Morgunblaðið - 13.05.2020, Blaðsíða 22
ÍBV
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Heimsókn til Vestmannaeyja gerði útslagið að
sögn Sigtryggs Daða Rúnarssonar, sem skrifaði
undir þriggja ára samning við handknattleikslið
ÍBV í gær.
Sigtryggur, sem verður 24 ára gamall í júní,
kemur til félagsins frá Lübeck-Schwartau í
Þýskalandi, en leikmaðurinn, sem er uppalinn
hjá Þór á Akureyri, hefur leikið allan meistara-
flokksferil sinn í Þýskalandi.
Hann hóf meistaraflokksferilinn með Aue en
hélt svo til Balingen áður en hann gekk til liðs
við Lübeck-Schwartau í þýsku B-deildinni árið
2018.
„Það er mjög gott að vera búinn að klára þetta
og skrifa undir,“ sagði Sigtryggur Daði í samtali
við Morgunblaðið. „Núna getur maður farið að
skipuleggja og einbeita sér að komandi verkefni,
sem er jákvætt. Ég er að flytja heim frá Þýska-
landi þannig að fyrsta mál á dagskrá núna er að
flytja búslóðina og koma sér almennilega fyrir í
Vestmannaeyjum.
Þessi löngun að spila heima á Íslandi hefur
alltaf verið til staðar hjá mér. Ég er vanur að
horfa á úrvalsdeildina í sjónvarpinu, eins fárán-
legt og það hljómar, og ég er þess vegna mjög
spenntur að spila loksins í deildinni. Það eru ekki
margir heima á Íslandi sem hafa verið áskrif-
endur að þýsku B-deildinni undanfarin ár og ég
er þess vegna spenntur að sýna mig og sanna á
Íslandi.“
Vill berjast um titla
Í febrúar tilkynnti Lübeck-Schwartau að
samningur Sigtryggs við félagið yrði ekki endur-
nýjaður í lok keppnistímabilsins. Eftir að þessar
fréttir bárust settu þó nokkur lið sig í samband
við leikmanninn, sem ítrekar að hann sé ekki
kominn til Íslands til þess að slaka á.
„Það voru nokkur lið sem sýndu mér áhuga
eftir að það var tilkynnt að ég væri á förum frá
Lübeck-Schwartau. Ég var ekkert ákveðinn í að
koma heim til Íslands á þeim tímapunkti. Það
voru lið erlendis sem og á Íslandi sem sýndu mér
áhuga en eftir að kórónuveirufaraldurinn bloss-
aði upp í Evrópu fækkaði möguleikum mínum.
Að endingu tók ég svo bara ákvörðun um að
koma heim og þá fóru liðin heima að setja sig í
meira samband við mig, meðal annars ÍBV.
Mér finnst verkefnið hjá ÍBV mjög spennandi
og ég vildi koma heim til þess að berjast um titla.
ÍBV hefur verið í toppbaráttu undanfarin ár og
þá líst mér einnig mjög vel á liðið og þjálfara-
teymið. Þeir eru með toppþjálfara í Erlingi og
Kristni og ég hlakka til að vinna með þeim. Það
skemmdi heldur ekki fyrir að ég fékk að kíkja á
eyjuna á dögunum og eftir heimsókn mína þang-
að var þetta nánast klappað og klárt.“
Ýtir undir bræðraríginn
Faðir Sigtryggs er Rúnar Sigtryggsson, fyrr-
verandi landsliðsmaður Íslands í handknattleik.
Rúnar þjálfaði Sigtrygg bæði hjá Aue og Bal-
ingen í Þýskalandi en flutti heim til Íslands árið
2018 og tók við Stjörnunni. Rúnar lét af störfum í
Garðabænum eftir tímabilið en bróðir Sigtryggs,
Andri Már Rúnarsson, fann sér einnig nýtt lið í
vikunni og gekk til liðs við Fram frá Stjörnunni í
vikunni. „Ég hef alltaf ráðfært mig við pabba
varðandi þau skref sem ég hef tekið á ferlinum.
Ég hef samt passað mig á því að þegar kemur
að því að taka lokaákvörðun er það ég sem tek
hana sjálfur á mínum eigin forsendum. Mér hef-
ur alltaf fundist mikilvægt að fá álit frá pabba
og um leið og það kom grænt ljós frá honum á
skiptin til Eyja var þetta í raun ekki erfið
ákvörðun.
Ég og bróðir minn grínuðumst svo með það
að það hefði verið gaman að spila saman en sú
staða kom í raun aldrei upp. Það hefði vissulega
verið skemmtilegt ef við hefðum endað á sama
stað en í staðinn erum við að fara spila gegn
hvor öðrum, sem verður bara ennþá skemmti-
legra held ég og það mun klárlega ýta aðeins
undir bræðraríginn.“
Háleit markmið
Sigtryggur á að baki fjölda landsleikja fyrir
yngri landslið Íslands og þá var hann í U18 ára
landsliði Íslands sem vann til bronsverðlauna á
HM í Rússlandi árið 2015. Hann hefur ekki enn
spilað fyrir A-landslið karla og vonast til þess að
tækifæri til að leika með landsliðinu muni fylgja
komunni til Íslands.
„Ég er enn ungur og með háleit markmið.
Ein af ástæðum þess að ég ákvað að koma heim
var sú að ég taldi mig geta haldið áfram að bæta
mig sem handknattleiksmaður á Íslandi.
Ég vil koma mér inn í þessa landsliðsumræðu
og maður hefur aðeins verið týndur í Þýska-
landi á undanförnum árum. Ég held þess vegna
að það muni hjálpa mér, upp á landsliðið að
gera, að spila hér á landi og vonandi tekst það,“
bætti Sigtryggur Daði við í samtali við Morgun-
blaðið.
Ákvörðunin auðveld eftir
grænt ljós frá pabba
Sigtryggur Daði endanlega sannfærður eftir heimsókn til Vestmannaeyja
Ljósmynd/Lübeck-Schwartau
Heimkoma Sigtryggur Daði Rúnarsson hefur leikið allan meistaraflokksferil sinn í Þýskalandi.
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020
13. maí 1969
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik leggur Dani að
velli, 51:49, í
undankeppni
Evrópumótsins í
Stokkhólmi og
vinnur þar með
sinn fyrsta sigur
í keppninni. Ís-
lenska liðið
hafði áður tapað fyrir Svíum
og Tékkum en þetta var
frumraun Íslands á EM. Einar
Bollason skorar 23 stig fyrir
Ísland í leiknum og tekur 14
fráköst.
13. maí 1978
Guðrún Ingólfsdóttir, tvítug
stúlka frá Hornafirði, bætir
Íslandsmetið í kringlukasti í
þriðja skipti á rúmri viku. Að
þessu sinni bætir hún það um
tæplega þrjá metra og kastar
42,18 metra á móti á Kapla-
krikavelli. Hún átti eftir að
bæta það um alls tæpa tólf
metra á næstu fjórum árum.
13. maí 1983
Ísland sigrar Bandaríkin,
31:26, í vináttulandsleik karla
í handknattleik í Laugardals-
höllinni. Hans Guðmundsson,
Guðmundur Þ. Guðmundsson
og Alfreð Gíslason skora 6
mörk hver fyrir íslenska liðið.
13. maí 1987
Vesturþýska knattspyrnu-
félagið Kaiserslautern kaupir
landsliðs-
framherjann
Lárus Guð-
mundsson af
Bayer Uerd-
ingen fyrir 13
milljónir ís-
lenskra króna
og semur við hann til tveggja
ára. Þar með lýkur þriggja
ára dvöl Lárusar hjá Uerd-
ingen en hann varð bikar-
meistari með liðinu og komst
í undanúrslit í Evrópukeppni
bikarhafa.
13. maí 2002
Enska blaðið Independent
birtir niðurstöðu úr einkunna-
gjöf tímabilsins í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu
2001-02. Samkvæmt henni er
Guðni Bergsson, fyrirliði
Bolton, fjórði besti varnar-
maður deildarinnar á tíma-
bilinu, á eftir Rio Ferdinand
hjá Leeds, Sami Hyypiä hjá
Liverpool og Gareth South-
gate hjá Middlesbrough.
13. maí 2009
Eiður Smári Guðjohnsen er
spænskur bikarmeistari í
knattspyrnu með Barcelona
sem sigrar Athletic Bilbao 4:1
í úrslitaleik í Valencia. Eiður
situr á varamannabekknum
allan tímann en mörk Barce-
lona skora þeir Yaya Touré,
Lionel Messi, Bojan Krkic og
Xavi.
13. maí 2015
„Ég var ekkert að pæla í
hvað ég var að gera. Ég lét
bara vaða,“ seg-
ir Lovísa Thomp-
son, 15 ára göm-
ul Gróttustúlka,
við Morgun-
blaðið eftir að
hafa tryggt
Gróttu sinn
fyrsta Íslandsmeistaratitil í
handknattleik kvenna. Lovísa
skorar sigurmarkið gegn
Stjörnunni, 24:23, þegar tvær
sekúndur eru eftir af fjórða
úrslitaleik liðanna í Garðabæ
og Seltirningar vinna þar
með einvígi liðanna 3:1.
Á ÞESSUM DEGI
Serbnesk-íslenska knattspyrnukon-
an Vesna Elísa Smiljkovic er gengin
til liðs við Fylki fyrir komandi tíma-
bil. Vesna hefur leikið á Íslandi frá
2005, með Keflavík, Þór/KA, ÍBV
og Val, en var í barneignarfríi árið
2018 og kom inn í Valsliðið á ný
undir lok Íslandsmótsins 2019 þar
sem hún lék aðeins einn leik. Vesna,
sem er 37 ára, hefur verið landsliðs-
fyrirliði Serbíu og á 77 landsleiki að
baki. Hún er fjórtándi leikjahæsti
leikmaður íslensku úrvalsdeild-
arinnar frá upphafi með 214 leiki
og hefur skorað í þeim 84 mörk.
Vesna leikur með
Fylki í sumar
Morgunblaðið/Ófeigur
Þrautreynd Vesna Elísa Smiljkovic
á langan feril að baki hérlendis.
Körfuknattleiksþjálfarinn Benedikt
Guðmundsson mun starfa hjá Fjölni
næsta árið en hann er farinn frá KR
eftir að hafa stýrt kvennaliði fé-
lagsins með góðum árangri í þrjú
ár. Hjá Fjölni verður Benedikt, sem
er landsliðsþjálfari kvenna, með 9.
og 10. flokk drengja ásamt minni-
bolta hjá drengjum og stúlkum.
Hann þjálfaði áður hjá Fjölni á ár-
unum 2003 til 2006 en þá náði
karlalið félagsins sínum besta
árangri í sögunni undir hans stjórn,
komst í undanúrslit Íslandsmótsins
og í bikarúrslit.
Benedikt aftur
í Grafarvoginn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjölnir Benedikt Guðmundsson
þjálfar yngri flokka félagsins.
Bræðurnir Sigtryggur Daði og
Andri Már Rúnarssynir verða
andstæðingar í úrvalsdeildinni í
handbolta næsta vetur. Þeir
skiptu báðir um félag í gær því
þegar Sigtryggur Daði gekk til
liðs við ÍBV samdi Andri Már við
Framara um að leika með þeim á
næsta tímabili. Andri, sem er að-
eins 17 ára gamall, kemur frá
Stjörnunni þar sem hann skoraði
60 mörk í 40 leikjum í úrvals-
deildinni síðustu tvö árin undir stjórn föður síns,
Rúnars Sigtryggssonar.
Bræðurnir eiga ekki langt að sækja hæfileikana.
Rúnar faðir þeirra var landsliðsmaður Íslands um
árabil, lék 118 landsleiki og spilaði með Göppingen,
Wallau/Massenheim og Eisenach í Þýskalandi og
Ciudad Real á Spáni, ásamt því að þjálfa Eisenach,
Aue og Balingen í Þýskalandi og lið Akureyrar í
fimm ár.
Heiða Erlingsdóttir móðir þeirra lék lengi með
Víkingi þar sem hún vann þrjá Íslandsmeistaratitla
og tvo bikarmeistaratitla og spilaði auk þess 50
landsleiki fyrir Íslands hönd. Hún lék líka með
Haukum þar sem hún varð tvívegis Íslandsmeistari.
Þá lék hálfbróðir þeirra og sonur Rúnars, Aron
Rúnarsson Heiðdal, fótbolta með Stjörnunni. Þar
var hann í Íslandsmeistarahópnum árið 2014 og
spilaði auk þess sem lánsmaður með Keflavík í úr-
valsdeildinni. vs@mbl.is
Andri Már
Rúnarsson
Bræður í hand-
boltafjölskyldu