Morgunblaðið - 26.05.2020, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 123. tölublað 108. árgangur
DARRI FREYR MEÐ
KARLALIÐ KR Í
KÖRFUNNI
SÆKJA INN-
BLÁSTUR Í
COVID
BOÐIÐ UPP Á
ÍTALSKAN ÍS Í
AÐALSTRÆTI
LISTSÝNING 28 NÝ ÍSBÚÐ VINSÆL 6ÍÞRÓTTIR 27
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Fólk sem notar líkamsræktarstöðvar til að hreyfa sig og
styrkja líkamann tók gleði sína á ný í gær þegar stöðvarnar
opnuðu dyr sínar eftir rúmlega tveggja mánaða hlé. Fólk mætti
í misjöfnu ástandi, eftir sjálfskipaða sóttkví eða útiæfingar. Líf
var í tuskunum í pallaleikfimi hjá Önnu Eiríksdóttur í Hreyf-
ingu í Glæsibæ og svitinn perlaði af þátttakendum.
Morgunblaðið/Eggert
Sviti perlar á ný af fólki
í líkamsræktarstöðvum
Helgi Bjarnason
Þór Steinarsson
Sóttvavarnalæknir segir að þeir sem
greinast smitaðir af kórónuveirunni
séu sífellt minna veikir. Telur hann að
það kunni að stafa af því að þeir séu
að ljúka sínum veikindum. „Það gæti
líka verið að þróttur sé að fara úr veir-
unni, hugsanlega. Veikindin hafa ver-
ið að minnka eftir því sem liðið hefur á
tímann frá 28. febrúar. Það gæti gefið
okkur vísbendingar um að veiran sé
ekki eins ágeng og slæm en tíminn
verður að leiða það í ljós,“ sagði Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnalæknir á
upplýsingafundi almannavarna í gær.
Fundurinn var síðasti reglulegi
upplýsingafundurinn, í bili að
minnsta kosti. Ríkislögreglustjóri, í
samráði við sóttvarnalækni, ákvað að
lækka almannavarnastig frá neyðar-
stigi niður á hættustig vegna
kórónuveirufaraldursins. Tók breyt-
ingin gildi í gær.
Létt var á samkomutakmörkunum
í gær. Nú mega tvö hundruð koma
saman í stað fimmtíu.
Aðeins sex hafa greinst jákvæðir
við greiningar sýna það sem af er
maímánuði. Þórólfur sagði á fundin-
um í gær að það benti til þess að lítið
smit væri í samfélaginu. Tók hann
fram að fróðlegt yrði að sjá hvort
rýmkun takmarkana um samkomur
og leyfi til að stunda ýmsa starfsemi
yrði til þess að smit ykist mikið næstu
þrjár vikurnar.
Starfshópur sem falið var að und-
irbúa og stjórna framkvæmd á sýna-
tökum á Keflavíkurflugvelli skilaði
tillögum í gær. Ákveðið verður með
birtingu þeirra í dag. »4
Þróttur líklega að
fara úr veirunni
Dregið úr viðbúnaði almannavarna vegna faraldursins
Morgunblaðið/Eggert
Fagnaðarstund Starfsfólk björgunarmiðstöðvarinnar í Skógarhlíð söng
saman þegar það fékk fullan aðgang að vinnustaðnum á nýjan leik.
„Sumarið fer ágætlega af stað en
við höfum ekki getað fengið
afleysingalækna að utan eins og í
fyrra. Það verður því aðeins minni
mönnun af læknum en síðasta sum-
ar,“ segir Jón Magnús Kristjánsson,
yfirlæknir bráðalækninga á Land-
spítalanum.
Hann segir að þrír til fjórir er-
lendir læknar hafi komið til starfa í
fyrra í einn til þrjá mánuði hver.
Vegna kórónuveirunnar og reglna
um sóttkví hafi ekki reynst unnt að
hafa þann háttinn á í ár. „Við þurf-
um því að draga úr þjónustu með
endurkomur en bráðaþjónustan ætti
að vera óbreytt,“ segir Jón.
Anna Sigrún Baldursdóttir, að-
stoðarmaður forstjóra Landspít-
alans, segir að mögulega þurfi að
loka einhverjum deildum á spít-
alanum í sumar en vegna kórónu-
veirufaraldursins hafi ekki verið
unnt að ganga frá því skipulagi. »6
Fá ekki
afleysingar
Morgunblaðið/Golli
Bráðadeild Færri læknar í sumar.
„Ætlun okkar er að efla skólann
heildstætt,“ segir Ragnheiður Inga
Þórarinsdóttir, rektor Landbún-
aðarháskóla Íslands. Eins og fram
hefur komið í Morgunblaðinu er
kurr meðal manna í græna geir-
anum út af fyrirkomulagi garð-
yrkjumenntunar, sem þeir vilja að
verði að nýju í sjálfstæðum skóla.
Rektor segir hins vegar að til standi
að efla starfsmenntun LbhÍ í garð-
yrkju með líku lagi og gera eigi í
starfsmenntanámi. Samstarf við
framhaldsskóla sé hluti af því. »10
Efla starfsmennt