Morgunblaðið - 13.05.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020
Bókhald & ráðgjöf
- Eignaskiptayfirlýsingar
& skráningartöflur
Numerus – bókhald og ráðgjöf / Suðurlandsbraut 22 / S. 896 4040
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Dómsmálaráð-
herra hefur
ákveðið að leggja
til við forseta Ís-
lands að Sig-
urður Tómas
Magnússon, dóm-
ari við Landsrétt,
verði skipaður
dómari við
Hæstarétt Ís-
lands frá 18. maí
næstkomandi.
Aðrir umsækjendur um embættið
voru Aðalsteinn E. Jónasson, dóm-
ari við Landsrétt, og Sigríður J.
Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. Við
skipun Sigurðar Tómasar í Hæsta-
rétt losnar embætti eins dómara við
Landsrétt sem auglýst verður laust
til umsóknar innan tíðar.
Davíð Þór Björgvinsson, vara-
forseti Landsréttar, dró umsókn
sína um stöðuna til baka í lok apríl.
Heimildir Morgunblaðsins þá
hermdu að Davíð Þór hefði gefið þá
skýringu að hann hefði gilda
ástæðu til að ætla að hann fengi
hvorki sanngjarna né óhlutdræga
meðferð fyrir hæfisnefnd.
Síðast þegar skipað var í embætti
dómara við Hæstarétt, 1. janúar sl.,
var Davíð Þór metinn hæfastur
ásamt Sigurði og Ingveldi Einars-
dóttur, sem hlaut embættið.
ragnhildur@mbl.is
Sigurður
dæmi við
Hæstarétt
Sigurður Tómas
Magnússon
Embætti dómara
við Landsrétt losnar
þetta eini lögreglubíllinn á landinu
sem ESB-fánar prýða, að sögn Jó-
hanns Karls Þórissonar, aðstoðar-
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu.
„Við fáum 75% af kostnaði bílsins
frá ESB og það þýðir að við þurfum
að merkja hann með fánum Evrópu-
sambandsins,“ segir Jóhann.
Merkingarnar eru tilkomnar að
beiðni dómsmálaráðuneytisins og tel-
ur Jóhann að fánarnir stangist ekki á
við reglur um merkingar lögreglubif-
reiða. Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu á laugardag er bílnum ætlað
að efla landamæraeftirlit á höfnum
höfuðborgarsvæðisins og Reykjavík-
urflugvelli en hann er kominn hingað
til lands vegna athugasemda Evrópu-
sambandsins um að lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu uppfyllti ekki skil-
yrði Schengen-samstarfsins.
Jóhann segir að bíllinn muni auð-
velda öflugt landamæraeftirlit á fyrr-
nefndum stöðum.
„Auk þess sem við munum geta
notað bílinn í vinnustaðaeftirlit,“ segir
Jóhann en í bílnum er sérstakur bún-
aður sem auðveldar lögreglumönnum
að sjá hvort skilríki séu fölsuð.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Tveir fánar Evrópusambandsins
prýða nýja landamærabifreið lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu sem
dómsmálaráðherra afhenti embætt-
inu í lok síðustu viku.
Er ástæðan sú að Evrópusamband-
ið stendur straum af 75% kostnaðar-
ins við bílinn í gegnum innri örygg-
issjóði sem eru hluti af fjárhags-
ramma Evrópusambandsins. Dóms-
málaráðuneytið greiðir 25%.
Tveir fánar eru á bílnum og er
Bíllinn merktur ESB
Eini íslenski lögreglubíllinn sem hefur á sér fána sam-
bandsins Lögregluþjónn telur merkingarnar löglegar
Bíll Fánarnir eru tveir en annan þeirra má sjá hér ofarlega á hurð bílsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
vinnunni í flakinu. Fram til þessa
hefur verið unnið að undirbúningi
eins og að skera rör og lagnir í burtu
og hreinsa set af dekki skipsins, en
það er orðið um fet á þykkt. El Grillo
hefur hefur legið á botni Seyðis-
fjarðar í 76 ár, en því var sökkt 1944.
Geta unnið í um 20 mínútur
Að hreinsun og öðrum undirbún-
ingi loknum er fyrirhugað að setja
steypumótið utan um leka tankinn
og gæti það gerst í dag. Í framhald-
inu hefst steypuvinna, hugsanlega á
morgun, fimmtudag. Sigurður segir
að lítið þurfi að koma upp á til að
verkið tefjist. Kafað er frá vinnu-
pramma og geta kafarar unnið í flak-
inu í um 20 mínútur í senn og á upp-
leið þurfa þeir að fara tvívegis í af-
þrýstingu á sex og þriggja metra
dýpi, í fimm til tíu mínútur í senn.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar
hafa síðan á föstudag unnið við undir-
búning að steypuvinnu á flaki El
Grillo á 32 metra dýpi á botni Seyð-
isfjarðar. Við skoðun í fyrrahaust
kom í ljós töluverður svartolíuleki úr
mannopi, sem liggur ofan í einn af ol-
íutönkum skipsins. Fyrirhugað er að
steypa fyrir opið og veitti ríkis-
stjórnin 38 milljónir til þess að koma
í veg fyrir þessa mengun.
Að sögn Sigurðar Ásgrímssonar,
yfirmanns séraðgerða hjá Land-
helgisgæslunni, gengur verkið ágæt-
lega, þótt það geti verið tafsamt.
Varðskipið Þór fór frá Reykjavík á
miðvikudag í síðustu viku með mann-
skap og búnað. Vinna hófst á föstu-
dag og taka sjö kafarar þátt í
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Í Seyðisfirði Einn kafaranna sjö kemur upp eftir að hafa kafað að El Grillo.
Tafsamt verk en gengur vel
Stefnt að því að steypa yfir einn tanka El Grillo í Seyðisfirði í vikunni
Ljósmynd/Gavia/Landhelgisgæslan
El Grillo á hafsbotni Samsett mynd sem starfsmenn Gavia Teledyne tóku af flakinu neðansjávar með hátíðnisónar úr fjarstýrðum kafbáti.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Alþjóðlega auglýsingastofan M&C
Saatchi, sem hlaut hæstu einkunn
valnefndar af innsendum tilboðum
fyrir markaðsverkefnið „Ísland –
saman í sókn“, viðurkenndi bók-
haldsmisferli í lok síðasta árs og hef-
ur breska fjármálaeftirlitið hafið
rannsókn á fyrirtækinu.
Um er að ræða 11,6 milljóna
punda skekkju í bókhaldi fyrirtækis-
ins, eða sem nemur um tveimur
milljörðum króna.
Í bókhaldi fyrirtækisins hefur
kostnaður við verkefni verið vanmet-
inn, eignir ranglega skráðar og verð-
mæti annarra eigna ofmetið. Stjórn-
endur fyrirtækisins hafa viðurkennt
að rangfærslur í bókhaldinu gætu
náð um fimm ár aftur í tímann.
Maurice Saatchi, einn stofnenda
M&C Saatchi, og þrír aðrir stjórn-
endur innan fyrirtækisins sögðu
störfum sínum lausum eftir að upp
komst um málið á síðasta ári. Í kjöl-
farið féll gengi hlutabréfa í stofunni
um 45%.
„Tillaga M&C Saatchi og Peel
hlaut hæstu heildareinkunnina og
var með hæstu einkunn í níu af ellefu
hæfnisþáttum. Nú stendur yfir bið-
tími samkvæmt lögum um opinber
innkaup. Að honum loknum kemst á
bindandi samningur,“ segir í tilkynn-
ingu frá Íslandsstofu sem send var
út í gærdag um tillögu M&C Saatchi,
sem unnin var í samstarfi við ís-
lensku auglýsingastofuna Peel. Sam-
kvæmt tilkynningunni verður 1,5
milljörðum króna varið í markaðs-
verkefnið, sem á meðal annars að
styrkja ímynd Íslands erlendis.
Stjórnendur M&C Saatchi höfðu
átt í erfiðleikum með krísustjórnun
og höfðu gefið út nokkrar misvísandi
tilkynningar um umfang misferlis-
ins, sem og tvær afkomuviðvaranir,
þegar breska dagblaðið Guardian
fjallaði um málið í byrjun þessa árs.
Auglýsingastofan rann-
sökuð af fjármálaeftirliti
Viðurkenndi bókhaldsmisferli 1,5 milljarða verkefni hér