggu Kristín og Grettir með Ragnari föður Kristínar, en eftir að Ragnar lést, árið 2014, keyptu þau íbúð á Garðabraut 2A og hafa búið þar frá þeim tíma. Kristín hafði unun af því að ferðast bæði innan lands og ut- an. Til margra ára ferðaðist hún með ferðahópi Akurnesinga sem var kallaður ARABIA. Hún var virk í félagslífi á Akranesi, þar sem hún tók meðal annars þátt í starfi skátana, Slysavarna- félagsins Lífs og í Félagi eldri borgara. Hún hafði gaman af því að gera handavinnu og sækja spilakvöld. Útför Kristínar verður gerð frá Akraneskirkju 5. maí 2020 og hefst athöfnin kl. 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu fer at- höfnin fram í kyrrþey, en útför- inni verður streymt á YouTube frá Akraneskirkju, slóð á streymið er á www.akranes- kirkja.is. Stytt slóð: https:// n9.cl/hoi9. Slóðina má einnig nálgast á www.mbl.is/andlat. frá Gagnfræða- skóla Akraness og síðar lá leið hennar í Húsmæðraskól- ann á Varmalandi þar sem hún var einn vetur. Hún ólst upp á Akranesi og bjó þar með for- eldrum sínum þar til móðir hennar lést árið 2002 og eftir það áfram með föður sínum. 3. september 2005 giftist Kristín, Gretti Ásmundi Há- konarsyni, f. 6. september 1944. Kristín og Grettir störfuðu alla sína starfsævi hjá útgerðarfé- laginu Haraldi Böðvarssyni, sem síðar varð HB Grandi. Þar kynntust þau og varð vel til vina. Þau tóku að lokum ákvörð- un um að rugla saman reytum og gifta sig og hafa síðan þá átt gott líf saman. Foreldrar Grettis voru hjónin Hákon Jörund- Elsku Kiddý okkar. Það tekur á okkur öll að kveðja þig. Við héldum að þú myndir lifa lengst allra, svo lífs- glöð, kát, dugleg og félagslynd alla tíð. Að kveðja þig í miðjum Covid-faraldri er svo sárt. Þú hefðir viljað hafa útför með öllu því fólki sem þú þekktir og bjóða upp á gott kaffiboð á eftir. Við fjölskyldan eigum svo margar góðar og ljúfar minning- ar um þig sem sækja á hugann á þessari stundu. Þú varst við- stödd alla viðburði í fjölskyld- unni og varst alltaf jafn glöð og ánægð með okkur öll og allt það sem við gerðum. Þegar við kom- um heim til pabba og mömmu varst þú alltaf til staðar og við gátum ætíð gengið að nýjustu bókunum, blöðunum og prjóna- bókunum vísum hjá þér og við þurftum ekki að fara í bókabúð í þá daga. Það er í minnum haft þegar elsta barnabarnið, þá ca. 10 ára, lá á bak við sófa og las Sannar sögur ásamt blöðum í þeim dúr, sem hún hafði fengið lánuð hjá Kiddý frænku. Þá rifj- ast líka upp þegar allir komu saman í sláturgerð en þá var mikið hlegið, skrafað og sungið. Í lokin var síðan slegið upp slát- urveislu fyrir alla stórfjölskyld- una, þar sem allir komu saman. Þú prjónaðir peysur á öll systk- inabörnin þín og við systkinin eigum fallega hluti sem þú hefur búið til og gefið okkur í jólagjafir undanfarin ár. Þú elskaðir að ferðast og í mörg ár ferðaðist þú innanlands með ferðahópnum ARABIA, sem amma Fríða og Bía frænka voru virkar í. Að því tímabili loknu ferðuðust þið Grettir og síðar þið vinkonurnar saman inn- anlands og utan og ykkur vin- konunum fannst það lítið mál að nota strætó í ferðalög innan- lands. Þú varst hörkudugleg í vinnu og við munum eftir því að þegar vertíðir voru í fiskvinnslunni, þá varst þú oft komin á fætur fyrir klukkan sex til að mæta í vinnu. Þú kvartaðir aldrei og þú sagðir alltaf að þú hefðir það fínt og værir ekkert þreytt. Þið Grettir unnuð saman frá því þið voruð ung og þá kviknaði ástin. Þið hafið átt góð ár saman og eins og Grettir sagði eftir að þú fórst „hún var yndisleg“ þá lýsa þau orð þér vel og ást hans til þín. Við í fjölskyldunni áttum góð- ar stundir saman í Heyholti þar sem pabbi og mamma byggðu sumarbústað. Þú varst mikið með þeim þar, allt frá byrjun og þegar við komum í heimsókn tókst þú á móti okkur með knúsi, kossum og ýmsum skemmtileg- um sögum ásamt fréttum af ber- jatíð, þegar það átti við. Eftir að við systkinin tókum við bústaðn- um höfum við átt þar margar ánægjustundir og við minnumst alltaf pabba, mömmu og þín þar. Þú kvaddir okkur fallega á sjúkrahúsinu og þín hinstu orð voru „ég bið að heilsa öllum sem ég þekki – öllum sem ég þekki“. Elsku Kiddý okkar, það er komið að kveðjulokum og minn- ingin um þig mun lifa hjá okkur. Við sendum innilegar samúðar- kveðjur til hans Grettis þíns og viljum kveðja þig með þessum orðum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Fríða, Ragna, Birna og Leó. Forvitin, ferðaglöð, minnug, trygglynd, góð. Þetta eru lýsing- arorð sem koma upp í hugann þegar ég minnist frænku minn- ar, Kristínar Ragnarsdóttur. Góð. Stundum leit hún út eins og engill. Það vita allir sem virt hafa fyrir sér fermingarmyndina af Kiddý. Hún stendur í hvítum kyrtli og heldur í höndina á séra Jóni fyrir altarinu í Akranes- kirkju og heiðríkjan í svip henn- ar er eins og á engli. Hún hafði djúp, himinblá augu sem lýstu fullkomnu trúnaðartrausti hrein- lyndrar sálar. Kiddý var þremur árum eldri en ég og við lékum okkur oft saman þegar við vorum börn. Við tilheyrðum stórri og stund- um háværri fjölskyldu sem kom saman á stórhátíðum, fyrst hjá afa og ömmu á Sunnubrautinni, síðar á heimilum barnanna þeirra. Þar var mikið drukkið af heitu súkkulaði með rjóma og borðaðar gómsætar kökur af ótal sortum. Þar voru sagðar sögur, farið í leiki og slegið í slag. Kiddý hafði mjög gaman af því að spila vist. Kiddý bjó alla tíð við mikið ástríki foreldra sinna sem studdu hana með ráðum og dáð. Systkini hennar unnu henni heitt. Sjúkdómur sem hún fékk í æsku hafði áhrif á skólagönguna en hún lauk gagnfræðaprófi með sóma. Að því loknu fór hún fljót- lega að vinna fyrir sér. Lengst vann hún í fiski hjá HB & Co og þar kynntist hún manninum sín- um sem síðar varð, Gretti Há- konarsyni. Þegar ég flutti um skeið til Svíþjóðar með fjölskyldu minni á seinni hluta níunda áratugarins sagði Kiddý: „Ég ætla að koma og heimsækja þig.“ Og hún lét verða af því í kringum Jónsmess- una 1989, Midsommar, sem er hin eiginlega þjóðhátíð Svía. Þetta var í fyrsta skipti sem Kiddý flaug ein til útlanda, hún kveið því nokkuð, en allt gekk eins og í sögu og við áttum dásamlega viku saman, frænk- urnar. Svíþjóð skartaði sínu feg- ursta, gróðurinn í fullum blóma, veðrið eins og best varð á kosið og við gengum léttklæddar um hverfið okkar, Skogås, með yngstu dóttur mína rúmlega árs- gamla í kerru. Við tókum „pend- elinn“ inn í miðborg Stokkhólms, fórum í Gamla Stan, á Gröna Lund og Skansen. Við gerðum góða ferð með lestinni til Upp- sala, skoðuðum margra alda gamla dómkirkjuna, háskóla- hverfið, Fýrisána, allt sem dreg- ur að ferðalanga. Og Kiddý hélt áfram að vera ferðalangur. Hún hafði reyndar þegar þarna var komið sögu séð miklu meira af Íslandi en ég, farið með ferðahóp mömmu og ömmu um hálendið, séð útnes og eyjar sem ég hef ekki enn augum litið. Þegar Kiddý giftist Gretti fékk hún ekki bara góðan eig- inmann og sálufélaga, heldur nýjan ferðafélaga og þau voru lengst af mjög dugleg að fara um landið og ferðast til útlanda. Og Kiddý hafði gaman af því að segja manni fréttir úr ferðum sínum og af öðru sem vakið hafði áhuga hennar. Maður gat treyst á fréttir sem Kiddý sagði. Nú er Kiddý farin í sína hinstu ferð. Það veldur sárum sting í brjósti mínu. Fallegu, bláu augun hennar Kiddýjar horfa ekki framar í okkar augu. Veröldin er góðri manneskju fá- tækari. Ég kveð kæra frænku mína með söknuði og votta eftirlifandi eiginmanni hennar, Gretti Há- konarsyni, systkinum hennar og fjölskyldunni allri innilega sam- úð mína. Steinunn Jóhannesdóttir. Ástin sigrar allt og saga þeirra hjóna Kristínar og Grettis væri hæglega efni í bók sem seldist í milljónatali hefði Bar- bara Cartland komist í tæri við efnið. Þegar Kiddý varð loks partur af lífi frænda og þá um leið hluti af fjölskyldunni okkar hætti Grettir frændi að tala um sig í eintölu og allt sem hann hafði að segja varð að „við“. „Hvernig hefur þú það, frændi?“ spurði ég. „Við höfum það gott,“ svaraði hann þá að bragði. Ávallt svo stoltur af konunni sinni og lífi þeirra, Kiddý var hans eitt og allt. Samband þeirra hjóna var einstakt og umvöfðu þau líf hvort annars hlýju, gleði, virðingu og endalausri umhyggju. Höggið við skyndilegt fráfall Kiddýjar er mikið og síst átti ég von á því þegar ég heimsótti þau nú í lok mars að svo stutt væri eftir. Þá voru þau söm við sig, frændi talandi í fleirtölu, þau hefðu það gott og hefðu hvort annað og saman færu þau í gegn- um þessa skrítnu tíma sem við lifum nú. Kiddý var eitthvað slöpp en rölti þó fram í gættina til að kasta kveðju á okkur mæðgur þar sem við stóðum (í hæfilegri fjarlægð) frammi á gangi og spjölluðum við frænda. Sú ást, umhyggja og fegurð sem Kiddý kom með inn í líf frænda verður seint fullþökkuð. Elsku Grettir, missir þinn er mikill en minning um yndislega manneskju sem gæddi líf þitt ást og hlýju lifir og yljar þér vonandi um ókomna tíð. Öðrum ástvinum Kiddýjar sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Í dag kveðjum við kæra skóla- systur, Kristínu Ragnarsdóttur, hana Kiddý okkar, sem lést eftir stutt veikindi. Kiddý var í hópi okkar stúlknanna sem hófum nám í Hússtjórnarskóla Borg- firðinga á Varmalandi haustið 1966. Kynnin voru góð, Kiddý var glaðvær og góður félagi, hlát- urmild og hlý. Allt handverk lá vel fyrir Kiddý sem og önnur þau störf sem okkur voru falin, þar lét hún sitt ekki eftir liggja. Í þau skipti sem við skólasystur höfum haldið afmælismót, nú seinast 2017 í Reykholti í Borg- arfirði, mætti Kiddý þar með sitt hlýja viðmót og bjarta bros. Hún naut sín vel þegar gamlar stund- ir voru rifjaðar upp, hafði gott minni og gat oft leitt okkur áfram í upprifjun góðra minn- inga. Hennar verður minnst með söknuði. Kiddý var ættuð frá Akranesi og þar bjó fólkið hennar og þar kynntist hún honum Gretti sín- um. Þau störfuðu þar og bjuggu alla tíð. Ég beið þín lengi, lengi, mín liljan fríð, stillti mína strengi gegn stormum og hríð. Ég beið þín undir björkunum í Bláskógahlíð. Ég leiddi þig í lundinn, mín liljan fríð, sól skein á sundin um sumarlanga tíð. Og blærinn söng í björkunum í Bláskógahlíð. Leggur loga bjarta, mín liljan fríð, frá hjarta til hjarta, um himinhvelin víð. Og blítt er undir björkunum í Bláskógahlíð. (Davíð Stefánsson) Lífsgöngu er lokið. Gretti eiginmanni Kiddýjar, systkinum hennar og öðrum ást- vinum vottum við okkar dýpstu samúð. Missir þeirra er mestur. Hvíl í friði, kæra skólasystir. Varmalandssystur kveðja, Sigrún Guðmundsdóttir. Kristín Ragnarsdóttir Frú GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR fyrrverandi húsmóðir í Reynihlíð, verður jarðsungin frá Reykjahlíðarkirkju laugardaginn 9. maí. Vegna samkomutakmarkana er athöfnin aðeins opin boðsgestum, en henni verður útvarpað og streymt. Þeir sem vilja votta henni virðingu eru velkomnir í Reykjahlíðarkirkju sama dag milli kl. 10 og 14. Snæbjörn Pétursson Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS H. BERGS fv. forstjóra SS og aðalræðismanns Kanada. Sérstakir þakkir færum við sr. Sveini Valgeirssyni, Frímúrareglunni á Íslandi, Sendiráði Kanada á Íslandi, Félagi kjörræðismanna og fjölmörgum einstaklingum sem heiðruðu minningu hans með blómum, minningarkortum og öðrum kveðjum. Hjartans þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir einstaka umönnun og alúð. Jón Gunnar Bergs María Soffía Gottfreðsdóttir Magnús Helgi Bergs Klara Zelei Björn B. Alfreðsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDUR JÓNSSON skipamiðlari, sem lést miðvikudaginn 29. apríl, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 8. maí klukkan 15. Nánasta fjölskylda verður við útförina, en henni streymt á www.facebook.com/groups/thorvaldur Áslaug Þorvaldsdóttir Guðrún Marta Þorvaldsdóttir Ómar Benediktsson Elsa Sigríður Þorvaldsdóttir Sveinbjörn Sigurðsson Anna Katrín Þorvaldsdóttir Þorvaldur Þór Þorvaldsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur, faðir, tengdafaðir og afi, EYMUNDUR ÞÓRARINSSON frá Saurbæ, Skagafirði, lést á HSN Sauðárkróki 30. apríl. Útför hans verður frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 8. maí klukkan 14. Vegna aðstæðna þarf að takmarka aðgang að kirkjunni, en útvarpað verður frá athöfnini á FM 107,2. Einnig verður hægt að fylgjast með streymi gegnum Facebook-síðu Sauðárkrókskirkju. Margrét Björnsdóttir Ástríður M. Eymundsdóttir Þórarinn Eymundsson Sigríður Gunnarsdóttir Hallgrímur Eymundsson Heiðrún Ósk Eymundsdóttir Pétur Örn Sveinsson og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURJÓN GUÐJÓNSSON vélfræðingur, Vorsabæ 8, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 17. apríl, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn 6. maí klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu mun útförin fara fram í kyrrþey, verður eingöngu nánasta fjölskylda viðstödd athöfnina. Athöfninni verður streymt frá þessari vefslóð: https://youtu.be/K_iuVR84_AM Magnea Helgadóttir Ragna Jóna Sigurjónsdóttir Magnús Matthíasson Helgi Sigurjónsson Freydís Ármannsdóttir Ingibjörg Sigurjónsdóttir Grímur Þór Gretarsson barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi að- eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.