Morgunblaðið - 13.05.2020, Blaðsíða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020
Leikarinn og leikstjórinn Vignir
Rafn Valþórsson mælir með lista-
verkum sem hægt er að njóta innan
veggja heimilisins meðan kófið
vegna kórónuveirunnar stendur
yfir.
„Ég hef síðustu mánuði legið yfir
„Royal Court Playwright’s Pod-
cast“.
Þar tekur Simon Stephens viðtöl
við önnur leik-
skáld og fer yfir
málin í léttu
spjalli. Svo fer
maður og gúglar
viðmælendurna
og uppgötvar
allskonar sem
maður hafði ekki
hugmynd um.
Það er svo mikið
af góðum leik-
ritum þarna úti
sem maður hefur ekki hugmynd
um. Og svo er Simon líka bara svo
skemmtilegur kall. Mér finnst pínu
eins og hann sé vinur minn.
Svo hlusta ég líka að sjálfsögðu á
skemmtilegasta hlaðvarp sem gert
er á Íslandi, Nei hættu nú alveg,
sem er viðtals- og grínþáttur dul-
búinn sem spurningakeppni. Kem-
ur vikulega á allar hlaðvarpsveitur
(og á skjám landsmanna fyrr en
varir, en nú er ég búinn að segja of
mikið!)
Bókin Eyland eftir Sigríði Haga-
lín á hug minn allan þessa dagana.
Fáránlega vel skrifuð og skemmti-
leg á sama tíma og hún sprengir á
manni hausinn og fyllir mann af alls
konar tilfinningum. Það var magn-
að að lesa hana fyrir nokkrum ár-
um þegar hún kom út og efnið var
bara fjarlæg martröð en í dag er
það allt í einu orðið hugsanlegur
raunveruleiki morgundagsins.
Leiksýningin verður geggjuð!
Ég er þessa dagana að undirbúa
aðra myndlistarsýningu hliðar-
sjálfsins VIRAVA (finnið mig á
Insta!) og er því mikið að sanka að
mér efni og hugmyndum í það.
Internetið kemur þar sterkt inn.
Ég nota sömu aðferð og þegar mig
vantar að uppgötva eitthvað fyrir
leikhúsið (það er nefnilega hægt að
framleiða hugmyndir!)
Ég vafra um netið þar til ég sé
eitthvað sem vekur einhverja til-
finningu, því næst kemst ég að því
hver stendur á bak við efnið, gref
upp allt sem viðkomandi hefur gert
og læt það leiða mig yfir í helsta
samstarfsfólk og hvað það hefur
verið að bardúsa.
Kanínuhola internetsins er mjög
djúp og mun alltaf leiða þig að ein-
hverju mögnuðu. Ef þú ert að leita.
Maður verður að leita. Annars
finnst ekki neitt.“
Mælt með í kófinu
Morgunblaðið/Hari
Sprengja Skáldsagan Eyland eftir
Sigríði Hagalín á hug Vignis Rafns
þessa dagana, enda vel skrifuð.
„Kanínuhola
internetsins
er mjög djúp“
Listamannaspjall Simon Stephens
(til vinstri) og David Ireland.
Vignir Rafn
Valþórsson
Putti Togaðu í puttann á mér er
frægasta verk VIRAVA, sem er
hliðarsjálf Vignis Rafns.
Morgunblaðið/Ernir
Tölvuskjár Vignir Rafn leitar sér
iðulega innblásturs á netinu.
Brúsi Ólason, MFA-nemi í leik-
stjórn við hinn virta Columbia-
háskóla í New York, klippti kvik-
myndina Materna sem gerði það
gott á hinni virtu Tribeca-kvik-
myndahátíð þar í borg en verðlaun
voru veitt af dómnefndum í lok apríl
þó svo hátíðin sjálf hafi verið blásin
af vegna COVID-19. Myndin hlaut
tvenn verðlaun, fyrir bestu leikkonu
í bandarískri kvikmynd, Assol Ab-
dullina, og bestu kvikmyndatöku í
bandarískri kvikmynd.
Brúsi lýkur námi í þessum mán-
uði og er lokamyndin hans komin
vel á veg, að hans sögn, þó aðeins
hafi hægt á eftirvinnslunni vegna
Covid-19-farsóttarinnar.
Klipping samhliða leikstjórn
Brúsi hefur áður leikstýrt stutt-
myndunum Sjáumst og Viktoríu
sem voru báðar sýndar á virtum
kvikmyndahátíðum, þeirra á meðal
Aspen Shortsfest í Bandaríkjunum,
Clermont-Ferrand International
Short Film Festival í Frakklandi og
Toronto International Film Festival
í Kanada.
„Ég ákvað að reyna að sökkva
mér aðeins í að klippa fyrir sam-
nemendur mína í skólanum sam-
hliða leikstjórnarnáminu og hef til
að mynda klippt tvær stuttmyndir
eftir Erlend Sveinsson sem hafa
notið velgengni, Kanarí og Thick
skin,“ segir Brúsi. Sú klippivinna
leiddi til þess að bent var á hann
þegar leikstjóri Materna hafði sam-
band við kennara í Columbia í leit
að góðum klippara meðal nemenda.
Sögur fjögurra kvenna
„David Gutnik, leikstjórinn, hafði
samband og fékk mig í fyrstu til
þess að klippa einn hluta af fjórum
sem mynda Materna. Myndin segir
frá fjórum konum sem upplifa of-
beldisfullt augnablik í neðanjarðar-
lestinni í New York og við fáum að
sjá bakgrunn þeirra. Hann var svo
ánægður með framlag mitt til þeirr-
ar sögu að ég varð annar af aðal-
klippurum myndarinnar og tók mik-
inn þátt í að móta frásögn mynd-
arinnar í heild sinni,“ segir Brúsi en
frekari upplýsingar um kvikmynd-
ina má finna á vefnum IMDb, Inter-
net Movie Database.
helgisnaer@mbl.is
Úr Materna Myndin segir frá fjórum konum sem upplifa ofbeldisfullt augnablik í neðanjarðarlest í New York.
Klippti eina af verð-
launamyndum Tribeca
Verðlaunaður Brúsi Ólason með
verðlaunin sem hann hlaut fyrir
tveimur árum á Stockfish-kvik-
myndahátíðinni í Bíó Paradís fyrir
stuttmyndina Viktoríu.
Brúsi Ólason lýkur brátt meistaranámi í leikstjórn við
Columbia og hefur þegar gert það gott sem klippari
Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Opið mán.-fös. 10-18 |
Við sérsmíðum gluggatjöld
sem passa fullkomlega fyrir þig og þitt heimili
Z-Brautir og gluggatjöld
Allt fyrir
gluggana á
einum stað
Íslensk
framleiðsla Kvikmyndahátíðin í Cannes hefurnú endanlega verið slegin af vegna
COVID-19-faraldursins en stjórn-
endur hennar munu mögulega
standa fyrir sýningum á kvikmynd-
um hennar á öðrum hátíðum.
Stjórnandi hátíðarinnar, Thierry
Frémaux, segir í viðtali á vefnum
Screen að hann sé afar niðurdreg-
inn yfir stöðunni en hátíðin hefði
hafist í gær ef ekki hefði verið fyrir
faraldurinn. Segir hann alla sem að
hátíðinni koma hafa skilning á því
að ekki sé hægt að halda hana á
þessu ári. Í Frakklandi er sam-
komubann sem
lýkur ekki fyrr
en um miðjan
júlí í fyrsta lagi.
Þótti ekki úti-
lokað að hægt
yrði að halda há-
tíðina seinna á
árinu en nú virð-
ist endanleg
ákvörðun hafa
verið tekin um að blása hátíðina af,
ef marka má orð Frémaux. Hins
vegar verða valdar myndir sýndar
utan hátíðarinnar, að hans sögn.
Kvikmyndahátíðin í Cannes blásin af
Thierry Frémaux