Morgunblaðið - 25.05.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MAÍ 2020
Litina hennar Sæju
færð þú í Slippfélaginu
GÆÐIN
Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið.
Votur
Volgur Ber
Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík,
Dalshrauni 11, Hafnarfirði
Hafnargötu 54, Reykjanesbæ
Gleráreyrum 2, Akureyri
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími 588 8000 • slippfelagid.is
60 ára Einar er Reyk-
víkingur og býr í Laug-
ardalnum. Hann er
tölvunarfræðingur að
mennt frá HR og er
framkvæmdastjóri
Vökva ehf.
Maki: Ásta Margrét
Guðlaugsdóttir, f. 1965, flugfreyja hjá
Icelandair.
Börn: Sóley, f. 1986, Guðlaugur Þór, f.
1992, Ingibjörg Eva, f. 1996, og Einar
Ágúst, f. 1998. Dóttursonur er Mikael,
sonur Sóleyjar.
Foreldrar: Elsa Vestmann Stefánsdóttir,
f. 1940, myndlistarmaður, búsett í
Reykjavík, og Ágúst Halldór Elíasson, f.
1931, d. 2018, framkvæmdastjóri.
Einar Ingi
Ágústsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Samningaviðræður þínar við vini
þína geta tekið óvænta stefnu í dag. Eng-
um kemur við hvernig þú verð tíma þínum.
Ekki láta aðra stjórna þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert að fatta hvað skiptir þig
mestu máli. Mundu að sjaldan veldur einn
þá tveir deila og það er þér í hag að vera
hreinskilin/n.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það sitja allir um þig og vilja hafa
áhrif á ráðagerðir þínar. Þú átt góða vini
sem standa með þér, nýttu þér það þegar
á móti blæs.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Stundum gerist það ef maður ein-
blínir á eitthvað eitt, að fjölmargir aðrir
kostir fara framhjá manni. Farðu þér hægt
því tækifærin hlaupa ekkert frá þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Neikvæðar hugsanir ber að forðast
eins og heitan eldinn. Skipulagning er ein
þín sterkasta hlið. Stundum þarf maður að
biðjast fyrirgefningar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Njóttu samvista við aðra í dag. Lík-
legt er að þú haldir dauðahaldi í eitthvert
gamalt vandamál. Æfðu þig í að sleppa.
23. sept. - 22. okt.
Vog Augnabliksfrægð kemur til skjalanna
– nokkuð sem þú varst alls ekki að reyna
að ná. Gleymdu því ekki að sjálfsvirðing
þín skiptir öllu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu ekki hanka þig á því að
þú hafir ekki unnið heimavinnuna þína.
Vertu þolinmóð/ur. Reyndu að útiloka
nagandi ótta, horfðu fram á við.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér finnst eins og einhver hafi
verið með þig í þrautakóngi til að leiða þig
að sannleikanum. Losaðu þig við fatnað,
húsgögn og jafnvel óæskilegan félagsskap
ef því er að skipta.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Segðu nákvæmlega hvað þig
vantar og þú munt fá það, þó ekki alveg
strax. Þú ert leidd/ur áfram í rétta átt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að sinna ættingja í
dag. Gleði og hamingja er í kortunum í
einkalífinu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vinur lumar á safaríku leyndarmáli.
Þú gerir allt sem í þínu valdi stendur svo
öðrum líði vel. Passaðu samt að fara ekki
yfir strikið í þeim málum.
berjatínslu. Svo vann hann hjá Ingi-
mundi Sigfússyni í Heklu næstu tvö
sumur sem sölumaður Volkswagen-
og Land Rover-bíla. „Eftir verslunar-
námið skiptist vinnuferill minn því
sem næst til helminga; 25 ár í forsvari
fyrir innflutningsfyrirtæki og í önnur
25 ár sem eigandi ferðaskrifstofunnar
Fjallafara. Ég hef því verið minn eig-
in herra lengst af.
Einn mesti áhrifavaldur á minni
ævi er að ég hef haft jeppa til umráða
bóknámið en hefur komið sér tvöfalt
betur síðar á ævinni.“
Sem unglingur vann Ólafur með
skóla á Mela- og Laugardalsvöllum
með Baldri Jónssyni vallarstjóra og
árið 1966 var hann hjá Símanum í
Norður-Þingeyjarsýslu. „Þar komst
ég yfir útvarp sem náði BBC og gat
hlustað á úrslitaleik Englands og
Þýskalands.“ Árið 1967 fór Ólafur til
Frakklands og vann þar sem verk-
stjóri sígauna við epla- og jarðar-
Ó
lafur Magnús Schram
fæddist 25. maí 1950 á
heimili sínu í Sörlaskjóli
1 í Reykjavík. Þar ólst
hann upp en var sendur í
Öræfasveit frá sex ára aldri fram yfir
fermingu. „Ég æfði fótbolta í KR en
spilaði lítið á mótum vegna fjarveru
en síðar var ég með eldri flokkum og
náði tveimur Íslandsmeistaratitlum
um þrítugt.“
Skólaganga Ólafs hófst í Ísaks-
skóla. Ég var innritaður þar að ég
held vegna sunnlensku-talanda míns.
Gat ekki gert greinarmun á F og P og
naut þar leiðsagnar Ísaks.“ Hann fór
svo í Melaskóla níu ára. „Þar komst
ég í fyrstu nefndina af fjölmörgum á
skólatíð minni. Sigrún Erla Sigurðar-
dóttir kennari minn átti afmæli á
skólatíma og ég var settur í afmælis-
nefnd ásamt Helgu Möller og Eygló
Gunnardóttur. Svo kom meira fjör í
þátttöku mína í félagslífinu í Haga-
skóla. Strax í fyrsta bekk var ég kos-
inn í skemmtinefnd þar sem fyrstu-
bekkingar áttu eitt sæti. Ég man að
ég sat í nefndinni öll fjögur skólaárin
og kynntist á þeim tíma öllum helstu
hljómsveitarmeðlimum því þá voru
ekki umboðsmenn og ég hringdi bara
beint í Rúna Júl., Þorgeir í Tempó og
Björgvin Halldórs. Segja má að þetta
ábyrgðarstarf hafi átt mestan þátt í
umgengni minni við kvenpeninginn
og er ekki lokið ennþá.“
Úr Hagaskóla fór Ólafur í Versl-
unarskólann og þá tóku fleiri félags-
störf við. „Ég stofnaði bridgefélag,
komst í íþróttanefndina til að geta
valið sjálfan mig í skólaliðið, var alltaf
umsjónarmaður bekkja minna, í
stjórn málfundafélags, ferðanefndum
og náði hátindinum með formennsku í
nemendaráði og sá því m.a. um nem-
endamótið sem haldið var í Sigtúni
tvö kvöld í röð.“
Svo var Ólafur kominn í stjórn
Heimdallar og knattspyrnudeildar
KR, og síðar var hann meðal stofn-
enda hestamannafélagsins Sóta og
fyrsti formaður þar. „Ég rekst ekki í
félagi nema ég stjórni því verð ég að
segja. Síðar á lífsleiðinni var ég orðinn
formaður landsliðsnefndar HSÍ og
braust til valda og varð formaður þess
í nokkur ár. Þar sem ég var svo mikið
í félagsmálum skyggði það duglega á
frá 16 ára aldri og nýti mér það út í
æsar og slæ hvergi af. Ég stundaði sil-
ungs- og laxveiðar, fór á selveiðar,
rjúpu, gæs og hreindýr meðan ég
gekk með drápshvöt en hún hefur nú
elst af mér.“
Ólafur var með hesta í fjölda ára og
fór víða. „Ég reið einn í kringum flesta
jökla landsins og ein ferðin var í
kringum landið, hún tók 33 daga. Sú
ferð var líklega besti fáanlegi undir-
búningur fyrir núverandi starf mitt
sem leiðsögumaður. Ég hef einnig
haldið níu hunda, nokkra ketti, hæn-
ur, fékk greitt fyrir sumarvinnu með
lömbum, átt endur og eina kú um lífið.
Mýs hafa svolítið sótt að mér en ég sé
um að þeim endist ekki aldur til stór-
verka.“
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs að ásatrúarsið er
Kate Lara Knight, f. 12.4. 1969, ráð-
gjafi í markaðsmálum. Þau eru búsett
í Ölfusi. Foreldrar Kate eru hjónin
Richard Knight, herlæknir sem tók
þátt í Falklandseyjastríðinu, og Carol
Knight. Þau eru ensk og búsett á
Englandi.
Börn Ólafs og Marínar Magnús-
dóttur, f. 7.12. 1950, listmunasala í
Danmörku, eru 1) Magnús Orri, f.
23.4. 1972, framkvæmdastjóri og fyrr-
verandi þingmaður Samfylkingar-
innar, búsettur í Reykjavík. Hann var
kvæntur Herdísi Hallmarsdóttur lög-
fræðingi og eiga þau saman Hallmar
Ólafur Schram framkvæmdastjóri – 70 ára
Á Dyngjufjallasvæði Ólafur ásamt yngri syni sínum, Ellert, og tveimur
sonum hans, Tindi Snæ og Maríusi Högna, árið 2018.
Lengst af verið sinn eigin herra
Leiðsögumaðurinn Óli að vaða
Sveðju sunnan við Vonarskarð.
Ljósmynd/Eva Þorbjörg Schram
Afmælis-
barnið
Ólafur
Schram.
50 ára Pétur ólst
upp í Ólafsvík en býr
í Háaleitishverfi í
Reykjavík. Hann er
vagnstjóri hjá
Strætó.
Maki: Ingibjörg
Kristín Þórarins-
dóttir, f. 1982, sjúkraliði að mennt en
starfar sem dagmóðir.
Börn: Bjarni Snæbjörn, f. 1994, Guðný
Magnea, f. 2005, og Rannveig Perla, f.
2010.
Foreldrar: Árni Vilhjálmsson, f. 1941,
d. 2019, verkstjóri hjá B&L, og Bryn-
dís Guðrún Kristjánsdóttir, f. 1942, d.
2018, húsmóðir. Þau voru búsett í
Reykjavík.
Pétur Gunnar Þór
Árnason
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is