Morgunblaðið - 25.05.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MAÍ 2020
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Flugfélög um allan heim undirbúa
nú að koma starfsemi sinni aftur í
eðlilegt horf. Um helgina tilkynnti
Lufthansa, stærsta flugfélag
Þýskalands, að um miðjan júní
muni flug hefjast á ný til 20 áfanga-
staða. Flogið verður frá Frankfurt,
sem er aðalbækistöð Lufthansa, til
svæða á borð við Mallorca, Ródos,
Malaga og Ibiza og ætti að það að
kæta sólþyrsta Þjóðverja sem og
ferðaþjónusturekendur við Mið-
jarðarhafið. Áður hafði flugfélagið
upplýst að flug til Los Angeles,
Toronto og Múmbaí myndi hefjast
að nýju í júní og stefnt að því að áð-
ur en júnímánuður er liðinn fljúgi
Lufthansa í viku hverri 1.800 ferðir
fram og til baka til 130 áfangastaða
um allan heim. Verður tilkynnt síð-
ar í þessari viku hvaða áfangastaðir
bætast næst við.
Helmingi minni
losun innanlands
Air France áætlar að í maí og
júní verði flugframboð félagsins
orðið um 15% af því sem það var á
sama tíma í fyrra, en þegar verst
lét var fjöldi flugferða Air France
aðeins 3-5% af því sem það væri í
eðlilegu árferði. Mun flugfélagið í
fyrstu einkum leggja áherslu á
tengingar innan Frakklands, til
áfangastaða í Evrópu og flug til
franskra landsvæða utan álfunnar.
Endurreisn Air France kann þó að
litast af þeim kröfum stjórnvalda
að draga verulega úr innanlands-
flugi. Hefur Reuters eftir Élisabeth
Borne umhverfismálaráðherra
Frakklands að flugfélagið verði að
draga „stórlega“ úr innanlandsflugi
vilji það að ríkið veiti félaginu
skuldaábyrgð. Hefur franska ríkið
boðið Air France sjö milljarða evra
björgunarpakka með því skilyrði að
koltvísýringslosun flugfélagsins
innanlands hafi helmingast ekki
seinna en 2024. Er hugmyndin sú
að almenningur noti frekar lesta-
kerfið til að ferðast á milli franskra
borga.
Lággjaldaflufélagið EasyJet til-
kynnti á fimmtudag að það hygðist
hefja flug að nýju um miðjan júní
og verður byrjað á flugleggjum
innanlands í Frakklandi og Bret-
landi. Ryanair reiknar með að í júlí
verði umsvif félagsins orðin um
40% af því sem þau væru í eðlilegu
árferði, og Emirates byrjaði í síð-
ustu viku að tengja Dúbaí við níu
borgir í Evrópu, Ástralíu og N-Am-
eríku.
Fá að gera hlé á flugi
til minni flugvalla
Á meðan frönsk stjórnvöld vilja
þvinga þjóðarflugfélagið til að
draga úr flugi innanlands hafa
bandarísk yfirvöld veitt þarlendum
flugfélögum sérstaka undanþágu til
að draga úr flugi á milli banda-
rískra borga. Í Bandaríkjunum fá
flugfélög styrki gegn því að fljúga
til byggða þar sem erfitt væri að
halda úti reglulegu flugi á mark-
aðsforsendum en þurfa í staðinn að
bjóða upp á ákveðinn lágmarks-
fjölda flugferða. Fá flugfélögin að
gera tímabundið hlé á þessum ferð-
um þar sem eftirspurn er með allra
minnsta móti. Fær t.d. Delta að
leggja niður flugþjónustu til Aspen
í Colorado, Lincoln í Nebraska og
Santa Barbara í Kaliforníu, en
United gerir hlé á flugi til Key
West í Flórída, Kalamazoo í Michi-
gan og Chattanooga í Tennessee.
Er útlit fyrir að lifni yfir banda-
rískum flugfélögum í júní, og ætlar
t.d. Southwest að hefja flug til Par-
ísar, Sjanghaí og Peking, en Amer-
ican ætlar að opna á ný tengingar
til Dyflinnar, Lundúna og Aþenu.
Flugfélög í Asíu virðast ætla að
fara ögn seinna af stað og mun t.d.
Singapore Airlines halda starfsemi
í algjöru lágmarki út júní, og sömu-
leiðis hyggst Thai Airways ekki
hefja flug til annarra landa fyrr en í
fyrsta lagi 30. júní.
Enga björg að fá í
Rómönsku Ameríku
Horfurnar virðast verstar fyrir
flugfélög í Mið- og Suður-Ameríku,
m.a. vegna þess að stjórnvöld í nær
öllum löndum álfunnar hafa lítinn
áhuga á að bjarga þeim frá falli.
Kólumbíska flugfélagið Avianca,
sem er næststærsta flugfélag
S-Ameríku miðað við tekjur, fór
fram á greiðslustöðvun hinn 10. maí
síðastliðinn, og fyrir skemmstu til-
kynnti Lenin Moreno forseti Ekva-
dors að eignir ríkisflugfélagsins
Tame yrðu seldar. Aðeins í Brasilíu
hafa stjórnvöld rétt flugfélögunum
hjálparhönd og fengu Gol, Azul og
Latam að skipta með sér rúmlega
eins milljarðs dala björgunarpakka.
FT segir viðhorf stjórnvalda í
Mið- og Suður-Ameríku meðal ann-
ars litast af því að þar þykja flug-
samgöngur enn lúxus frekar en að
teljast almennur samgöngumáti, og
það þrátt fyrir að vöntun sé á öðr-
um góðum valkostum til að komast
á milli landshluta eða á milli landa
á þessum slóðum þar sem fjallgarð-
ar og regnskógar skilja byggðir að.
Óttast sérfræðingar að ef kórónu-
veiran skilur eftir sig sviðinn akur
á flugmarkaði í álfunni muni sæta-
framboð minnka og flugmiðaverð
hækka sem síðan muni bitna á
ferðaþjónustu í álfunni.
Fara varlega af stað
Í Evrópu munu flugfélög byrja að fjölga ferðum um miðjan júní en biðin verður
lengri í Asíu Stuðningi við Air France fylgir kvöð um að draga úr losun
AFP
Brottför Starfsmaður sótthreinsar flugstjórnarklefa. Helstu flugfélög virðast ætla að þreifa sig áfram og auka
framboðið á flugi jafnt og þétt. Flugfélög í Mið- og Suður-Ameríku fá ekki ríkisaðstoð og gætu lognast út af.
STUTT
● Bílaleigurisinn Hertz Global Holdings
sótti á föstudag um greiðslustöðvun í
Bandaríkjunum en undir félagið heyra
bæði Hertz-, Dollar- og Thrifty-
bílaleigurnar. Reuters greinir frá að
greiðslustöðvunin snerti ekki starfsemi
Hertz í Evrópu, Ástralíu og Nýja-
Sjálandi.
Mikill samdráttur í flugi og ferðalög-
um hefur minnkað eftirspurnina eftir
bílaleigubílum svo mikið að félaginu er
ekki lengur fært að greiða af skuldum
sínum. Hafði Hertz þegar sagt upp um
10.000 manns í hagræðingarskyni en
starfsmenn félagsins á heimsvísu eru
um 38.000 talsins og gerir það út
meira en 500.000 bíla flota.
Reuters bendir á að bílaleigur áttu
víða í vök að verjast áður en kórónu-
veirufaraldurinn blossaði upp því vax-
andi hópur ferðamanna kýs að nýta
skutlþjónustur eins og Uber í stað þess
að taka bíl á leigu. ai@mbl.is
Hertz í greiðslustöðvun
í Bandaríkjunum
AFP
Veldi Hertz er rúmlega aldargamalt
fyrirtæki með útibú víða um heim.
● Rekstur kínverska netverslunar-
risans Alibaba á síðasta ársfjórðungi
gekk mun betur en spáð hafði verið.
Fyrirtækið birti ársfjórðungsuppgjör sitt
á föstudag og kom þar fram að tekur
félagsins af netverslun jukust um 19%.
Skýrist þessi mikli vöxtur einkum af
áhrifum kórónuveirufaraldursins sem
bitnað hefur á hefðbundnum verslunum
en verið vítamínsprauta fyrir verslanir á
netinu. ai@mbl.is
Uppgangur hjá Alibaba
25. maí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 143.37
Sterlingspund 174.46
Kanadadalur 102.3
Dönsk króna 20.959
Norsk króna 14.251
Sænsk króna 14.806
Svissn. franki 147.46
Japanskt jen 1.3344
SDR 195.28
Evra 156.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 191.5193
Hrávöruverð
Gull 1732.45 ($/únsa)
Ál 1487.0 ($/tonn) LME
Hráolía 36.18 ($/fatið) Brent