Morgunblaðið - 13.05.2020, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020
Kylfingurinn Ólafur Björn Loftsson,
sem nú keppir fyrir GKG, hóf golf-
tímabilið hér á landi af krafti á laugar-
daginn. Hann lék þá hringinn á Ecco-
mótinu á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ á 64
höggum og sigraði örugglega. Á eftir
honum komu tveir af atvinnukylfing-
unum sem bíða eftir að stóru mótin
erlendis fari af stað. Andri Þór Björns-
son úr GR varð annar á 66 höggum og
Haraldur Franklín Magnús úr GR þriðji
á 69 höggum.
Handknattleiksmaðurinn Elías
Bóasson hefur snúið aftur til Fram eft-
ir dvöl í ÍR og samið við félagið til
tveggja ára. Elías, sem er 26 ára gam-
all, hefur leikið með ÍR undanfarin þrjú
keppnistímabil þar sem hann skoraði
84 mörk í 48 leikjum á Íslandsmótinu.
Enski knattspyrnumarkvörðurinn
Lauren Allen er komin til liðs við úr-
valsdeildarlið Þórs/KA. Allen lék áður
með Chelsea, Fulham og Crystal Pal-
ace en á síðasta tímabili spilaði hún
alla 18 leiki Tindastóls í 1. deild og var
nærri því að komast óvænt upp í úr-
valsdeildina með Sauðárkróksliðinu.
Bandaríska körfuknattleikskonan
Ariel Hearn hefur samið við Fjölni um
að leika áfram með liðinu á næsta
tímabili og þá í úrvalsdeildinni. Hearn
var mjög afgerandi í vetur þegar Fjöln-
ir vann 1. deildina en hún kom til fé-
lagsins eftir áramót og skoraði í sjö
leikjum að meðaltali 24,3 stig í leik,
tók 12,7 fráköst og átti 7,3 stoðsend-
ingar.
Þýski ökuþórinn Sebastian Vettel
mun yfirgefa Ferrari eftir komandi
keppnistímabil. Vettel hefur verið í
samningaviðræðum við Ferrari að
undanförnu, en þær viðræður sigldu í
strand. Vettel er fjórfaldur heims-
meistari með Red Bull, en hann hefur
ekki náð að landa titlinum með Ferrari.
Úkraínski knattspyrnumaðurinn Ar-
tem Biesiedin hefur verið úrskurðaður
í eins árs keppnisbann af UEFA, Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, eftir að hafa
fallið á lyfjaprófi. Gildir bannið frá og
með 19. desember, en þann dag var
hann úrskurðaður í tímabundið bann.
Hinn 24 ára gamli Biesiedin hefur leik-
ið 13 landsleiki fyrir Úkraínu og skorað
tvö mörk.
Danska stórstjarnan Mikkel Han-
sen hefur verið kjörinn besti hand-
boltamaður Danmerkur í sjötta skipti.
Hansen hefur átt góðu gengi að fagna
síðasta árið, sérstaklega með félags-
liði sínu PSG.
Hlynur Bæringsson, fyrrverandi
landsliðsfyrirliði í körfuknattleik, gæti
hæglega leikið með
Stjörnunni fram að fer-
tugu. Hlynur, sem
verður 38 ára í
sumar, hefur gert
nýjan samning við
Garðabæjarliðið en
hann er til eins árs
með möguleika á árs
framlengingu. Stjarn-
an hefur sömuleiðis
samið til tveggja ára
við tvo landsliðs-
menn í sínum röð-
um, Ægi Þór Stein-
arsson og Tómas
Þórð Hilmarsson.
Ægir hefur leikið
með liðinu síðustu
tvö ár og Tómas
allan sinn feril.
Eitt
ogannað
DANMÖRK
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Arnór Atlason, fyrrverandi landsliðs-
maður Íslands í handknattleik og nú-
verandi aðstoðarþjálfari meistaraliðs
Aalborg í Danmörku, var í gær ráðinn
þjálfari danska U18 ára unglingalands-
liðsins.
Arnór, sem er 35 ára gamall, kom inn í
þjálfarateymi Álaborgarliðsins árið 2018, en hann
skrifaði nýverið undir tveggja ára framlengingu á
samningi sínum við félagið og verður hann því hjá félag-
inu til sumarsins 2022 í það minnsta.
Arnór hefur verið búsettur í Danmörku samfleytt frá árinu
2016 en ásamt því að leika með Aalborg á árunum 2016 til 2018
lék hann einnig með FCK og AG Köbenhavn í Danmörku á atvinnu-
mannaferli sínum.
„Það er mikill heiður fyrir mig persónulega að svona stórt samband
skuli leitast eftir kröftum mínum og ég er mjög stoltur og glaður yfir
því,“ sagði Arnór í samtali við Morgunblaðið. Í mínum huga fer
þetta mjög vel saman við starf mitt hjá Aalborg. Það er alveg nóg
að gera hjá félaginu í bæði deild og Meistaradeild en það mun
mæða mest á mér hjá U18 ára landsliðinu í landsleikjahléum og
þess vegna tel ég þessi störf passa fullkomlega saman.
Ég hef fengið tilboð frá öðrum liðum hérna í Danmörku í
gegnum tíðina en þegar allt kemur til alls líður mér mjög vel
hjá Aalborg. Tímasetningarnar hafa heldur ekki alltaf hentað
en þegar starfstilboðið kom frá danska handknattleiks-
sambandinu fannst mér það henta fullkomlega og þess vegna
ákvað ég að stökkva á það.“
Frábært tækifæri
Arnór var einungis 33 ára gamall þegar hann lagði skóna
á hilluna árið 2018. Hann gerði það meðal annars þar sem
hann vildi einbeita sér meira að þjálfun, en Danir eru
þekktir fyrir að framleiða frábæra handboltaleikmenn og
er Arnór afar spenntur fyrir því að vinna með mesta efni-
viði Danmerkur.
„Það er alveg ljóst að ég hefði ekki fengið þetta starf ef
það færi slæmt orð af mér hérna í Danmörku. Það er því
jákvætt að það hefur verið tekið eftir því starfi sem maður
hefur unnið undanfarin tvö ár hjá Aalborg. Þetta er líka
frábært tækifæri fyrir mig persónulega til þess að láta að
mér kveða enda fyrsta starf mitt sem aðalþjálfari ef svo
má segja. Ég þekki það ekki sérstaklega hversu margir
unglingalandsliðsþjálfarar hafa verið af erlendu bergi
brotnir hjá Danmörku í gegnum árin en þetta hefur
aðeins þekkst hjá A-landsliðinu þar sem Gummi
Gumm var auðvitað við stjórnvölinn um tíma.
Það er því ekkert einsdæmi að útlendingar þjálfi
liðin þeirra. Að sama skapi hef ég verið ansi lengi í
Danmörku núna og ég þekki allt umhverfið hérna
mjög vel. Maður veit nokkurn vegin hvernig þetta
virkar á Íslandi en ég er mjög spenntur fyrir því að
sjá hvernig Danirnir hafa verið að vinna með sínar
unglingaakademíur. Þeir eru þekktir fyrir að fram-
leiða mjög frambærilega unga leikmenn og það verð-
ur virkilega gaman að fá að vera aðeins með
puttana í því.“
Tilbúinn í áskoranir
Frá því að Arnór gerðist aðstoðarþjálfari
Aalborgar hefur liðið tvívegis orðið Dan-
merkurmeistari, 2019 og 2020 en áður varð
hann meistari með liðinu sem leikmaður árið
2017. Hann segir að þjálfarastarfið hafi kom-
ið honum á óvart og ítrekar að hann sé tilbú-
inn að leggja ýmislegt á sig til þess að ná
langt á þessu sviði handboltans.
„Það hefur komið mér á óvart hversu gam-
an ég hef af þjálfun. Þegar ég fór fyrst út í
þetta árið 2018 var planið einfaldlega að klára
samninginn og sjá hvort þetta hentaði mér eða
ekki. Markmiðið var svo alltaf að taka bara
stöðuna eftir þann tíma, en ég hef áttað
mig á því á þessum tíma að ég hef
mikinn áhuga á þessu. Ég er þess
vegna tilbúinn að leggja meira á mig
varðandi þjálfarastarfið og ég er
tilbúinn í ákveðnar áskoranir á
þessu sviði.
Sem aðstoðarþjálfari getur mað-
ur leyft sér að nördast aðeins meira
í hlutunum en sem aðalþjálfari sem
dæmi. Ég hef fengið mikla ábyrgð
hjá Aalborg og ég er mjög sáttur
við hlutskipti mitt hjá félaginu. Sam-
starfið mitt við aðalþjálfara félags-
ins, Stefan Madsen, hefur verið frá-
bært og ég er mjög þakklátur fyrir
að fá að halda starfi mínu hjá Aal-
borg, samhliða því að bæta á mig
aukastarfi hjá danska handknatt-
leikssambandinu.“
Framtíðin óráðin
Arnór hóf atvinnumannaferil sinn
með Magdeburg í Þýskalandi árið
2004 eftir að hafa leikið með KA og
skorað 129 mörk í 14 leikjum fyrir
Akureyrarliðið í úrvalsdeildinni síð-
asta tímabilið þar.
Hann gekk svo til liðs við FCK í
Danmörku árið 2006 og fluttist
með því inn í stórliðið skammlífa
AG Köbenhavn sem var stofnað árið
2010. Árið 2012 gekk hann svo til
liðs við Flensburg í Þýskalandi og
lék þar í eitt ár áður en hann færði
sig yfir til Saint-Raphaël í Frakklandi
en gekk síðan til liðs við Aalborg 2016.
Arnór segir alls kostar óvíst hvenær
hann snúi aftur heim til Íslands.
„Ég vonast fyrst og fremst til þess að
komast til Íslands á næstu vikum og að
Icelandair haldi áfram að fljúga en ég er
ekki kominn neitt lengra en það. Það
hentar ekkert sérstaklega vel að ætla að
sinna þessu starfi hjá U18 ára landsliði
Dana og búa samhliða því á Íslandi. Það gefur
því augaleið að við erum ekki á heimleið að svo
stöddu þótt að við lítum að sjálfsögðu á okkur
sem Íslendinga.
Við fjölskyldan sjáum það fyrir okkur í
framtíðinni að búa á Íslandi en að sama skapi
gaf ég það líka út á sínum tíma að ég myndi
flytja heim þegar börnin mín ættu að byrja í
skóla. Ég er að fara að ferma eitt þeirra og er
ekki enn fluttur heim, þannig að ég ætla að
segja sem minnst um það hvenær við snúum
heim.
Þegar ég hef velt næstu skrefum fyrir mér á
ferlinum, í gegnum tíðina, var það ekki ofarlega
á lista að ég yrði danskur unglingalandsliðsþjálf-
ari. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti
sér og það er mikilvægt að hoppa út í djúpu laug-
ina öðru hvoru og reyna sig á sviðum sem maður
hefur ekki prófað áður,“ sagði Arnór í samtali við
Morgunblaðið.
Reynsla
Arnór Atla-
son átti lang-
an og farsæl-
an feril sem
landsliðsmaður
Íslands og at-
vinnumaður í
Þýskalandi, Dan-
mörku og Frakk-
landi. Nú tekst hann
á við nýja áskorun
sem þjálfari.
Morgunblaðið/Golli
Arnór Atlason ráðinn unglinga-
landsliðsþjálfari hjá Dönum
Heldur áfram starfi sínu í Álaborg
Mikilvægt að hoppa öðru
hvoru út í djúpu laugina
Körfuknattleiksdeild Þórs Akur-
eyri hefur samið við serbneska
framherjann Srdan Stojanovic og
mun hann leika með liðinu á næstu
leiktíð. Stojanovic er 28 ára gamall
og hefur undanfarin tvö tímabil
leikið með Fjölni; fyrst í 1. deild og
síðan úrvalsdeild. Skoraði hann 20
stig, tók 5,8 fráköst og gaf 4,1 stoð-
sendingu að meðaltali í vetur.
Þá hefur Baldur Örn Jóhannes-
son yfirgefið félagið og skrifað
undir samning við Njarðvík. Skor-
aði hann 1,9 stig, tók 3 fráköst og
gaf 0,4 stoðsendingu í vetur.
Þórsarar semja
við sterkan Serba
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Akureyri Serbinn Srdan Stojanovic
leikur á Akureyri næsta vetur.
Skíðasamband Íslands hefur valið
öll landslið fyrir næsta vetur, tíma-
bilið 2020-2021. Valið var eftir áður
útgefinni valreglu sem kynnt var
haustið 2019. Fram undan er tíma-
bil þar sem heimsmeistaramót fara
fram í þremur greinum; alpagrein-
um, snjóbrettum og skíðagöngu. Er
þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt
landslið stefnir á þátttöku á HM í
snjóbrettum. Baldur Vilhelmsson,
Benedikt Friðbjörnsson og Marinó
Kristjánsson skipa landsliðið í snjó-
brettum, en HM verður haldið í
Kína á næsta ári.
Stefnt á HM í
fyrsta skipti
Ljósmynd/SKÍ
Bretti Marinó Kristjánsson er í ís-
lenska snjóbrettalandsliðinu.