Morgunblaðið - 25.05.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 25.05.2020, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MAÍ 2020 Í skýrslu starfshóps forsætisráðherra frá 2018 um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu kemur m.a. fram er varðar að vinna gegn spillingu á lágu stigi að mikilvægt er að gæta sérstaklega að þremur þáttum í sam- skiptum við hagsmuna- aðila:  Vera hafið yfir all- an vafa að jafnræði ríki um aðkomu hagsmunaaðila.  Tryggja að ekki sé hægt að halda því fram að sérhagsmunir séu teknir fram yfir almannahagsmuni.  Gagnsæi ríki um aðkomu hags- munaaðila, þar á meðal um samskipti við ráðherra, þingmenn og opinbera starfsmenn. Drifkrafturinn Drifkrafturinn við uppbyggingu sjókvíaeldis á Íslandi hefur verið að ná fjárhagslegum ávinningi á kostnað umhverfis og samfélags. Málið snýst m.a. um að stjórnarformenn Arnarlax og Fiskeldis Austfjarða komu sér í starfshóp sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra um stefnumótun í fisk- eldi og hafa verið leiðandi við hönnun á leikreglum, skjalfest í lögum um fiskeldi, sjálfum sér og sínum fyrir- tækjum til fjárhagslegs ávinnings á kostnað annarra. Er jafnræði á meðal fiskeldismanna? Stjórnarformennirnir voru í umboði Lands- sambands fiskeldis- stöðva en héldu þó framgangi vinnunnar leyndri fyrir stjórn fé- lagsins fram á síðustu stund. Niðurstaðan var að hagsmunir stærri laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila voru tryggðir og hagsmunum minni ís- lenskra fiskeldisfyrirtækja fórnað. Hér vakna margar áleitnar spurn- ingar um vinnubrögð, siðferði og þau átök sem áttu sér stað hjá Lands- sambandi fiskeldisstöðva og hvaða reglur eiga að gilda um samstarf fé- laga innan samtaka. Sérhagsmunir og almannahagsmunir Við skipan stefnumótunarhópsins var aðeins þröngur hópur sérhags- munaaðila ásamt opinberum starfs- mönnum. Í vinnu hópsins eru sér- hagsmunir teknir fram yfir almanna- hagsmuni, þar sem drifkrafturinn er að tryggja hagsmuni stærri laxeldis- fyrirtækja og stærri veiðifélaga. Fulltrúum almennings s.s. sveitar- félaga var haldið frá og lítið sem ekk- ert tillit tekið til þeirra athugasemda og ábendinga í ferlinu fram að því að lögin voru samþykkt. Gagnsæi og ráðuneytið Fiskeldisfrumvarpið tók ekki á grunni vandans sem var í raun fram- ferði fyrirtækja stjórnarformann- anna sem áður hefur verið gerð grein fyrir í fyrri greinum. Það hljómar síð- an einkennilega að stjórnarformenn- irnir urðu síðan í framhaldinu helstu ráðgjafar stjórnvalda. Einhverra hluta vegna hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ekki unnið sína heimavinnu með því að leggja fram ónothæft fiskeldisfrumvarp, sem þurfti að gera verulegar breytingar á í meðferð Alþingis. Þessi vinnubrögð vekja mann til umhugsunar um þau vinnubrögð sem eru viðhöfð í stjórn- sýslunni. Gagnsæi og tengsl Formaður stefnumótunarhópsins var lögfræðingur í ráðuneyti sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra þeg- ar stefnumótunarskýrslan var unnin. Nú virðist viðkomandi m.a. vinna fyr- ir stjórnarformann Arnarlax. Starfs- maður stefnumótunarhópsins vann jafnframt í fyrirtæki stjórnarfor- manns Arnarlax og hafði aðstöðu í ráðuneytinu á meðan unnið var að stefnumótunarskýrslunni. Hér vakna margar áleitnar spurningar um hags- munatengsl og möguleika sterkra hagsmunaaðila á að hafa áhrif á vinnu og ákvörðunartöku í stjórnsýslunni. Gagnsæi og hagsmunapot Það er ekki hægt að segja annað en stjórnarformennirnir hafi unnið sína heimavinnu sér til hagsbóta meðan á stefnumótuninni stóð og fylgja síðan tillögunum eftir í ráðuneytinu og á Alþingi Íslendinga. Hér má velta fyr- ir sér hvaða reglur gilda og hvaða reglur eiga að gilda um aðgengi fjár- sterkra hagsmunaaðila að stjórn- málamönnum og starfsmönnum stjórnsýslunnar. Það hefur verið at- hyglisvert að fylgjast með framgöngu hagsmunaaðila og sjá hve langt þeir hafa í raun getað komist í sínu hags- munapoti. Það er áhyggjuefni hve faglegum vinnubrögðum er ábóta- vant í stjórnsýslunni. Ekki búið að klára málið Það má segja Alþingi til hróss að það stoppaði af sumar tillögur stefnu- mótunarhópsins en of margar kom- ust þó í gegn og þannig var stjórn- arformönnunum tryggður fjárhagslegur ávinningur. Vanda- málið er þó að alþingismenn höfðu ekki sett sig nægilega vel inn í málið og ekki alveg gert sér grein fyrir hverju þeir voru að hleypa í gegnum þingið. Alþingismenn höfðu nægan tíma þar sem fiskeldisfrumvarpið var fyrst lagt fram á þingi árið 2018 og aftur lítið breytt 2019. Málinu er því ekki lokið og mun birtast í um- ræðunni á næstu mánuðum og árum. Íslenska leiðin Í fyrri greinum hefur var gerð grein fyrir því hvernig hags- munaaðilar unnu að því að tryggja sér fjárhagslegan ávinning á kostnað annarra og endastöðin var að koma laxeldisfyrirtækjunum á erlendan hlutabréfamarkað. Í því samhengi má benda á frétt um Arnarlax í Morg- unblaðinu frá 11. janúar, en sumir hluthafar hafa tekið út verulegan fjárhagslegan ávinning. Mörgum finnst eflaust að vinnubrögðin séu ásættanleg; þetta er bara íslenska leiðin. Draga má það þó stórlega í efa að íslenska leiðin geti viðgengist í þróuðum lýðræðisríkjum sem við vilj- um oft bera okkur saman við. Höfundur hefur farið fram á að gerð verði opinber úttekt á málinu en fram að þessu hefur það verið huns- að. Eftir Valdimar Inga Gunnarsson »Draga má það stór- lega í efa að íslenska leiðin geti viðgengist í þróuðum lýðræðisríkj- um sem við viljum oft bera okkur saman við. Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdimar@sjavarutvegur.is Flokkast íslenska leiðin undir spillingu? Halda mætti oft á tíðum að Reykjanes- bær og Suðurnesjabær væri sjálfstæður vinnu- markaður í eigin landi og hinir kjörnu þing- menn okkar væru hvorki með tengsl við atvinnuleysið hér á svæðinu né löggjafann Alþingi. Hvað veldur er þeirra að svara. Las í virtum fjölmiðli að ráðamenn væru að ræða við bandarískan fjár- festingasjóð um stórskipahöfn í Finnafirði. Það fyrsta sem kom upp í huga mínum var hvar annars vegar hvar okkar kjörnu fulltrúar Suður- nesjamanna væru og hvað menn væru yfirleitt að hugsa, vitandi það að Helguvíkurhöfn er sennilega ein flottasta höfn sem völ er á hér á landi. Hún er þó jafnframt ein sú skuldug- asta vegna þess að það er ekki neitt að gerast þar nema yfirdráttur og endurskipulagning eldri lána. Hér vantar nýja framtíðarsýn til að virkja tækifærin, þá koma tekjurnar sem þarf til að greiða upp allar gömlu syndirnar og sporna við 30% atvinnu- leysi hér í Reykjanesbæ. Einn ágætur íbúi hér í okkar frá- bæra bæjarfélagi Reykjanesbæ komst svo vel að orði við mig um dag- inn: Ég veit ekki, vinur, hvað skal segja en menn þyrftu að hugsa dæm- ið til enda og vera óhræddir að takast á við mótlætið og sjá tækifærin í stöð- unni í ljósi breyttra aðstæðna í heim- inum með hugsanlegum norðurslóða- siglingum. Af hverju ekki að skoða hlutina til enda og frá öllum hliðum með framtíð sveitarfélaganna og Helguvíkurhafnar að leiðarljósi? Gleymum því ekki að Helguvíkur- höfn er skilgreind sem stórskipahöfn Suðurnesja í svæðisskipulagi sveitar- félaganna á Suðurnesjum þannig að eitthvað hafa menn verið að hugsa út fyrir boxið þó framhaldið sé óráðin gáta. Í Helguvík væri hæglega hægt að bjóða bæði komur herskipa og far- þegaskipa á sama tíma. Það gæti haft í för með sér gríðarlegar tekjur fyrir svæðið bæði beint og óbeint til framtíðar litið. Fólk hættir ekki neitt að heimsækja Gull- foss, Geysi eða Bláa lón- ið þó það komi sjóleiðina til landsins. Endastöðin væri svo Helguvík í Reykjanesbæ. Verum þess vel minn- ug að þessar komur far- þegaskipa hafa heldur betur gefist vel fyrir höfuðborgar- svæðið og nágrannasveitarfélög. Nægir að nefna þjónustuna og við- skiptin, akstur, hafnargjöld o.fl. bæði beint og óbeint, allt tækifæri sem hæglega er hægt að koma í verk hér í Helguvík í Reykjanesbæ, þ.e.a.s. ef vilji er fyrir hendi. En allt kostar þetta fjármuni sem illa stödd Helguvíkurhöfn í Reykjanesbæ er ekki aflögufær með. Hugsanlega sjá erlendir fjárfestar gróðavonina en þeir koma ekki til okkar ef ekki er leitað eftir þeirra aðkomu. Ágætu bæjarbúar, sveitarstjórnar- menn og þingmenn, byrjum spjallið á réttum enda og sjáum hvert það leið- ir okkur, bjóðum hingað til lands fjár- festa til ráðstefnu undir yfirskriftinni „Helguvík, hin arðvænlega fjárfest- ing til framtíðar“ í Hljómahöll, Stapa. Að lokum skulum við gera þessi orð að okkar: Til að skapa fjármuni þarf að eyða fjármunum. Góðar stundir. #ÁframSuðurnesTilsóknar2020. Eftir Sigurjón Hafsteinsson Sigurjón Hafsteinsson » Gleymum því ekki, Helguvíkurhöfn er skilgreind sem stór- skipahöfn Suðurnesja í svæðisskipulagi sveitar- félaganna á Suðurnesj- um. Höfundur er íbúi í Reykjanesbæ. molikarlinn@simnet.is Óskafyrirsögnin: „Ræða stórskipa- höfn í Helguvík“Í nokkuð mörg árhefur verið uppi all- víðtæk umræða um tjáningarfrelsið innan landa sem mynda Evrópusambandið. Þessi umræða hefur náð víðar, svo sem til Vesturheims og jafn- vel Asíu. Hún hefur ekki síst snúist um rétt manna til þess að láta í ljós skoðanir sínar á mönn- um og málefnum og þá einna helst því sem lýtur að innflytjendum, loftslagsmálum og lífsskoðunum. Tjáningarfrelsið í samtímanum Í mörgum löndum, til dæmis í Evrópu, hafa verið sett lög sem setja viðurlög við svokallaðri hat- ursumræðu. Sem hliðstæður frá fyrri tíð má nefna ákvæði sem helguðu gerðir rannsóknarréttar kaþólsku kirkjunnar á Spáni og sjaríalög múslíma (sem reyndar enn gilda). Hliðstæður er einnig að finna innan Sovétríkjanna sálugu og í Þýskalandi nasismans. Svo litið sé nær í tíma er bannað í Kína að gagnrýna stjórnvöld og þar er gjörtækt eftirlit með borg- urunum til þess að hafa uppi á þeim sem ekki feta hina fyrirskrif- uðu braut. Mönnum er líka hollara að hafa gát á tungu sinni og gerð- um í hinni lokuðu Norður-Kóreu og betra er líka að misstíga sig ekki mikið í til dæmis Rússlandi Pútíns og Tyrklandi Erdógans eða í Íran klerkaveldisins. Fleira mætti til tína. Lög gegn hatursumræðu á Vest- urlöndum eiga rót sína framar öðru í vaxandi fjölda og æ meiri áhrifum innflytjenda frá hinum múslímska heimi. Litið hefur verið á þá sem ofsótta sem á grundvelli „fornra“ mannréttindasáttmála eigi undir högg að sækja og hafi því þörf fyrir sértæka vernd. Þessu halda múslímar sjálfir fram og einnig aðrir, einkum á vinstri vængnum. Við bætast gerðir öfga- hópa innflytjenda, sem hafa vakið ótta almennra borgara og einnig yfirvalda með til dæmis hryðju- verkum og þannig minnkað mót- stöðuaflið og aukið á hneigðina til undirgefni. Þetta greiddi götu löggjafar gegn hatursumræðu, sem í reynd hefur einkum nýst gegn um- ræðu um og gagnrýni á íslam. Þess eru fá eða nánast engin dæmi að haturs- umræða múslíma gegn kristnum íbúum til að mynda Evrópu hafi orðið tilefni til málaferla á grundvelli laga gegn haturs- umræðu og þá ratað fyrir dóm- stóla – þótt af nógu sé að taka. Þessi staða mála hefur leitt til þess að menn hafa í raun sjálfir takmarkað frelsi sitt til tjáningar vegna þess að þeim hefur verið innbyrlaður ótti við afleiðingarnar af því að láta uppi þær skoðanir sem þeir í raun bera í brjósti. Þó er það svo, að lýðræðið, eins og menn almennt vilja skilgreina það, byggist á því að menn hafi skoð- anir, haldi þeim fram og geti gert það án þess að eiga á hættu gíf- uryrði, útskúfun eða annað enn verra svo sem sektir og/eða fang- elsisvist. Í raun hafa menn verið hnepptir í fjötra sem ná langt út fyrir umæðu um íslam. Það, að menn beygja sig undir þetta ok, gefur öðrum sérhagsmuna- og minni- hlutahópum undir fótinn í því að koma sjálfum sér í þá aðstöðu að verða þrýstihópar, sem gjarnan eru fámennir en háværir og áber- andi langt umfram raunvægi sitt og iðulega í andstöðu við vilja og skoðanir meirihluta íbúanna. Ýms- ir hafa meira að segja komið sér á spena hins opinbera, svo sem í formi fjár úr vösum skattborg- aranna, og njóta málefnalegs at- beina undirgefinna stjórnvalda. Sem dæmi má nefna bergmálið úr ranni fáfróðra stjórnmálamanna um mengun, loftslagsmál og bíla- eign, en í því síðasta má nefna herferð núverandi yfirvalda í Reykjavík gegn einkabílnum. Menn víkka líka sviðið, sem heft tjáningarfrelsi nær til, og auka þannig stýringu á gerðum manna og hugsunum. Sem dæmi má nefna einhliða umfjöllun í fjöl- miðlum, þar sem iðulega er fremur um innrætingu að ræða en upplýs- andi umfjöllun, enda einungis ein hlið mála dregin fram, en aðilar annarrar skoðunar hvergi nærri. Þetta á við um fjölda umræðuþátta og frétta bæði á prenti og á ljós- vakanum. Nefna má þá vindorku- garða sem reisa á víða í náttúru Íslands, henni til óbætanlegs skaða - og það á vegum norskra aðila. Þess er lítið getið að þessi fyrirbæri mæta sívaxandi andstöðu í Evrópu; svo sem í Þýskalandi og einnig í Noregi, en hér bylur nær eingöngu sem næst lofsöngur. Mun fleira mætti til tína af dæmum um sérhagsmunahópa sem nýta aðstöðu sína til hagsmuna- pots með einhliða tjáningu, sem iðulega jaðrar við heilaþvott – og vei þeim sem vogar sér að nýta ætlað frelsi sitt til andmæla. Áeggjan Er ekki tími til þess kominn að almenningur nýti sér það tjáning- arfrelsi sem verður að vera kjal- festa lýðræðis eigi það að standa undir nafni? Er ekki tími til þess kominn að hinn mikli meirihluti sem vogar ekki að láta í ljós skoð- anir sínar af ótta við köpuryrði, úthrópanir og útskúfun taki til orða? Eigum við í vændum hlið- stæðu þess sem er að ganga yfir Þjóðverja, þar sem í lög var sett 14. maí síðastliðinn að allt að þriggja ára fangelsi liggi við því að hæðast að ESB, fána þess og þjóð- söng? Megum við búast við að bann verði lagt á skoðanir, önd- verðar hinum fyrirskrifuðu, þó að þegnunum hafi aldrei gefist kostur á því að hafna þeim eða sam- þykkja? Ef menn verja ekki réttindi sín og krefjast raunhæfrar greiningar og umfjöllunar, þar sem fleiri en ein hlið mála eru dregnar fram, hvert liggur þá leiðin? Niður á við, ekki satt? Eftir Hauk Ágústsson »Er ekki tími til þess kominn að almenn- ingur nýti sér það tján- ingarfrelsi sem verður að vera kjalfesta lýð- ræðis eigi það að standa undir nafni? Haukur Ágústsson Höfundur er fyrrverandi kennari. Tjáningarfrelsi eða innræting?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.