Morgunblaðið - 13.05.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020
Efling-stéttarfélag • Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík • Sími 510 7500
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
• Skýrsla stjórnar
• Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram
til afgreiðslu
• Lýst kjöri stjórnar, stjórna sjóða og skoðunarmanna
reikninga
Önnur mál
Léttar veitingar
Vegna samkomubanns mega eingöngu vera 50 manns í
sama rými. Því fer fundurinn fram í tveimur samliggandi
sölum og þess gætt að fara eftir reglum um fjölda manns
og tveggja metra fjarlægð.
Til að halda skipulagi biðjum við félagsmenn að boða
komu sína á www.efling.is
Endurskoðaða reikninga félagsins má
nálgast á www.efling.is
Félagar mætum vel og stundvíslega.
Aðalfundur Eflingar 2020 verður haldinn
miðvikudaginn 20. maí kl. 20.00
á Hótel Sögu í Kötlu I og Kötlu II.
Aðalfundur
Eflingar 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hyggst á næstunni
setja upp nýja tegund af almenn-
ingsalernum á völdum stöðum í
borginni. Fyrstu salernin verða sett
upp á Mógilsá við Esjurætur á næst-
unni, en þar lauk nýlega jarðvegs-
og lagnavinnu.
Um síðustu áramót féll úr gildi
samningur við rekstraraðila á al-
menningssalernum í miðborg
Reykjavíkur og var ekki heimilt
samkvæmt innkaupareglum að
framlengja hann, samkvæmt upp-
lýsingum Jóns Halldórs Jónassonar,
upplýsingafulltrúa hjá Reykjavíkur-
borg.
Eftir áramót varð úr að Reykja-
víkurborg keypti búnað og salernis-
turna af rekstraraðila til að geta
boðið þjónustuna áfram.
Í dag rekur borgin sjálfvirk al-
menningssalerni (salernisturna) á
nokkrum stöðum í miðborginni og
eru þau opin almenningi að kostn-
aðarlausu allan sólarhringinn.
Núverandi útfærsla á þessum al-
menningssalernum er ekki fullnægj-
andi, meðal annars gagnvart að-
gengi fatlaðra, og er vilji til að bæta
úr því, að sögn Jóns Halldórs. Slíkt
kallar í einhverjum tilvikum á lag-
færingar í umhverfinu og til að vinna
allt saman með réttum hætti hafa
verið gerðir uppdrættir af útfærslu
á eftirtöldum stöðum: Hljómskála-
garði, Ingólfstorgi, Bernhöftstorfu,
Vegamótastíg hjá Hegningarhúsinu,
horni Lokastígs og Njarðargötu og
Mæðragarði við Lækjargötu.
Á fimm stöðum þarf að gera
breytingar á deiliskipulagi sem felur
í sér að settur er inn nýr byggingar-
reitur eingöngu ætlaður fyrir al-
menningssalerni, sem Yrki arkitekt-
ar hafa hannað.
Turnsalernin sem áður eru nefnd
voru í rekstrarleigu frá AFA JC-
Decaux sem sá um eftirlit og þrif
a.m.k. einu sinni á dag. Salernin og
salernisgólfið hreinsast auk þess
sjálfvirkt eftir hverja notkun.
Í skýrslu starfshóps um almenn-
ingssalerni í Reykjavík frá 2016 er
bent á að við endurnýjun salerna í
borginni eigi fyrsta val að vera sal-
erni með aðgengi fyrir alla, þ.e. jafnt
fatlaða sem ófatlaða.
Ljósmynd/Jón Halldór Jónasson
Nýju salernin Það fyrsta verður bráðlega sett upp á Mógilsá við Esjurætur.
Salerni af nýrri tegund
sett upp víða í borginni
Núverandi salernisturnar standast ekki kröfur um aðgengi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Flestir kornbændur eru að ljúka við
eða hafa lokið við sáningu í vor.
Ræktunarstörfin hafa gengið vel.
Björgvin Þór Harðarson er með
stórfellda ræktun í Gunnarsholti fyr-
ir svínabú fjölskyldunnar en einnig
til manneldis. Hann gerir í ár til-
raunir með rækun á sinnepsplöntum
og bóndabaunum.
Sinnepsræktunin er samstarfs-
verkefni Björgvins og hjóna í Fljóts-
hlíð. Þau eru með býflugnabú og
hafa gert tilraunir með ræktun á
sinnepi.
Mikill safi í blóminu
„Frá því að við hófum smábúskap
með býflugur á árinu 2013 höfum við
verið að velta fyrir okkur heppileg-
um plöntum til að rækta fyrir þær.
Áttuðum okkur á því að sinnep væri
planta sem blómstraði vel og mikið
og gæfi mikinn blómasafa. Við fórum
að leika okkur með þetta og gerðum
litlar tilraunir sem komu ágætlega
út og býflugurnar sóttu í blómin,“
segir Þórður Freyr Sigurðsson við-
skiptafræðingur sem býr ásamt
konu sinni, Margréti Jónu Ísólfs-
dóttur, á Uppsölum 2 í Fljótshlíð.
Þau eru bæði í annarri vinnu og bú-
skapurinn því aðeins áhugamál.
Þau ákváðu að taka þetta skrefinu
lengra í ár og fá atvinnumann í korn-
rækt til að sjá um ræktunina. Mark-
miðið er að fá fullan þroska í sinn-
epsfræið og nota það til að framleiða
sinnep, hunangssinnep þegar afurð-
um býflugnanna hefur verið bætt
við.
Björgvin Þór sáir sinnepi í tvo til
þrjá hektara í Gunnarsholti og Þórð-
ur og Margrét munu koma fyrir bý-
flugnabúi í nágrenni við akurinn til
að frjóvga plönturnar. Þar ræktar
Björgvin jafnframt nepju sem, eins
og sinnepsplantan, blómstrar vel og
gefur góðan safa fyrir býflugurnar.
Þórður segir að erfitt sé að fá góð
yrki af sinnepsfræi. Í sumar verði
notast við þau fræ sem tekist hafi að
afla en hann vonast til að fá betri fræ
fyrir næsta sumar.
Tilraun með bóndabaunir
Björgvin Þór sáir aðallega byggi,
hveiti og nepju í alls um 240 hektara í
Gunnarsholti. Aðaltilgangurinn er
að afla innlends fóðurs fyrir svínin á
búi fjölskyldunnar í Laxárdal en
einnig er hluti notaður í eigin mat-
vælavinnslu og seldur til matvæla-
fyrirtækja.
Önnur nýjung þetta árið er rækt-
un á bóndabaunum. Segir Björgvin
að ekki hafi áður gengið að rækta
þessa plöntu hér en hann prófar nú
nýtt afbrigði frá Finnlandi. „Til-
gangurinn er fyrst og fremst að
framleiða íslenskt próteinfóður fyrir
svínin og nota í staðinn fyrir innflutt
sojamjöl,“ segir Björgvin Þór.
Samstarf um ræktun
sinneps í Gunnarsholti
Býflugnabændur stefna að framleiðslu hunangssinneps
Ljósmynd/aðsend
Býflugnabændur Þórður Freyr Sigurðsson og Margrét Jóna Ísleifsdóttir
huga að blómgun á sinnepsakri sínum á Uppsölum 2 í Fljótshlíð.
Nú síðla nætur áttu að hefjast mikl-
ar framkvæmdir í Hrísey, þar sem
lögð verða út alls 800 tonn af mal-
biki sem ná munu yfir 6.000 fer-
metra á götum víða um þorpið.
Akureyrarbær, sem Hrísey er hluti
af, stendur að þessu verki. „Þetta
verður góður sprettur og við gefum
okkur sólarhring í þetta verkefni,“
sagði Kristinn Svanbergsson, fram-
kvæmdastjóri Malbikunar Norður-
lands ehf. Hitt fyrirtækið sem kem-
ur að málum er Finnur ehf. og er
samstarf þeirra í millum.
Á síðasta ári voru nýjar lagnir
settar í nokkrar götur í Hrísey og
þær endurbættar, sem í raun var
undirbúningur fyrir malbikunina.
Þegar er búið að flytja allar vélar
og tæki sem þarf til verksins út í
ey. Þar má nefna stóra beltagröfu,
malbikunarvél, tvo valtara, hjóla-
skóflu og veghefil svo eitthvað sé
nefnt.
Flutt með pramma
Malbik til framkvæmdanna er
framleitt á Akureyri og ekið þaðan
til Dalvíkur um borð í prammann
Pétur mikla sem siglir svo með
farminn á verkstað. Þar er malbikið
sett á vagna og svo í vélina sem
leggur það út á göturnar. Áætlað er
að verkinu, sem 20 karlar sinna,
ljúki síðla næstu nótt.
„Verkefnastaðan er góð og bjart
fram undan. Nú höfum við til dæm-
is verið að malbika plön við ýmsar
bensínstöðvar Olís hér á Norður-
landi og svo eru sveitarfélög í fram-
kvæmdagírnum,“ segir Kristinn.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hrísey Miklar framkvæmdir á vegum Akureyrarbæjar, sem eyin tilheyrir.
Göturnar í Hrísey
verða malbikaðar
Framkvæmdir í heilan sólarhring