Morgunblaðið - 26.05.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandarísk stjórnvöld tilkynntu í
fyrrinótt að þau hygðust meina öll-
um ferðalöngum frá Brasilíu, sem
ekki væru bandarískir ríkisborgar-
ar, að koma til landsins. Ákvörðunin
er tekin í ljósi þess að kórónuveiru-
faraldurinn hefur verið í miklum
uppgangi í Suður-Ameríku síðustu
vikur, og varaði Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin við því í gær að heimsálfan
væri nú að verða nýr „miðpunktur“
faraldursins.
Á það ekki síst við um Brasilíu, en
þar hafa nú rúmlega 363.000 manns
smitast af kórónuveirunni og rúm-
lega 22.600 manns hafa látist af völd-
um hennar þar í landi. Jair Bolson-
aro, forseti Brasilíu, hefur hins
vegar frekar viljað draga úr áhyggj-
um fólks vegna faraldursins, og jafn-
vel átt í deilum við ríkisstjóra helstu
héraða landsins vegna ágreinings
um hversu langt eigi að ganga í sótt-
vörnum.
Í tilkynningu Bandaríkjastjórnar
segir að ferðabann þeirra á Brasilíu
gildi um alla sem hafi verið í landinu
síðustu tvær vikurnar. Ákvörðunin
kom einhverjum stjórnmálaskýr-
endum á óvart, þar sem Bolsonaro
hefur verið dyggur bandamaður
Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Brasilísk stjórnvöld gerðu hins
vegar lítið úr tilkynningu bandaríska
utanríkisráðuneytisins og sögðu
hana vera sambærilega fyrri ákvörð-
unum Bandaríkjastjórnar um að
banna ferðalög frá Kína og Evrópu.
Ríki Evrópu opna meira
Á sama tíma og fjöldi tilfella hefur
farið vaxandi í Suður-Ameríku eru
ríki Evrópu farin að aflétta þónokkr-
um af þeim hömlum sem settar voru
á vegna faraldursins.
Á Spáni var útgöngubanni aflétt í
stórborgunum Madrid og Barcelona,
og fengu lystigarðar og kaffihús þar
að vera opnuð á ný eftir meira en
tveggja mánaða bann. Þá var gest-
um aftur hleypt á spænskar bað-
strendur með því skilyrði að þeir
virtu harðar reglur um örugga fjar-
lægð frá öðru fólki.
Í Grikklandi var leyft að opna veit-
ingastaði á ný viku á undan upphaf-
legri áætlun, en á móti kom að þeim
var eingöngu leyft að sinna gestum
utandyra.
Neyðarástandi aflétt
Shinzo Abe, forsætisráðherra Jap-
ans, tilkynnti einnig í gær að neyðar-
ástandi vegna faraldursins hefði ver-
ið aflétt, en nýjum tilfellum þar í
landi hefur fækkað mjög síðustu
daga.
Vonir standa til að Japan, sem er
með þriðja stærsta hagkerfi heims,
muni ná sér fljótt á strik eftir farald-
urinn, en Abe varaði við því að Jap-
anir yrðu áfram að fara að öllu með
gát. Sagði Abe að Japanir yrðu að til-
einka sér nýja lífshætti og forðast
lokuð rými, mannfjölda og náin sam-
skipti.
Banna komur fólks frá Brasilíu
Evrópuríki halda áfram að skríða úr kórónuveiruhíðinu Abe afléttir neyðarástandinu í Japan
AFP
Spánn Aftur var hægt að fara á
kaffihús í Barcelona í gær.
Öryggisverðir sjást hér ganga fylktu liði úr Al-
þýðuhöllinni í Peking eftir að öðrum degi kín-
verska alþýðuþingsins lauk.
Þingið er þó talið hafa lítil raunveruleg völd, þar
sem það staðfestir aðallega ákvarðanir sem mið-
stjórn kommúnistaflokksins hefur tekið.
Þingið kemur saman að jafnaði í um tvær vik-
ur á hverju ári, en það er fjölmennasta löggjaf-
arsamkunda heimsins með 2.980 þingmenn.
AFP
Fyllsta öryggis gætt á kínverska alþýðuþinginu
Dominic Cumm-
ings, aðal-
ráðgjafi Boris
Johnsons, for-
sætisráðherra
Bretlands, sagði í
gær að hann
hefði fylgt bæði
lögum og skyn-
semi þegar hann
fór með fjöl-
skyldu sína til
Durham vegna ótta um að bæði
hann og eiginkona hans myndu
verða veik af kórónuveirunni. Sam-
an eiga þau fjögurra ára dreng, og
sagði Cummings að hann hefði ekki
átt annarra kosta völ en að leita
ásjár hjá foreldrum sínum og systk-
inum í Durham. Tók hann fram að
öll samskipti fjölskyldu sinnar við
þau hefðu fylgt sóttvarnareglum.
Mikill þrýstingur hefur verið á
Cummings að hann segi af sér, eftir
að breskir fjölmiðlar greindu frá
því um helgina að hann hefði brotið
sóttvarnareglur Breta með ferða-
laginu. Cummings sagðist skilja
reiði fólks, en sagði einnig að
nokkrar rangfærslur hefðu verið í
fréttaflutningum.
Segist ekki hafa
brotið sóttvarnalög
Dominic
Cummings
BRETLAND
Hæstiréttur Þýskalands úrskurðaði
í gær að þýska bílaframleiðandanum
Volkswagen væri skylt að kaupa til
baka díselbíl, sem framleiðandinn
hafði breytt til þess að láta líta út
fyrir að bíllinn mengaði minna en
hann gerði í raun. Málið er talið hafa
fordæmisgildi fyrir fjölda annarra
álíka mála sem bíða niðurstöðu eftir
að „díselhneykslið“ svonefnda kom
upp fyrir fimm árum.
Úrskurður hæstaréttar staðfesti
þannig fyrri dóm undirréttar, sem
sagði að bíleigandinn Herbert Gil-
bert ætti rétt á að skila inn bifreið
sinni aftur til Volkswagen og fá end-
urgreiðslu upp á 25.600 evrur.
Sú upphæð er hins vegar um 6.000
evrum lægri en upphaflegt kaupverð
bifreiðarinnar, þar sem dómararnir
ákváðu að meta núvirði hennar við
þann tíma sem hún var í notkun.
Í yfirlýsingu frá Volkswagen sagði
að fyrirtækið hygðist í ljósi þessa
dóms semja um sættir við aðra, sem
kært hafa fyrirtækið vegna dísel-
hneykslismálsins. Myndi fyrirtækið
gera þeim bíleigendum sem hefðu
orðið fyrir skaða „viðeigandi tilboð“
fyrir bifreiðina.
Um 60.000 mál höfðuð
Þá sagðist fyrirtækið einnig
myndu borga þeim, sem vildu halda
bifreið sinni, en bætti við að skýra
þyrfti nokkur smáatriði, eins og þau
hvort þeir sem keyptu sér Volks-
wagen-bifreið eftir að hneykslið kom
í ljós árið 2015 gætu átt rétt á bót-
um.
Um það bil 60.000 einkamál eru
útistandandi í Þýskalandi, en fyrir-
tækið náði sáttum í síðasta mánuði í
hópmálsókn gegn fyrirtækinu, þar
sem 235.000 ökumenn stefndu fyrir-
tækinu fyrir tilstilli neytenda-
samtaka. Mun Volkswagen greiða út
um 750 milljónir evra til hópsins í
skaðabætur.
Gert að endur-
greiða bifreiðina
Hæstiréttur
staðfestir dóm
gegn Volkswagen
AFP
Í vanda Volkswagen var gert að
endurgreiða díselbifreið í gær.