Morgunblaðið - 25.05.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.05.2020, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Humarvertíð byrjaði á hefð- bundnum tíma í marsmánuði er fyrstu bátarnir hófu veiðar. Eftir þokkalega byrjun hefur verið dauft yfir veiðunum og einkum stór humar veiðst, nokkuð sem ekki kemur á óvart miðað við nýliðun og ástand stofnsins. Hrun hefur orðið í humar- stofninum við landið á síðustu árum og þannig var humaraflinn 259 tonn á síðasta fiskveiðiári, en nákvæm- lega tvö þúsund tonnum meiri fyrir áratug, fiskveiðiárið 2010/11. Leyfilegt er að veiða 214 tonn af heilum humri í ár og eru veiðarnar ýmsum takmörkunum háðar. Þannig eru veiðar bannaðar í Jökuldjúpi og Lónsdjúpi til verndar uppvaxandi humri og takmarkanir eru á ýmsum öðrum veiðisvæðum til að minnka álag. Í upphafi vertíðar hafa humar- bátar frá Hornafirði, Vestmanna- eyjum og Þorlákshöfn verið að veið- um í Hornafjarðardýpi, Breiða- merkurdýpi og Skeiðarárdýpi. Mikið hefur verið af fiski á humarslóð und- anfarið og þorskurinn verið að ganga út, en á meðan gefur hum- arinn sig ekki. Er líður á vertíðina færast veiðisvæðin vestur á Eldeyj- arbanka, Skerjadýpi og Grindavík- urdýpi. Markaðir að mestu lokaðir Jón Páll Kristófersson, rekstr- arstjóri Ramma í Þorlákshöfn, segir að markaðir í Suður-Evrópu séu enn að mestu lokaðir vegna kórónu- faraldursins. Mest fer af frystum heilum humri til Spánar og er lögð áhersla á að landa og pakka humr- inum heilum til að fá sem mest verð- mæti. Síðustu vikur hafa verið þreif- ingar um sölu á humri á aðra mark- aði. Mikið fer hins vegar af humar- hölum á innanlandsmarkað og hér eins og í Evrópu eru spurningar- merki um markaðinn vegna fækk- unar erlendra ferðamanna. Fram- leiðsla á humarhölum hérlendis hefur ekki nægt til að svara kröfum markaðarins síðustu ár. Með minni afla hefur innflutningur á humri aukist, einkum frá Danmörku og Bretlandi. Það er yfirleitt smærri humar, sem er frábrugðinn þeim ís- lenska m.a. með tilliti til gæða. Á heimasíðu Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum er fjallað um humarvertíðina undir fyrirsögn- inni „Humarvertíðin hafin en fátt um gleðitíðindi“. Þar er haft eftir Sverri Haraldssyni sviðsstjóra að Vinnslustöðin selji heilfrystan hum- ar til Spánar og humarhala á mark- aði víða á meginlandi Evrópu. Nú séu veitingahús lokuð vegna kórónu- veirunnar á mestöllu meginlandinu og engin spurn eftir humri. „Við veiðum því og framleiðum eftir hend- inni og reynum að spila úr þeim markaðsfærum sem gefast þegar faraldrinum linnir og lífið færist í fyrra horf, þar á meðal í veitinga- húsarekstri,“ er haft eftir Sverri. Á yfirliti á vef Fiskistofu kemur fram á aflastöðulista að búið sé að veiða rúmlega 29 tonn af 69 tonna kvóta. Þarna er frá gamalli tíð miðað við humarhala, en halarnir eru 30,8% af humrinum. Hafrannsóknastofnun miðar hins vegar við heilan humar og 214 tonna kvóta og samkvæmt því er búið að veiða tæplega 100 tonn í ar. Nýliðun í sögulegu lágmarki Gripið var til mjög hertra að- gerða við humarveiðar í fyrra og í ár er haldið áfram á sömu braut, afla- viðmiðið reyndar lækkað lítillega. Fyrirliggjandi gögn benda til að ný- liðun humars sé í sögulegu lágmarki og að árgangar frá 2005 séu mjög litl- ir. „Verði ekki breyting þar á má bú- ast við áframhaldandi minnkun stofnsins,“ segir í ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar. Þéttleiki humarholna við Ísland mælist nú með því minnsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf fyrir. Meðal- þyngd humars hefur síðustu ár verið mjög mikil í sögulegu samhengi og skýrist að mestu af lítilli nýliðun og þar af leiðandi er hlutdeild eldri humars mikil. Dauft á humarvertíð eins og við var að búast Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun Vertíð Humar þykir herramannsmatur, en hrun hefur orðið í stofninum. 14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MAÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eftir mikilmótmæli íHong Kong á síðasta ári hafa mótmælin að mestu legið niðri á þessu ári enda gerir kórónuveiran kínverska mótmælendum erfitt fyrir að hópast saman og lýsa þannig skoðunum sínum. Fyrir helgi gengu stjórnvöld í Peking þó fram af íbúum Hong Kong sem og fjölda fólks víða um heim með því að ætla að herða tökin á sjálfstjórnarsvæðinu og varð þetta til þess að um helgina brutust út mikil mót- mæli í Hong Kong, þrátt fyrir hættuna af kórónuveirunni. Erfitt er að verjast þeirri hugsun að það séu einmitt nú- verandi aðstæður sem urðu til þess að stjórnvöld í Peking ákváðu nú að láta til skarar skríða. Ekki aðeins vegna þess að fjöldasamkomur eru erfiðari og hljóta alltaf að verða mun fá- mennari en ella þegar veiru- faraldur gengur yfir, heldur líka vegna þess að af sömu ástæðum má ætla að aðrar þjóðir séu uppteknar af öðru en auknum inngripum kínverskra stjórnvalda í sjálfstjórnarhér- aðið Hong Kong. Nýju lögin sem ætlunin er að þvinga upp á íbúa Hong Kong eiga að gera þeim erfiðara fyrir að stunda mótmæli og jafnvel tjá sig með þeim hætti sem van- inn er í Hong Kong, rétt eins og á Vesturlöndum, en íbúar Hong Kong njóta þess enn að Bretar lögðu línurnar um löggjöf sjálf- stjórnarhéraðsins, þar með tal- ið um mannrétt- indi. Samkvæmt samningi sem gerð- ur var við Kína á Hong Kong að njóta sérstöðu til 2047, en íbúarnir óttast að það samkomulag haldi ekki og rétt- indi þeirra verði skorin niður í það sem þau eru í Kína. Fyrir- huguð lagasetning kínverskra stjórnvalda, sem felur meðal annars í sér að kínverskar öryggissveitir geti athafnað sig í Hong Kong, rennir að sjálf- sögðu stoðum undir þennan ótta. Hörð viðbrögð stjórnvalda í Hong Kong, sem virðast leggja sig mjög fram um að halda frið- inn við stjórnvöld í Peking, vegna mótmæla helgarinnar eru einnig áhyggjuefni. Mikill fjöldi mótmælenda var hand- tekinn og táragasi og piparúða var beitt af ákafa. Allar slíkar uppákomur minna vitaskuld á það sem gerðist fyrir rúmum þremur áratugum í mótmælum í Peking og gerir ekkert annað en að auka á ótta og áhyggjur, jafnt í Hong Kong sem erlend- is. Kínversk stjórnvöld ættu frekar að styðja við það sem um var samið þegar Bretar hurfu frá Hong Kong, eitt ríki með tveimur kerfum, en að skjóta stoðum undir ótta um að þessi samningur verði ekki haldinn. Það væri mikilvægt skref í þá átt að sýna íbúum Hong Kong og umheiminum öllum að ekk- ert sé að óttast þegar stjórn- völd í Kína eru annars vegar. Kínversk stjórnvöld ættu að fara fram af meiri varfærni} Hong Kong í hættu Afkoma Reykja-víkurborgar batnaði um tæpa fimm milljarða króna í fyrra vegna matsbreytinga á leiguíbúðum sem borgin er ekki að fara að selja og má tæpast selja. Ekki þarf að koma á óvart að þetta hafi vakið athygli og athugasemdir. Slíkar bókhaldsæfingar hafa vitaskuld ekkert með raunverulega af- komu borgarinnar að gera og borgarfulltrúar meirihlutans ættu fremur að viðurkenna það hiklaust en að þvarga þegar á þetta er bent. Með því að vekja ekki sérstaka athygli á þessu er borgin að fela fyrir íbúum sín- um raunverulega stöðu rekstr- arins. Það er alvarlegt mál. Ekki batnar það þegar svör borgarfulltrúa meirihlutans við ábendingum um vaxandi skuldir borgarinnar eru skoðuð. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis- flokksins, hefur bent á að á sama tíma og borgin sé rekin með hagnaði árið 2019 aukist skuldir hennar um 21 milljarð króna. Rekstrarkostnaður hækki hratt og tímabært sé að end- urskoða ýmsar fjárfestingar borgarinnar, svo sem borgar- línu. Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi meirihlutans og pírati, mótmælir þessu og segir skuldasöfnunina vera vegna fjárfestinga, og bætir við: „Sumir myndu segja að stjórn- málafólk sem vantar metnað finni sér skjól í því að leggja stanslausa áherslu á að borga niður skuldir.“ Það kann að vera metnaður, en efast má um að það sé heil- brigður metnaður að ætla að skuldsetja borgarbúa um tugi milljarða króna til að koma á borgarlínu. Borgin stendur ekki nægilega vel fjárhagslega þrátt fyrir fullyrðingar meirihlutans um annað eins og hratt vaxandi skuldir í bland við bókhalds- æfingar sýna. Meirihlutinn í borg- inni ætti að beina kröftum sínum í jákvæðari farveg} Metnaður til að safna skuldum U ndanfarnar vikur höfum við fengið að kynnast því sem ekk- ert okkar hafði gert sér í hug- arlund fyrir aðeins nokkrum mánuðum, að lifa við mikla skerðingu á daglegu frelsi. Við höfum ekki getað hitt eldri ættingja, farið í líkamsrækt, knúsað litlu systur, haldið fermingarveislur né ferðast óhindrað milli landa. Það er merkilegt að sjá þann samtakamátt sem þjóðin hefur sýnt og við sjáum nú þegar merki þess að flestir vilja leggja sitt af mörk- um til að fara verlega á meðan ógnin af veir- unni varir enn. Við erum öll staðráðin í því að láta lífið halda áfram. Í dag taka í gildi miklar aflétt- ingar á þeim takmörkunum sem hér hafa verið frá 13. mars. Það er mikilvægt að tryggja að þau höft og takmarkanir sem nauðsynlegt hefur verið að grípa til festi sig ekki í sessi til lengri tíma. Þrátt fyrir að þær hafi verið minni en víða um heim og við lifum við meira frelsi frá og með deginum í dag finnst okkur nóg um. Aðgerðir stjórnvalda miða að því að færa þjóðlífið smám saman í eðlilegt horf þótt veiran muni mögulega koma að einhverju marki upp aftur. Samkomur með allt að 200 manns eru nú leyfðar, skilgreiningin á tveggja metra reglunni er breytt og miðast nú einungis við að fólk geti átt þess kost að virða hana kjósi það svo. Þá verða líkamsræktarstöðvar opnaðar ásamt skemmti- stöðum og krám með ákveðnum takmörk- unum. Baráttan við óþekkta sjúkdóminn COVID-19 hefur gengið vel hér á landi, allt hefur miðað að því að vernda líf og heilsu fólks og nú eru einungis þrjú virk smit í landinu. Afleiðingar þeirra viðbragða sem farið hefur verið í um heim allan fela í sér gríðarlegan samdrátt í hagkerfum heimsins sem ekki verður búið við til langframa. Nú leggjum við allt kapp á að ræsa hagkerfið aftur, tryggja störf og hagvöxt til framtíðar. Þannig aukum við lífsgæðin enn frekar hér á landi. Það eru rúmir tveir mánuðir frá því að samkomubann var sett á hér á landi. Það er ekki langur tími í sögulegu samhengi en þetta er engu að síður tími sem við gleymum seint. Við vitum hvað við höfum í frelsinu, hvað við höfum í samskiptum við okkar nánustu, mögu- leikana á því að koma saman og ferðast og þannig mætti lengi áfram telja. Við vitum að við viljum halda í þetta frelsi og aðeins hamfarir eða skæðar sóttir geta tekið það frá okkur – þó alltaf vonandi tímabundið. Í dag förum við af neyðarstigi almannavarna yfir á hættustig og ég er þess fullviss að allir hafi vilja til þess að leggja áfram sitt af mörkum til að takast á við þetta verkefni. Þannig höfum við náð árangri fram til þessa. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Við stefnum í eðlilegt horf Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.