Morgunblaðið - 05.05.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020
Góð þjónusta í tæpa öld
10%afslátturfyrir 67 ára
og eldri
60 ára Hrafnkell ólst
upp í Vesturbæ Reykja-
víkur en býr í Kópavogi.
Hann er með BSc.-
gráðu í tölvunarfræði
frá HÍ og MSc. frá Uni-
versity of Pittsburgh.
Hrafnkell er forstjóri
Póst- og fjarskiptastofnunar.
Maki: Björg Eysteinsdóttir, f. 1961, hjúkr-
unarfræðingur og deildarstjóri á svefn-
deild Landspítalans.
Börn: Margrét Lilja, f. 1989, Snorri, f.
1993, og tvíburarnir Eysteinn og Elín
Sóley, f. 1998. Barnabarn er Freyja Vök,
dóttir Margrétar.
Foreldrar: Gísli Guðmundsson, f. 1917,
d. 1998, lögreglumaður, og Elín Helga
Þórarinsdóttir, f. 1925, d. 2013, dóm-
ritari. Þau voru búsett í Reykjavík.
Hrafnkell Viðar
Gíslason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur látið margt reka á reið-
anum en nú verður ekki hjá því komist að
taka málin föstum tökum. Leyfðu öðrum að
njóta sín eins og þú vilt fá að njóta þín sjálf-
ur.
20. apríl - 20. maí
Naut Sannaðu trúna sem þú hefur á sjálfan
þig með því að fylgja eftir hugmyndum þín-
um af fullum krafti. Forðastu að dragast inn
í deilur annarra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þegar í öngstræti er komið er gott
að hugsa málin alveg upp á nýtt. Sættu þig
við þau takmörk sem þér eru sett.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú gefst ekki upp fyrr en í fulla
hnefana, en viðfangsefnið hefur misst að-
dráttarafl sitt. Aðrir þarfnast þín og þú ert
nógu sterkur til að deila með þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þú skiljir ekki lífið til fulls er engin
ástæða til þess að láta hugfallast. Láttu
aðra um þau verk sem þú þarft ekki að
sinna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ímyndunaraflið er af hinu góða ef
menn kunna að hafa á því hemil og gera
greinarmun á draumi og veruleika. Sýndu
fjölskyldumeðlimum þolinmæði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Að lifa í botn hefur ekki sömu merk-
ingu í þínum huga og ástvina þinna. Fjár-
festing í menntun skilar þér umtalsverðum
hagnaði eftir nokkra mánuði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt erfitt með að einbeita
þér að því sem fyrir liggur. Sumt reddast og
annað á bara að fara eins og það fer.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er þín stund komin því eftir
því er beðið að þú segir hug þinn og fylkir
fólki á bak við þig. Þú ert góður í að hlusta á
aðra og vera öxlin sem þeir geta grátið við.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Búðu þig undir að grípa þau
tækifæri sem þér bjóðast til ferðalaga og
framhaldsmenntunar. Einbeittu þér að því
sem þú veist að þér ber að gera.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Peningar eru nauðsynlegir en
þeir eru ekki allt. Skoðanir þínar eiga fullan
rétt á sér en þetta er ekki rétti tíminn til að
halda þeim á lofti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu það ekki hvarfla að þér að láta
aðra um að leysa þín mál. Gerðu þig kláran
til að kynna þeim hugmyndir þínar.
ins sem annaðist byggingu, fjár-
mögnun og undirbúning að rekstri
Hörpu, og ég gat ekki sagt nei. Ég
leit á þetta nánast sem þegnskyldu-
vinnu á þeim myrka tíma. Þarna
eignaðist ég úrvals samstarfsfólk og
saman kláruðum við verkefnið á
tíma og á kostnaðaráætlun.“
Eftir Hörpu sinnti Pétur aðallega
stjórnarstörfum í fyrirtækjum.
„Mér sýnist ég hafa setið í stjórnum
32 fyrirtækja auk ýmissa félaga og
sýni og samstilltu átaki urðum við
eitt stundvísasta flugfélag Evrópu,
með einn yngsta flugflotann og þjón-
ustu sem tekið var eftir.“
Vorið 2008 fannst mér tími kom-
inn til að reyna eitthvað annað, en
var þó í stjórn Icelandair Group til
2010. Ég fór í ráðgjafastörf og vann
mikið með breskum rekstrar-
ráðgjöfum. En svo hringdi síminn og
ég var beðinn að gerast starfandi
stjórnarformaður Portusar, félags-
P
étur Jónasson Eiríksson
fæddist 5. maí 1950 í
Reykjavík og ólst þar
upp og í Gautaborg þar
sem faðir hans kenndi
við háskólann. Eins og títt var í þá
daga byrjaði hann snemma að vinna
í fríum og með skóla, fyrst, 11 og 12
ára gamall, sem sendill á veturna í
dómsmálaráðuneytinu og síðan
sveitastörf og liðléttingsstörf á síld-
arplani á Hjalteyri. „Sveitaferillinn
náði hámarki 16 ára, þegar ég eftir
fjögurra sumra starf varð fjósamað-
ur í Fagraskógi í Eyjafirði. Samhliða
því náði ég nokkrum vöktum í síld-
arverksmiðjunni á Hjalteyri.“
Pétur varð stúdent frá MH 1970
og hóf nám í viðskiptafræði við Há-
skóla Íslands en færði sig yfir í hag-
fræðinám við University of Edin-
burgh þar sem hann lauk B.Sc.--
prófi. Pétur fór síðan í meistaranám
við Háskólann í Gautaborg.
„Með háskólanámi var ég blaða-
maður á Morgunblaðinu, bæði í frí-
um og með námi í Skotlandi. Þá var
mikið um að vera enda þorskastríð í
fullum gangi sem gaf námsmanni
skotsilfur. Ég var virkur í pólitíkinni
á þessum árum, sat í stjórnum
Heimdallar og SUS og náði að verða
varaformaður Vöku hálfa árið sem
ég var í Háskóla Íslands. Eftir nám
varð ég fastráðinn blaðamaður á
Morgunblaðinu og fékk gott uppeldi
hjá þeim Styrmi og Matthíasi.“
Eftir Moggann varð Pétur
aðstoðarframkvæmdastjóri blaða-
útgáfunnar Frjáls framtaks og vorið
1981 fór hann til Flugleiða, þar sem
hann var næstu 28 árin. „Þetta voru
spennandi ár. Ég var heppinn og
fékk að prófa margt, markaðs-
rannsóknir, samningagerð um flug í
Alsír og Nígeríu, varð svæðisstjóri í
Skandinavíu með aðsetur í Stokk-
hólmi, en lengst af framkvæmda-
stjóri. Undir stjórn Sigurðar Helga-
sonar urðu miklar breytingar. Við
vorum stolt af félagi okkar, sem þó
var eitt versta flugfélag í Evrópu.
Flugvélarnar voru gamlar, stund-
vísin slæm og lítill peningur í kass-
anum. Á fáum árum var flugflotinn
endurnýjaður, nýtt leiðakerfi byggt
upp og þjónustan bætt. Með bjart-
stofnana. Meðal kærra verkefna
voru formennska í Félagsstofnun
stúdenta og körfuknattleiksdeild ÍR,
en þar byrjaði körfuboltaferill minn
sem endaði í liði Edinborgar-
háskóla.“ Núna er Pétur stjórnar-
formaður Íslensku óperunnar og
situr í stjórn Listasafns Einars
Jónssonar.
„Konunni minni kynntist ég auð-
vitað í flugvél og saman höfum við
deilt sætu og súru í 47 ár. Sameigin-
legt áhugamál er hestamennska og
við eigum okkar paradís í Landsveit
þar sem hestarnir ganga á sumrin,
stundum trjárækt og hollt útilíf.
Annars hneigist ég mikið að góðum
bókmenntum og klassískri tónlist
ásamt útivist og ferðalögum.
Hvað gerir maður svo á afmælis-
daginn í tímum veirunnar? Svo sem
ekkert. Í ár verður matarboð fyrir
sex að duga enda þarf að ætla sér
gott rými.“
Fjölskylda
Eiginkona Péturs er Erla Sveins-
dóttir, f. 19.3. 1950, fyrrverandi flug-
freyja. Þau eru búsett í Reykjavík.
Foreldrar Erlu: Sveinn Sæmunds-
son, f. 9.4. 1923, d. 26.3. 2017, blaða-
fulltrúi, og Hrefna Svava Guð-
mundsdóttir, f. 27.5. 1925, d. 17.12.
Pétur J. Eiríksson, hagfræðingur og fv. framkvæmdastjóri – 70 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Jóhanna Dögg, Freyja, Pétur og Erla.
Kom Hörpu heilli í höfn
Á góðri stund hjá Icelandair Frá vinstri: Jón Karl Ólafsson, Davíð Másson,
Pétur J. Eiríksson, Kári Kárason og Hafþór Hafsteinsson.
Hestamaðurinn Pétur með Héðni,
vini sínum, uppi í Landsveit.
40 ára Guðrún ólst
upp í Stykkishólmi en
býr í Garðabæ. Hún
er íþróttafræðingur
að mennt frá Háskól-
anum í Reykjavík og
er íþróttakennari í
Hofsstaðaskóla. Guð-
rún er fyrirverandi leikmaður KR í körfu-
bolta.
Maki: Hreiðar Bjarnason, f. 1973, fjár-
málastjóri Landsbankans.
Börn: Silja Björg, f. 2004, og tvíburarnir
Hildur Elísabet og Bjarni Emil, f. 2010.
Foreldrar: Sesselja Sveinsdóttir, f.
1954, vinnur á Sankti Franciskusspít-
alanum í Stykkishólmi, og Sigurður
Kristinsson, f. 1951, eigandi Bókhalds-
stofunnar Stykkishólmi. Þau eru búsett
í Stykkishólmi.
Guðrún Arna
Sigurðardóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is