Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sex tilboð bárust í endurgerð
Tryggvagötu og Naustanna í Kvos-
inni í Reykjavík. Tilboð voru opnuð
5. maí sl. Lægsta tilboðið í verkið
átti Bjössi ehf., 393 milljónir
króna. Var það 89% af kostnaðar-
áætlun, sem var rúmar 400 millj-
ónir. Næstlægsta tilboðið átti
Grafa og grjót ehf., 397,5 milljónir
króna. Verið er að yfirfara tilboðin
hjá Reykjavíkurborg.
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað á þessu svæði í Kvosinni
undanfarin ár. Meðal annars hafa
risið stórar byggingar á Hafnar-
torgi, austan Tollhússins.
Í sumar hyggst Reykjavíkurborg
vinna áfram að því að fegra og
endurgera Tryggvagötuna. Búið
er að gera endurbætur á Bæjar-
torgi og Steinbryggju og næst
verður haldið áfram til vesturs að
Naustum. Svæðinu sunnan við Toll-
húsið verður breytt, bílastæði af-
lögð og sett upp almenningsrými.
Naustin verða einnig endurgerð
frá Tryggvagötu að Geirsgötu. Að
ári er svo áætlað að vinna síðasta
áfangann frá Naustum að Grófinni.
„Mósaíkverk Gerðar Helgadótt-
ur á Tollhúsinu mun að loknum
framkvæmdum fá að njóta sín bet-
ur en áður. Undir listaverkinu
verður torg sem liggur einstaklega
vel við sólu og hentar því vel sem
dvalarsvæði fyrir vegfarendur. Á
svæðinu verða einnig litlir þokuúð-
arar sem bjóða upp á leik og veita
svæðinu ákveðna dulúð,“ segir í
frétt frá borginni. Bílaumferð
verður áfram um Tryggvagötu á
einni akrein og einstefna verður í
vesturátt.
Mósaíkmyndin á suðurhlið Toll-
hússins var sett upp fyrir nærri
hálfri öld, sumarið 1973. Arkitekt
hússins, Gísli Halldórsson, sagði
þegar verkið kom til landsins, að
myndin lyfti upp svipnum á
Tryggvagötunni. „Listaverkið
verður lýst upp og fá mósaíkstein-
arnir að njóta sín betur en áður á
þessum 142 fermetra fleti,“ segir í
frétt borgarinnar.
Fyrri hluti verkefnisins verður
áfangaskiptur í samstarfi Reykja-
víkurborgar og Veitna. Lagnir
vatnsveitu, hitaveitu og rafveitu
verða endurnýjaðar. Margar þess-
ara lagna eru komnar til ára sinna,
en skólplögnin og kaldavatns-
lögnin eru frá árinu 1925 og hafa
því þjónað íbúum og fyrirtækjum í
miðbænum í tæpa öld.
Tryggvagata mun taka
miklum breytingum
Lægsta tilboðið í
endurgerð svæðisins
tæpar 400 milljónir
Upplýst Mósaíklistaverk Gerðar Helgadóttur verður lýst upp að kvöldlagi.
Tölvumynd/Reykjavíkurborg
Tryggvagata Bílastæðin sunnan Tollhússins verða aflögð og í staðinn verður útbúið torg sem liggur vel við sólu.
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur
hefur samþykkt að fækka orlofs-
dögum sem barn þarf að taka í sum-
ar frá leikskóla vegna COVID-19.
Foreldrar og forráðamenn geta þá
sótt um að barn þeirra taki færri en
20 daga í sumarleyfi í þeim tilvikum
þegar foreldrar hafa þurft að
skerða sumarleyfi sitt vegna skerð-
ingar á leikskólastarfi í faraldr-
inum. Horft verður til aðstæðna
hverju sinni og orlofsstöðu foreldra
og forráðamanna. Tillagan um til-
slökun á reglunni þýðir að full
starfsemi gæti orðið í sex opnum
leikskólum í allt sumar. Sömuleiðis
verða fleiri sumarstörf í boði og
verða námsmenn sérstaklega hafð-
ir í huga í þeim ráðningum, segir í
frétt frá borginni.
Rýmri reglur um sumarleyfi leikskólabarna
Rannsóknaskip Hafrannsóknastofn-
unar eru þessa dagana bæði í fjöl-
breyttum 20 daga leiðöngrum.
Bjarni Sæmundsson fór á mánu-
dag í árlegan vorleiðangur og er hann
liður í langtímavöktun á ástandi sjáv-
ar, næringarefnum, gróðri og átu á
hafsvæðinu við Ísland. Athuganir
verða gerðar umhverfis landið, yfir
mestum hluta landgrunnsins, utan
þess og inni á fjörðum. Jafnframt eru
gerðar mælingar með síritandi mæli-
tækjum á siglingaleið skipsins.
Magn og útbreiðsla ljósátu verður
mæld með bergmálstækni og út-
breiðsla loðnulirfa könnuð. Að auki
verður safnað sýnum fyrir Geisla-
varnir ríkisins vegna vöktunar á
magni geislavirkra efna í sjó. Einnig
verða sett í sjóinn rekdufl, sem mæla
umhverfisþætti, fyrir erlenda sam-
starfsaðila.
Vistfræði Austurdjúps
Á sunnudaginn fór Árni Friðriks-
son í leiðangurinn „Vistfræði Austur-
djúps“. Eitt af meginmarkmiðunum
er að meta magn og útbreiðslu norsk-
íslenskrar síldar og annarra upp-
sjávartegunda í Austurdjúpi og á
austur- og norðausturmiðum. Þessu
til viðbótar er ástand hafsins og vist-
kerfisins kannað, m.a. hitastig og
magn átustofna. Leiðangurinn er
skipulagður af vinnuhópi á vegum Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins (ICES).
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Rannsóknir Árni Friðriksson kann-
ar útbreiðslu uppsjávartegunda.
Fjölbreytt
rannsókna-
verkefni
Sýnum safnað
fyrir Geislavarnir