Morgunblaðið - 05.05.2020, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Opnun hinnar umfangsmiklu nýju
samtímamyndlistarstofnunar GES-2
í Moskvu sem var fyrirhuguð í haust
hefur verið frestað fram í mars á
næsta ári vegna veirufaraldursins.
Stofnunina á að opna með afar um-
fangsmiklum gjörningi og sýningu
Ragnars Kjartanssonar.
GES-2 er í fyrrverandi orkuveri
skammt frá Kreml sem milljarða-
mæringurinn Leonid Mikhelson hef-
ur umbreytt í 41.000 fermetra lista-
miðstöð, með sýningarsölum,
vinnustofum og veitingastöðum sem
stjörnuarkitektinn Renzo Piano
hannaði.
Ragnar mun ásamt fjölmennum
hópi aðstoðarfólks endurgera í
stofnuninni fjölda þátta úr banda-
rísku sjónvarpsþáttaröðinni Santa
Barbara. Mun hann byrja á að
endurskapa þátt 217, sem var sá
fyrsti sem sýndur var i Rússlandi ár-
ið 1992, og verður að minnsta kosti
einn þáttur tekin upp daglega að
viðstöddum gestum sem leggja leið
sína í GES-2.
Þegar hugmynd Ragnars var
kynnt í Moskvu í fyrra sagði í yfir-
lýsingu frá V-A-C-stofnuninni, sem
stendur að baki listamiðstöðinni, að
Ragnar fengi allt rýmið fyrir önnur
verk sín og þennan gjörning, sem
myndi sýna hvernig öflugir kraft-
arnir að baki slíku drama – sömu
kraftar og listamaðurinn leikur sér
með í verkum sínum – „gætu haft
áhrif á veruleikann, og hvernig
skáldskapur og listir gætu haft áhrif
á heiminn“. Þá sagði að Ragnar
fengi í stofnuninni leyfi til að ráðsk-
ast með allt það sem gert er þar inn-
an dyra og þannig tímabundið skapa
stofnun drauma sinna.
Glersalir Teikning frá arkitektastofu Renzo Piano sýnir hluta rýmis GES-2 sem Ragnar
Kjartansson tekur yfir þegar viðamikill gjörningur hans hefst við opnunina í mars.
Opnun GES-2-stofnunarinnar í Moskvu
seinkað – Ragnar Kjartansson sýnir
Nígeríski trommuleikarinn Tony
Allen er látinn, 79 ára að aldri.
Allen er hvað þekktastur fyrir að
hafa verið ásamt Fela Kuti, sam-
starfsmanni sínum á 7. og 8. ára-
tugnum, höfundur svokallaðs afró-
bíts, hinnar vinsælu afrísku
dægurtónlistarstefnu sem bræddi
saman djass, fönk og afríska al-
þýðutónlist. Margir sérfræðingar
hafa talið hann meðal allra bestu
trommuleikara sögunnar; til að
mynda segir breski tónlistamað-
urinn Brian Eno að hann hafi verið
sá allra besti. Banamein Allens var
innvortis blæðingar.
Allen var alla tíð tilraunagjarn
og starfaði síðustu áratugi með
fjölda annarra þekktra listamanna
á Vesturlöndum, til að mynda með
Damon Albarn á nokkrum plötum,
og með röppurum og danstónlistar-
mönnum. Hann kom fyrir níu árum
fram í Hörpu ásamt stórsveit Sam-
úels Jóns Samúelssonar.
Áhrifamikill Tony Allen við settið.
Meistaratrymbillinn Tony Allen allur
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég er ákaflega stolt af því að vera
partur af hljómsveit sem tekst á við
nýjar áskoranir af jákvæðni og er
tilbúin að laga sig að aðstæðum
hverju sinni,“ segir Lára Sóley
Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ).
Þegar samkomubannið var sett á í
mars ásamt ferðatakmörkunum
vegna kórónuveirufaraldursins var
ljóst að aflýsa þyrfti öllum tónleikum
sem eftir væri á yfirstandandi
starfsári. Með breytingum á sam-
komubanni frá 4. maí verður aftur
breyting á dagskrá hljómsveit-
arinnar.
„Síðustu vikur hafa ýmsir
kammerhópar úr hljómsveitinni
komið fram á tónleikum í Eldborg í
beinu streymi þrisvar í viku,“ segir
Lára Sóley, en um var að ræða sam-
starf við Hörpu og Íslensku óp-
eruna. „Fimmtudagskvöld hafa ver-
ið sinfóníukvöld á RÚV 2 og
persónulegar heimsendingar hljóð-
færaleikara hafa slegið í gegn á sam-
félagsmiðlum hér heima og erlend-
is,“ segir Lára Sóley og tekur fram
að með breytingum á samkomu-
banni í þessari viku aukist mögu-
leikar hljómsveitarinnar í starfi.
Sumargjöf til skólabarna
„Rýmkun á samkomubanninu nú
þýðir að nú getur stærri hluti hljóm-
sveitarinnar komið fram á ný og
munum við halda ferna tónleika fyr-
ir landsmenn næsta mánuðinn í
beinni sjónvarpsútsendingu á
RÚV,“ segir Lára Sóley og tekur
fram að hljóðfæraleikarar sveitar-
innar hlakki til að geta hist aftur og
spilað saman þó allir geri sér grein
fyrir að þeirra bíði ýmsar áskoranir.
„Að sjálfsögðu förum við eftir öll-
um fyrirmælum Almannavarna og
virðum regluna um tveggja metra
fjarlægð. Hljómsveitin mun því
starfa í breyttri mynd þar sem að
hámarki 50 listamenn geta komið
saman á sviðinu í Eldborg hverju
sinni,“ segir Lára Sóley og tekur
fram að leikar hefjist á fimmtudag
með Barnastund kl. 11 sem send
verði til leik- og grunnskóla um land
allt í beinu streymi á vef hljómsveit-
arinnar auk þess sem tónleikarnir
verða sýndir beint RÚV 2.
Segir hún dýrmætt að geta hafið
dagskrána í maí á því að senda börn-
um landsins og kennurum þeirra
sumargjöf fyrstu vikuna sem skóla-
hald er aftur komið í eðlilegt horf. „Í
samstarfi við Hörpu munu tveir
skólahópar vera gestir í sal á tón-
leikunum. Það er í sjálfu sér mikil
áskorun, en gríðarlega mikilvægt
skref. Í þessum nýja veruleika sem
við búum í verða margar slíkar
áskoranir framundan og mikilvægt
að við byrjum strax að takast á við
þær og læra,“ segir Lára Sóley og
tekur fram að hljómsveitin taki eina
viku í einu. „Það eina sem við vitum
þegar við gerum plönin okkar er að
þau eiga mjög líklega eftir að breyt-
ast,“ segir Lára Sóley og tekur fram
að óráðlegt væri að bíða eftir því að
allt verði eins og það var áður en
kórónuveirufaraldurinn braust út.
„Því hlutirnir verða sennilega aldrei
alveg eins og þeir voru áður.
Listafólk í heimsklassa
Við erum einstaklega lánsöm að á
Íslandi býr og starfar listafólk í
heimsklassa sem við getum leitað
til,“ segir Lára Sóley og bendir á að
meðan ferðatakmarkanir séu í gildi
verði ekki hægt að fá einleikara og
stjórnendur að utan. „Samkvæmt
starfsáætlun átti Hallveig Rúnars-
dóttir sópran að koma fram með
hljómsveitinni í maí og það er okkur
ánægjuefni að hún kemur fram á
tónleikum 20. maí,“ segir Lára Sóley
og tekur fram að endurhugsa hafi
þurft efnisskrána í ljósi fámennari
hljómsveitar. Á efnisskránni verða
þrjár óperuaríur eftir W.A. Mozart
auk þess sem Hallveig syngur þrjú
sígild íslensk sönglög. Einnig leikur
Sigrún Eðvaldsdóttir Méditation, úr
óperunni Thaïs eftir Massenet, en
hljómsveitarstjóri er Bjarni Frí-
mann Bjarnason.“
Fimmtudaginn 28. maí stígur Páll
Óskar á svið Eldborgar og flytur
mörg af sínum þekktustu lögum í út-
setningum fyrir sinfóníuhljómsveit.
„Páll Óskar hefur um áratuga skeið
verið ein skærasta poppstjarna
Íslands og kom fram með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands á tónleikum árið
2011 við frábærar undirtektir þar
sem færri komust að en vildu. Það er
því frábært að fá hann til liðs við
okkur,“ segir Lára Sóley.
Fimmtudaginn 4. júní verður Vík-
ingur Heiðar Ólafsson í einleiks-
hlutverkinu með hljómsveitinni und-
ir stjórn Daníels Bjarnasonar, aðal-
gestastjórnanda SÍ. „Víkingur er
einn dáðasti píanóleikari samtímans
og hefur hlotið lof um allan heim fyr-
ir tónleika sína og hljóðritanir á
undanförnum árum,“ segir Lára Sól-
ey og tekur fram að ánægjulegt sé
að geta lokið þannig yfirstandandi
starfsári. Á efnisskránni eru píanó-
konsert nr. 23 eftir Mozart og Alle-
gretto úr 7. sinfóníu Beethovens.
Krefst hugmyndaflugs
Aðspurð segir Lára Sóley það
hafa verið afar lærdómsríkt að taka
þátt í því að aðlaga starfsemi hljóm-
sveitarinnar að samkomubanni.
„Venjulega eru um 90 manns á sviði
sem sitja þétt og listamenn alls stað-
ar að úr heiminum gestir okkar í
hverri viku. Það hefur því krafist
útsjónarsemi og hugmyndaflugs að
endurskipuleggja starfið,“ segir
Lára Sóley og viðurkennir að þetta
hafi verið mikil áskorun.
Í ljósi þess að starfsár sinfóníu-
hljómsveita eru skipulögð með mjög
löngum fyrirvara, en enginn veit á
núverandi tímapunkti hvenær er-
lendir listamenn geta komið til
landsins vegna ferðatakmarkana,
liggur beint við að spyrja hvernig
næsta starfsár komi til með að líta
út. „Vegna samkomubannsins þurfti
að fresta og fella niður töluvert af
viðburðum á yfirstandandi starfsári.
Við höfum því skoðað hvort hægt sé
að koma þeim inn í komandi dag-
skrá,“ segir Lára Sóley og bendir á
að langt sé síðan starfsárið 2020-
2021 var tilbúið.
„Í raun var skipulagning vegna
starfsársins 2021-2022 langt komin
þegar faraldurinn braust út. Við er-
um að velta ýmsum hlutum upp með
skipulagninguna,“ segir Lára Sóley
og tekur fram að fróðlegt verði að
sjá hvort og hvernig ferðatakmörk-
unum verða aflétt. „Ég reikna með
að upp úr miðjum maí getum við tek-
ið ákvörðun um hvernig við munum
haga starfsárinu næsta að minnsta
kosti fram til áramóta,“ segir Lára
Sóley og bætir við:
„Eins og staðan er núna er ekki
hægt að horfa of langt fram í tímann.
Við erum búin að teikna upp ýmsar
sviðsmyndir og verður svo bara að
spila hlutina eftir eyranu og hafa
æðruleysið að leiðarljósi,“ segir
Lára Sóley og áréttar að styrkleikar
Sinfóníuhljómsveitar Íslands felist
ekki síst í því að starfsfólk sveit-
arinnar sé tilbúið að takast á við
breyttar aðstæður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Styrkleiki Lára Sóley Jóhannsdóttir segir styrkleika Sinfóníuhljómsveitar-
innar felast í því að starfsfólkið sé tilbúið að takast á við breyttar aðstæður.
„Nýjar áskoranir“
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ferna tónleika í maí í
beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV Ýmsar sviðsmyndir
Páll Óskar
Hjálmtýsson
Hallveig
Rúnarsdóttir
Víkingur Heiðar
Ólafsson
Daníel
Bjarnason