Morgunblaðið - 13.05.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020
Tilhugalíf hafarna hefst með mikilli fluglistasýningu snemma
á vorin. Ernir sem Guðlaugur Albertsson ljósmyndari sá í
Vatnsfirði á dögunum voru eitthvað að fljúgast á og reka
klærnar saman, eða „klóast“ eins og atferlið hefur verið
kallað. Annar örninn sneri sér í hring í loftinu þannig að þeir
ráku klærnar saman. Væntanlega er tilhugalífið löngu búið
en ljósmyndarinn var það langt í burtu að hann áttaði sig ekki
á því hvort tveir karlfuglar væru þarna á ferð eða par. Haförn
er sjaldgæfasti og langstærsti ránfuglinn í íslensku fugla-
fánunni. Vænghaf hans getur orðið rúmir tveir metrar og er
tignarlegt að sjá haförn svífa yfir. Um 70 hafarnapör eru nú í
landinu. Tegundin er alfriðuð.
Konungur fuglanna svífur þöndum vængjum í Vatnsfirði
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Hafernir „klóast“ við tilkomumikla fluglistasýningu
590666
SsangYong Korando ‘17, ekinn 63 þ. km.
Verð: 2.690.000 kr.
445995
SsangYong Rexton ‘16. ekinn 76 þús. km.
Verð: 4.390.000 kr.
446186
Ísland vill sjá þig í sumar
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 12-17
Meira úrval á
notadir.benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
* Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl.
oyota CHR ‘18, ekinn 60 þús. km.
erð: 3.690.000 kr.
Nissan X-trail Tekna ‘19, ekinn 49 þús. km.
Verð: 5.190.000 kr.
Opel Mokka X ‘18, ekinn 32 þús. km.
Verð: 3.990.000 kr.
Opel Astra Enjoy ‘17, ekinn 60 þús.km.
Verð: 2.990.000 kr.
150501
590713
446135
340546
T
V
Kaupauki
Eldsneytiskort
að verðmæti 50.000kr.
frá Orkunni.
Sjönætur
með morgunverði.
Verðmæti 210.000 kr.
Ævintýrapottur
Skráðu þig til leiks á notadir.benni.is
Vinnangar dregnir út á Bylgjunni
með völdum bílum!
Opel Grandland X ‘19, ekinn 62 þús. km.
Verð: 2.990.000 kr.
Vilja frekari sýnatökur
Foreldrafélag
Fossvogsskóla
ósátt við borgina
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Við berum ábyrgð á þessum börn-
um og heilsu þeirra til framtíðar og
langtímaáhrif af því að vera í raka-
skemmdu umhverfi eru ekki þekkt.
Við viljum að börnin njóti þess vafa
þannig að menn fari ekki út úr fram-
kvæmdunum án þess að vera full-
vissir um að verkefninu sé lokið,“
segir Karl Óskar Þráinsson, for-
maður foreldrafélags Fossvogs-
skóla.
Foreldrafélagið er ósátt vegna
þess að ekki á að taka sýni úr hús-
næði skólans eins og gert var síðast-
liðið vor þegar í ljós komu viða-
miklar skemmdir og ráðist var í
víðtækar framkvæmdir í kjölfarið.
litið. Skemmdirnar komu ekki fram í
úttekt Heilbrigðiseftirlitsins, ekki í
loftsýnaúttekt sem gerð var nokkr-
um vikum síðar, heldur þegar Verkís
fór í umfangsmiklar sýnatökur af
efni. Heilbrigðiseftirlitið hafði gefið
út heilbrigðisvottorð örfáum vikum
áður en þetta kemur allt í ljós og
húsnæðið er rýmt,“ segir Karl.
Hann segir að gott samráð og upp-
lýsingaflæði hafi verið milli fram-
kvæmdaaðila, borgarinnar og full-
trúa skólans, framan af en klippt hafi
verið á samráð þegar fyrstu kvart-
anir bárust um að börn væru enn að
veikjast síðastliðið haust. „Síðan þá
hafa foreldrar verið hunsaðir í þessu
máli.“
Karl segir að svar hafi loks borist
frá borginni 30. apríl. Það hafi verið
óskiljanlegt. Því hafi bréfinu verið
svarað í gær og þar aftur farið fram á
með skýrum rökum að frekari sýni
verði tekin. Það verði gert af fag-
aðila, öðrum en Heilbrigðiseftirlit-
inu.
Þá hefur félagið ráðið til sín lögfræð-
ing til að krefja borgina svara.
„Þegar málið kemur upp síðastlið-
ið vor, fyrir rúmu ári, gerist það eftir
mjög viðamiklar sýnatökur og þá
kemur í ljós að það er eitthvað virki-
lega mikið að húsnæðinu. Svo fara
þeir í alls konar framkvæmdir og
þegar við köllum eftir því að það
verði tekin sams konar sýni úr hús-
næðinu, vegna þess að börn og
starfsfólk eru enn að veikjast, er því
hafnað og vísað á Heilbrigðiseftir-
Morgunblaðið/Eggert
Fossvogsskóli Foreldrar fara fram
á sýnatökur vegna veikinda fólks.
Pétur Magnússon hefur verið ráðinn
forstjóri Reykjalundar frá og með 1.
júní nk. Hann lætur þá af störfum
sem forstjóri Hrafnistuheimilanna.
Við starfi hans þar taka tímabundið
þau Sigurður Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannadagsráðs og
Naustavarar, og María Fjóla
Harðardóttir, framkvæmdastjóri
heilbrigðissviðs Hrafnistu. Munu
þau leiða áframhaldandi starfsemi,
þróun og uppbyggingu Hrafnistu-
heimilanna, sem eru alls átta að tölu
á suðvesturhorni landsins.
Pétur hefur verið forstjóri Hrafn-
istu undanfarin 12 ár. „Stjórn Sjó-
mannadagsráðs er afar þakklát
Pétri fyrir framlag hans í þágu fé-
lagsins og fyrir þann árangur sem
hann hefur náð í starfi sem bætt
hafa gæði öldrunarþjónustu í land-
inu og óskar ráðið honum alls vel-
farnaðar á nýjum
vettvangi,“ segir
m.a. í tilkynningu
frá Sjómanna-
dagsráði.
Pétur er lyfja-
fræðingur að
mennt og með
MBA-gráðu frá
HR, með áherslu
á mannauðs-
stjórnun. Reykja-
lundur er í eigu SÍBS og rekinn með
þjónustusamningi við ríkið. Eftir að
Birgir Gunnarsson lét af störfum
forstjóra sl. október hefur styr stað-
ið um starfsemi Reykjalundar.
Stefán Yngvason hefur verið for-
maður starfsstjórnar og starfandi
framkvæmdastjóri lækninga. Anna
Stefánsdóttir hefur verið starfandi
forstjóri og setið í starfsstjórn.
Pétur tekur við stjórn-
inni á Reykjalundi
Pétur
Magnússon
Hættir sem forstjóri Hrafnistu