Morgunblaðið - 13.05.2020, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 112. tölublað 108. árgangur
GETI TRYGGT
SAMGÖNGUR
TIL LANDSINS RÆKTA SINNEPSPLÖNTUR
DUSTAÐ ÚR
SÁLARTETRINU
MEÐ SKRIFUM
BÝFLUGNABÆNDUR 6 STEFÁN ÞÓR 25VIÐSKIPTAMOGGINN
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Kjörvextir viðskiptabankanna, sem
flest lítil og meðalstór fyrirtæki
greiða af lánum sem tekin eru hjá
bönkunum, hafa farið lækkandi á síð-
ustu misserum. Þegar lækkunarferill
þeirra er hins vegar borinn saman við
stýrivaxtalækkanir Seðlabanka Ís-
lands kemur í ljós að bankarnir hafa
dregið lappirnar við lækkun vaxta.
Frá því um mitt síðasta ár hefur
peningastefnunefnd Seðlabankans
ítrekað lækkað vexti og nemur upp-
söfnuð lækkun nú 2,75 prósentum. Á
sama tíma hafa óverðtryggðir kjör-
vextir Arion banka lækkað um 1,65
prósentur en hjá Íslandsbanka nemur
lækkunin aðeins 1,2 prósentum.
Landsbankinn hefur hins vegar lækk-
að um 1,55 prósentur á þessum tíma.
Áhrif vaxtalækkana Seðlabankans
koma betur fram í vaxtakjörum
stærri fyrirtækja en í flestum tilvik-
um eru kjör þeirra tengd þróun svo-
kallaðra REIBOR-vaxta sem ákvarð-
ast á markaði. Hafa þeir þróast í
eðlilegum takti við ákvarðanir pen-
ingastefnunefndarinnar.
Vaxtaálag hefur einnig áhrif
Kjörvextirnir sem slíkir segja þó
ekki alla söguna því þeir mynda
vaxtagólfið hjá bönkunum. Ofan á þá
leggst svo álag sem bankarnir
ákvarða og er misjafnt milli fyrir-
tækja og atvinnugreina. Heimildir
ViðskiptaMoggans herma að þetta
álag hafi í mörgum tilvikum farið
hækkandi á undanförnum vikum og
mánuðum. Sérfræðingur á fjármála-
markaði sem blaðið hefur rætt við
segir að um 2.000 milljarðar af útlána-
safni bankanna séu veittir á kjörvöxt-
um og öðrum þeim vöxtum sem bank-
arnir ákvarða handvirkt. Myndu
bankarnir lækka þessa vexti um eitt
prósentustig myndi það lækka vaxta-
kostnað íslenskra heimila og fyrir-
tækja um 20 milljarða á ársgrundvelli.
Sú lækkun yrði meiri ef bankarnir
hefðu fylgt fast á hæla Seðlabankans í
þeim ákvörðunum sem hann hefur
kynnt á síðustu 12 mánuðum.
Bankarnir fylgja ekki
leiðsögn Seðlabankans
Kjörvextir lækka ekki í takt við breytingar stýrivaxta
MSkila ekki ... »ViðskiptaMogginn
Þyrla var til malarflutninga við endurbætur á
göngustígum hátt uppi í hlíðum Esjunnar við
Mógilsá í gær. Leiðin þar á fjallið er mjög
fjölfarin af göngufólki og því þurfti endur-
bætur á svæðinu, sem Skógræktarfélag
Reykjavíkur hefur umsjón með. Bæði er
leiðin að Steini og þaðan áfram á Þverfells-
horn lagfærð með ofaníburði á leirkenndum
stíg en einnig verður útbúinn nýr stígur
austur og inn með fjallinu í Kollafjarðarbotn,
þar sem hafa verið lagðar fjallahjólabrautir
og göngustígur í fallegri náttúru. »8
Þyrlan reyndist vel við malarflutninga í Esjuhlíðum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eftirlaunasjóður félags íslenskra
atvinnuflugmanna (EFÍA) hefur
minnkað verulega hlut sinn í Ice-
landair frá árinu 2017. Nam eign-
arhlutur sjóðsins þá um 0,53% sam-
kvæmt ársreikningi. Nú nemur
eignarhlutur sjóðsins í flugfélaginu
um 0,19%, sem er rétt ríflega þriðj-
ungur eignarhlutarins árið 2017.
Sjóðurinn hefur því selt um 64%
bréfa sinna í félaginu síðustu tvö ár.
Ekki er vitað um hreyfingar sjóðsins
það sem af er ári eða hvort einhver
viðskipti hafi verið með hlutabréf
Icelandair. »ViðskiptaMogginn
Flugmenn minnkað
hlut sinn í Icelandair
Morgunblaðið/Eggert
Icelandair Sjóðurinn hefur selt um 64%
bréfa sinna í félaginu síðustu tvö ár.
Ríkisstjórnin ákvað í gærmorgun
að stefna að því að eigi síðar en 15.
júní gætu þeir sem koma til lands-
ins farið í skimun fyrir kórónuveir-
unni á Keflavíkurflugvelli. Reynist
sýnataka neikvæð þarf viðkomandi
ekki að fara í tveggja vikna sóttkví.
Einnig er gert ráð fyrir að nýleg
vottorð um sýnatöku erlendis verði
tekin til greina, meti sóttvarna-
læknir þau áreiðanleg.
Enn er óljóst hvort stjórnvöld eða
ferðamenn munu standa straum af
kostnaði við skimanir en stjórnvöld
vinna nú að nánari útfærslu á þess-
um breyttu ráðstöfunum. »4
Morgunblaðið/Kristinn
Fundur Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra kynnti breyttar ráðstafanir í gær.
Ferðamenn fá að
sleppa við sóttkví