Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 26
AFP Meiddur Óvissa ríkir nú með fram- haldið hjá Zlatan Ibrahimovic. Sænski knattspyrnumaðurinn Zlat- an Ibrahimovic hefur mögulega spil- að sínn síðasta leik en hann meiddist á æfingu í gær og mun líklega ekki spila meira með AC Milan á tíma- bilinu. Zlatan sneri aftur til Ítalíu frá Bandaríkjunum í janúar og gekk til liðs við sitt gamla félag. Hann er orðinn 38 ára og verður samnings- laus í lok júní. Hann átti við meiðsli í kálfa að stríða í febrúar og þau eru sögð hafa tekið sig upp. Zlatan ekki meira með? 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020 26. maí 1984 Ásgeir Sigurvinsson er vestur- þýskur meistari með Stutt- gart sem tryggir sér meistaratitil- inn í loka- umferðinni á betri markamun en Hamburger SV þrátt fyrir 0:1 ósigur í viðureign liðanna. Um kvöld- ið er síðan upplýst að Ásgeir hafi verið kjörinn besti knatt- spyrnumaður Vestur- Þýskalands af leikmönnum deildarinnar. Hann fær 78 at- kvæði og Karl-Heinz Rumme- nigge hjá Bayern München er næstur með 32 atkvæði í kjör- inu. 26. maí 1985 Lárus Guðmundsson er vestur-þýskur bikarmeistari í knattspyrnu þegar Bayer Uerdingen sigrar Bayern München, 2:1, í úrslitaleik frammi fyrir 70 þúsund áhorfendum í Vestur-Berlín. Þar með hefur Lárus orðið bikarmeistari í tveimur lönd- um með stuttu millibili, en hann vann belgíska bikarinn með Waterschei árið 1982. Uerdingen vinnur þarna sinn fyrsta og eina stóra titil í sögu félagsins og kemst í fyrsta skipti í Evrópukeppni. 26. maí 1985 Einar Vilhjálmsson sigrar í spjótkasti á stigamóti Alþjóða frjálsíþrótta- sambandsins í San José í Bandaríkjunum. Einar kastar 88,28 metra, á þrjú önnur köst yfir 86 metra og sigrar nokkra af bestu spjót- kösturum heims en m.a. eru Tom Petranoff, silfurhafi frá HM, og Kenth Eldebrink, bronshafi frá síðustu Ólymp- íuleikum, í næstu sætum á eftir Einari. 26. maí 1991 Sundkonan Ragnheiður Run- ólfsdóttir vinnur fimm gull- verðlaun og tvenn silfur- verðlaun á Smáþjóða- leikunum í Andorra og er sigursælasti keppandinn. Hún á drjúgan þátt í því að Ísland vinnur flest verðlaun allra þátttökuþjóða, 102 talsins og þar af 64 gullverðlaun. 26. maí 1995 Ísland vinnur öruggan sigur á Kýpur, 77:62, í C-riðli Evr- ópukeppni karla í körfuknatt- leik í Lugano í Sviss. Teitur Örlygsson skorar 19 stig fyrir íslenska liðið og þeir Guð- mundur Bragason, Valur Ingimundarson og Jón Kr. Gíslason 11 stig hver. Fyrir leik var ljóst að liðið kæmist ekki áfram úr riðlinum. 26. maí 2010 Hanna Guðrún Stefánsdóttir á stórleik og skorar þrettán mörk fyrir ís- lenska kvenna- landsliðið í handknattleik þegar það tapar naumlega, 24:27, fyrir Frakk- landi, silfurliði síðasta heimsmeistaramóts, í undankeppni EM í Laugar- dalshöllinni. Ísland á þrátt fyrir tapið áfram góða mögu- leika á að tryggja sér keppn- isrétt á EM 2010 en fram und- an er hreinn úrslitaleikur gegn Austurríki á útivelli. Á ÞESSUM DEGI KR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Knattspyrnukonan Ingibjörg Val- geirsdóttir ætlaði sér aldrei að verða markvörður og spilaði til að mynda fyrstu leiki sína í meistaraflokki sem útileikmaður fyrir Sindra á Hornafirði í 1. deildinni, aðeins 14 ára gömul. Þjálfari taldi hana hins vegar á að reyna fyrir sér í marki og og varð þá ekki aftur snúið. Átta árum síðar er Ingibjörg einn besti markvörður Íslandsmótsins, hún mun verja mark KR í sumar og þá hefur hún verið í síðustu tveimur A- landsliðshópum Íslands. Ingibjörg, sem varð 22 ára í janúar, hefur verið á mála hjá KR síðan 2016 og á 39 leiki í efstu deild. KR-liðið hafnaði í 7. sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og fór alla leið í úrslit í bikarkeppninni. Þar þurftu Vest- urbæingar hins vegar að þola grátlegt tap eftir framlengdan leik gegn Sel- fyssingum. Ingibjörg telur það tap geta orðið liðinu aukna hvatningu í sumar, en hún bíður spennt eftir að mótið hefjist loks í næsta mánuði. „Við höfum verið að æfa vel og get- um núna eftir helgi loks farið að æfa aftur með eðlilegum hætti. Ég myndi segja að standið á liðinu sé mjög gott. Við munum svo spila einhverja æf- ingaleiki og þá einn í þessari viku en svo spilum við aðallega innbyrðis, áð- ur en mótið hefst,“ sagði Ingibjörg í samtali við Morgunblaðið um helgina. „Þjálfararnir þekkja þetta auðvitað best en við hlökkum til að byrja aft- ur.“ KR mætir Val í fyrstu umferð föstudagskvöldið 12. júní. Blásið til sóknar í Vesturbæ KR-ingar hafa styrkt sig vel fyrir baráttuna í sumar og samið við öfluga og reynda leikmenn. Katrín Ásbjörns- dóttir sneri aftur til uppeldisfélagsins eftir að hafa verið í barneignarfríi á síðasta keppnisári, en hún varð Ís- landsmeistari með bæði Þór/KA og Stjörnunni ásamt því að spila í Nor- egi. Þá er Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir einnig búin að skipta yfir í Vest- urbæinn, úr Þór/KA, en báðar eru þær reyndir leikmenn með landsleiki að baki. Þá hafa þær Lára Kristín Pedersen og Kristín Erla Sigur- lásdóttir einnig gengið til liðs við KR og því ljóst að liðið er gríðarlega vel í stakk búið fyrir mótið, sem verður þéttspilað í sumar. KR-ingar hafa meira og minna verið í fallbaráttu ár hvert frá því að liðið komst aftur í deild hinna bestu árið 2014 en félagið ætlar sér aðra og betri hluti í sumar. Þótt Ingibjörg vildi ekki sérstak- lega opinbera markmið liðsins segir hún stefnuna klárlega setta á topp- inn. „Við höfum sett markmið innan liðsins sem við erum ekkert að kasta út í kosmósið, þau eru bara innan liðs- ins, en við stefnum á toppbaráttuna. Við sáum það í fyrra að við getum það, sérstaklega eftir bikarúrslita- leikinn, þá fékk maður þessa tilfinn- ingu,“ sagði Ingibjörg, sem er sátt við þann góða liðsstyrk sem KR-liðið hef- ur fengið fyrir tímabilið. Hún á von á gríðarlega jöfnu og spennandi móti í sumar enda mörg lið búin að styrkja sig vel, eins og KR. „Það eru mörg lið sem eiga eftir að koma á óvart, ég býst við mjög skemmtilegu Íslands- móti.“ Var ekki aftur snúið Ingibjörg ólst upp á Hornafirði og hún var ekki orðin nema 14 ára gömul þegar hún var byrjuð að æfa og spila með Sindra. Á þeim tíma var hún hins vegar ekki í markinu og hafði ekki einu sinni áhuga á því. „Ég man ekki einu sinni hvað ég var gömul, ég spil- aði meistaraflokksleiki sem úti- leikmaður á meðan ég var enn að finna mig. Ég var latur útileikmaður og fór í markið eftir að þjálfarinn Hajrudin Cardaklija kom auga á að ég væri efni í markvörð,“ sagði Ingi- björg en Cardaklija varði mark Breiðabliks, Leifturs og Sindra á ár- um áður. Hún átti fljótt eftir að verða hug- fangin af markvarðarstöðunni. „Í byrjun taldi ég mig vera útileikmann en því meira sem ég var í marki, því meira elskaði ég það. Svo varð bara ekki aftur snúið.“ Fyrir sumarið 2016 lá svo leiðin í Vesturbæinn, en Ingibjörg segist strax hafa heillast af KR, spurð um aðdragandann að félagsskiptunum frá Sindra. „Mér leist bara langbest á KR og þar líður mér mjög vel. Ég var ung á þessum tíma og þegar ég talaði við leikmenn í KR heyrði maður að þær vildu bara það besta, ég gat tengt vel við það og mér leið vel að tala við þær.“ Öðruvísi að vera í landsliðinu Ingibjörg hefur í tvígang verið kölluð upp í A-landsliðið en á eftir að leika fyrsta landsleik sinn. Hún var fyrst í hópi síðasta haust þegar Ísland mætti Frakklandi og Lettlandi og svo fór hún með liðinu til Spánar þar sem Ísland var meðal þátttakenda á Pin- atar-bikarnum. Ingibjörg segir það frábært tækifæri að æfa með og um- gangast færustu knattspyrnukonur sem Ísland hefur upp á að bjóða. Hún segir það markmið í framtíðinni að vinna sér inn fast sæti í liðinu. „Maður mætir þarna og sér hvað allir eru metnaðarfullir. Það er öðru- vísi andrúmsloft í landsliðinu og á góðan hátt. Þarna þarftu að leggja þig alla fram og maður sér hvað allir eru drifnir áfram. Það er öðruvísi að vera í landsliðinu og að vera innan um bestu knattspyrnukonur landsins. Það er algjörlega markmið að spila með landsliðinu.“ Ætlaði sér ekki í markið  Markvörðurinn Ingibjörg Valgeirsdóttir telur KR-inga geta barist á toppnum í sumar  Komin í landsliðshópinn og stefnir á að tryggja sér sæti í landsliðinu Morgunblaðið/Hari Hornfirðingur Ingibjörg Valgeirsdóttir lék tvö ár sem útispilari með meistaraflokksliði Sindra í 1. deild en fór í markið árið 2015. Einu ári síðar var hún komin í mark KR í efstu deild og er hér í leik gegn Grindavík haustið 2018. Þýska knattspyrnutímaritið Kicker útnefndi í gær Guðlaug Victor Páls- son besta leikmanninn í 27. umferð þýsku B-deildarinnar í knatt- spyrnu, fyrir frammistöðu sína í 4:0 sigri Darmstadt á St. Pauli á laug- ardaginn. Victor lagði upp fyrsta markið og innsiglaði sigurinn með glæsimarki undir lokin. Victor er jafnframt í sjötta sinn í vetur í úr- valsliði umferðarinnar hjá Kicker. Þá er ítarlega fjallað um hann á vef B-deildarinnar og rætt við fyrrver- andi þjálfara hans hjá Zürich sem kveðst sakna Íslendingsins mjög. Besti leikmaður umferðarinnar Morgunblaðið/Eggert Bestur Guðlaugur Victor Pálsson er enn og aftur í liði umferðarinnar. Valsmenn hafa fengið ungverska handknattleiksmarkvörðinn Martin Nagy að láni frá stórliði Pick Sze- ged sem íslenski landsliðsmaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson spilar með. Nagy er 21 árs gamall og hef- ur verið þriðji markvörður Szeged undanfarin ár en hann hefur jafn- framt verið fastamaður í öllum yngri landsliðum Ungverja. Hann er mjög hávaxinn, 2,04 metrar á hæð. Nagy á að fylla skarð Daníels Freys Andréssonar sem hefur sam- ið við sænska úrvalsdeildarfélagið Guif fyrir næsta tímabil. Valur fær mark- vörð frá Szeged Ljósmynd/Pick Szeged Ungverji Martin Nagy kemur í láni til Valsmanna frá Pick Szeged. Keppnistímabilinu í EuroLeague, sterkustu körfuknatt- leiksdeild Evrópu, hefur verið hætt en tímabilið var formlega blásið af í gær á fundi félaganna ellefu sem hafa A-keppnisleyfi í deildinni. Martin Hermannsson leikur með Alba Berlín frá Þýskalandi sem var í sex- tánda sæti af átján liðum í deildinnni þegar keppni var frestað í mars vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Keppni í Evrópubikarnum, nokkurs konar B-deild EuroLeague þar sem Unics Kazan, lið Hauks Helga Páls- sonar, var á meðal þátttakenda, er einnig hætt. Ekkert lið verður krýndur meistari fyrir tímabilið 2019-20. Sömu átján lið verða í EuroLeague næsta vetur og Alba Berlín hefur því tryggan keppnisrétt þar. Unics Kazan var komið í átta liða úrslit Evrópubikarsins og á fyrir vikið öruggt sæti í keppninni næsta vetur. Íslendingaliðin halda sætum Haukur Helgi Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.